Stiklur #endurvinnsla
Lokavikan framundan
Næsta vika...
...verður fjörug, síðasta nemendavika skólaársins. Vikuna ætluðum við mörg hver að enda í Póllandi... en það bíður bara til næsta vors/sumars... :) Vikan mun einkennast af allskonar fjöri og vonandi í góðu veðri. Rennum aðeins yfir það sem framundan er...
Vitnisburður
Til að allt gangi nú snurðulaust fyrir sig er vitnisburðarblöð verða prentuð út ... þarf allt að vera klárt... þ.á.m. vitnisburður í Mentor...
- á mánudaginn þurfa allar einkunnir tíunda bekkjar að vera komnar inn... grunngreinar og valfög
- í lok þriðjudagsins þurfa síðan allir hinir bekkirnir að vera klárir.. 1. - 9. ... sérstaklega vitnisburður frá öðrum en umsjónarkennurum...
Karnivaldagurinn
Hinn árlegi karnivaldagur verður fimmtudaginn 28. maí.
Skóli hefst kl. 8:00 og lýkur kl. 12:00, athugið að VINASEL er lokað þennan dag.
Við hefjum fjörið í skólanum þar sem hóparnir koma saman og boðið verður upp á andlitsmálun – börn mega koma máluð í skólann
Við fáum okkur ávaxtanesti og förum í frímínútur eins og venjulega.
Eftir frímínútur, kl. 9:40 tekur við skipulögð dagskrá þar sem farið verður í fjölbreytta leiki og þrautir á íþróttavellinum, í íþróttahúsinu og þar í kring.
Við minnum á litina:
1. og 6. bekkur.... gult
2. og 7. bekkur.... rautt
3. og 8. bekkur.... grænt
4. og 9. bekkur.... blátt
5. og 10. bekkur.. bleikt
Útskrift 10. bekkjar
Á tímabili leit út fyrir að ekkert yrði af hefðbundinni útskriftarathöfn 10. bekkjar en þar sem nýjar reglur taka gildi mánudaginn 25. maí um fjöldatakmarkanir þá sjáum við okkur fært að geta haft útskrift... með takmörkunum þó því virða þarf tveggja metra regluna eins og kostur er. Útskriftin verður fimmtudaginn 28. maí og hefst athöfnin klukkan 17:00. Hver nemandi fær eitt borð til umráða fyrir sína fjölskyldu.
Skólaslit og afhending vitnisburðablaða hjá 1. - 9. bekk
Skólaslit Nesskóla að þessu sinni verða föstudaginn 29. maí klukkan 11:30. COVID-19 hefur heldur betur sett mark sitt á skólastarf vorannarinnar. Skólaslitin eru engin undantekning þar á, því miður sjáum við okkur ekki fært að hleypa foreldrum að athöfninni í ár. Skólaslitin verða því þannig í ár að nemendur mæta á sal klukkan 11:30, hlusta þar (vonandi af mikilli athygli) á stutta skólaslitaræðu skólastjóra, halda síðan til sinnar bekkjarstofu og fá þar vitnisburðinn sinn afhentan.
Veiga
Fyrirlestur kajakræðarans og transkonunnar Veigu tókst í alla staði vel... :)