HÚSBRÉFIÐ
14. ÁRG., 5. TBL
DAGSKRÁ 1. - 5. október
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER
Nemendaverndarráðsfundur í Bs.
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER
Örfundur: Stuðningsfulltrúar í Hs. Stofa 9 kl. 8:05.
Fagfundur: Danska. Fagstjóri auglýsir fundartíma.
Nemendaverndarráðsfundur í Hs.
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER
Þróunarfundur - hópar hittast. Hópstjórar kalla saman sína hópa.
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER
1. bekkur og Víkin í leikhús kl. 10:00
Örfundur: Skólaliðar í Hs. Stofa 9 kl. 10:30.
Örfundur: Stuðningsfulltrúar á unglingastigi. Stofa 31 kl. 8:05.
Stjórnendafundur í Bs kl. 14:30.
ATH! Fimmtudagar eru litadagar - mætum í lit :)
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER
Alþjóðadagur kennara!
Óvissuferð!!!!
Áhugaverð atriði næstu vikur
Bleikur október.
Lof mér að falla - 9. og 10. bekk boðið í bíó þriðjudaginn 2. okt.
Forvarnardagurinn er 3. október.
Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um allan heim 5. október.
Aðalfundur Starfsmannafélags GRV miðvikudaginn 10. okt. - mætum öll.
Vetrarfrí hefst 22. október, kennsla hefst aftur 29. október.
- Lestur við sama borð - hefst í þessum mánuði. Nánar auglýst síðar.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
Tilkynningar !!
- Náms- og starfsráðgjafi við GRV: Dröfn Ólöf Másdóttir hefur verið ráðin í afleysingar fyrir Fríðu Hrönn í vetur. Hún mun vera í Barnaskólanum mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga frá kl. 8-15:00 og föstudaga frá kl. 8-14:00. Hún verður í Hamarsskóla á þriðjudögum frá kl. 8-15:00.
Bleikur lestrarhestur í BS tilbúinn hjá ritara.
Göngum í skólann lýkur 3. október. Umsjónarkennarar skila inn þátttökublöðum til deildarstjóra yngsta og miðstigs.
- UTÁ- þarfaplattar: Starfsfólk er vinsamlegast beðið um að koma plöttunum sem fyrst upp á veggi skólans. Það eru mjög fáir komnir upp.
- Handavinnuhittingur verður þriðjudaginn 3. október kl. 20:00 í Barnaskólanum.
- Fimmtudagar eru litadagar - Mætum í litríkum fötum og hvetjum krakkana til þess að gera það líka.
- Umsjónarkennarar muna eftir að senda ástundun heim.
- Umsjónarkennarar 10. bekkja og deildarstjóri unglingastigs í Rúmeníu 6.-13. okt.
Afmælisbörn októbermánaðar
Guðbjörn Guðjónsson 1. október
Ingibjörg Jónsdóttir 2. október
Helga Jóhanna Harðardóttir 9. október
Anna Lilja Sigurðardóttir. 14. október
Jóhanna Kristín Reynisdóttir 15. október
Ólafía Ósk Sigurðardóttir 16. október
Ásta Kristmannsdóttir 17. október
Valerður Bjarnadóttir 24. október
María Pálmadóttir 27. október
Jóhanna Alfreðsdóttir 29. október
Anna Lilja Tómasdóttir 30. október
Uppskrift vikunar - Lax með döðlum og gráðosti
Lax með döðlum og gráðosti
800 g lax
sítrónupipar
120 g gráðostur (má nota fetaost í staðinn).
10-15 stk döðlur, steinlausar
- Skerið laxaflakið niður í hæfilegar sneiðar
- Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og leggið laxinn þar á og kryddið með sítrónupipar.
- Skerið döðlurnar niður í litla bita og hrærið saman við gráðostinn. Smyrjið jafnt yfir laxinn og bakið í 200°c heitum ofni í 15-18 mínútur.
Spakmæli vikunnar
"Jafnvel okkar bestu og skýrustu einstaklingar ná ekki alltaf að sýna sitt besta á stöðluðum prófum því þessir einstaklingar hafa ekki staðlaðan huga."
Diane Ravitch (höfundur Making Good Citizens: Education and Civil Society.)
Hrós vikunnar
Hrós vikunnar fá húsverðir, skólaliðar, matráðar og stuðningfulltrúar fyrir frábært starf. Án þeirra væri skólinn ekki sá sem hann er.
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.