Vikupóstur
1. bekkur
Heil og sæl.
Börnin völdu sér fugla á fuglavefnum sem þau teiknuðu á blað og máluðu með vatnslitum - krefjandi verkefni sem flestir höfðu gaman af.
Allir teiknuðu af sér sjálfsmynd og við kennarar héldum áfram að meta börnin.
Frábært að sjá hvað margir tóku sig á í lestrarátakinu - vel gert foreldrar og börn!
Nú er búið að lestrarprófa flesta og ættu þær niðurstöður að vera komnar inn á mentor.
Rósa stuðningsfulltrúi er hætt og flutt á Sauðarkrók þar sem hún ætlar að spila fótbolta í sumar! Við þökkum henni kærlega fyrir samveruna.
2. og 3. júní verða vorþemadagar í Naustaskóla. Þann 2. júní mun 1. -5. bekkur hjóla inn í Kjarnaskóg þar sem verður leikið og grillað og síðan hjólað tilbaka. Hjólað verður eftir malarstíg og er mikilvægt að aðeins þau börn sem eru fær um það mæti á hjólum - hin mæta gangandi. Þessi ákvörðun er alfarið í höndum foreldra. Ef þið treystið börnunum ykkar ekki til að hjóla þessa leið, þá koma þau fótgangandi. Vinsamlegast sendið okkur póst ef barnið ykkar kemur ekki á hjóli, því við þurfum að fá nákvæma tölu yfir þau börn sem fara fótgangandi.
Við minnum á uppstigningardag á morgun og starfsdag á föstudaginn (frístund verður opin).
Góða "helgi" :)
Bestu kveðjur,
Elín, Rósa, Sigga og Sunna