Vikupóstur
2. - 10. júní 2020
Kæra starfsfólk
Loka loka póstur á þessu skólaárí – þetta er alveg að vera búið.
Framundan er þó lokatörnin sem oft er krefjandi og lýjandi.
Svo virðist sem við fáum gott verður á þemadögum sem gera þá ennþá ánægjulegri. Slóðin inn á skipulga vordþemadaganna er þess: https://docs.google.com/document/d/1xmJtCkst27zxHDU_gSTmfFIbsI2OPAz060NBMyc5Ajw/edit?ts=5ec7bdc4
Einnig verður skipulagið hengt upp á ganginn í stjórnunarálmunni.
Skipulag skólaslitanna er hér fyrir neðan og biðjum við ykkur að setja það í vikupóstinn ykkar ásamt því að benda á að foreldrar koma ekki með börnum sínum á skólaslitinn að þessu sinni. Einnig væri gott að það kæmi fram að eftir skólaslit fari börnin heim og Frístund er lokuð.
Hér fyrir neðan er skipulag skólaslitadags:
- Kl. 09:00 mæta nemendur 1,3,5,7 og 9.bekkjar á sal skólans og fara síðan inn á sín svæði.
- Kl. 11:00 mæta nemendur 2,4,6 og 8.bekkjar á sal skólans og fara síðan inn á sín svæði.
- Frístund er lokuð á skólaslitadaginn.
- Útskrift 10.bekkjar fer fram á sal skólans kl. 15:00 – að henni lokinni er kaffihlaðborð í boði 9.bekkjar. Við óskum efir að sem flestir sjái sér fært að vera viðstaddir þessa athöfn.
Með ánægju getum við sagt frá því að Valdís Rut Jósavinsdóttir hefur fengið tilnefningu Fræðsluráðs vegna fánaverkefnisins sem við unnum á þemadögum í tengslum við afmæli skólans. Mikael Breki Þórðarson í 7. bekk hlýtur einnig tilnefningu vegna prúðmannlegrar framkomu og góðra samskipta við samnemendur sína og að vera góð fyrir mynd. Óskum við þeim báðum til hamingju.
Við beinum þeim tilmælum til kennara að ganga vel frá sínum svæðum og ef fólk er að vinna lengur eins og oft gerist á þessum síðustu dögum skólaársins að læsa útihurðinni. Einnig óskum við eftir því að kennarar færi gögn af sínum svæðum inn á samgögn skólans. Það er nauðsynlegt að halda upp góðum gagnabanka þannig að ekki þurfi að finna upp hjólið á hverju ári.
Við erum sannfærð um að þessir lokadagar eigi eftir að verða skemmtilegir og gefandi - og vorferðin verði skemmtilegasta vorferð hingað til 😊
Takk fyrir síðustu viku – þið eruð búin að vera dugleg og jákvæð sem sagt alveg til fyrirmyndar.
Bestu kveðjur
Alla, Bryndís og Heimir.
Mánudagurinn 1. júní
Þriðjudagurinn 2. júní
Vorþemadagur – nemendur fara heim kl. 12:00 eða í Frístund.
Kjarnaskógur: 1. - 5. bekkur
Stöðvar við skólann 6. - 10. bekkur
Stjórnendafundur kl. 8:30
Leyfi: Erla, Halla, Elfa.
Miðvikudagurinn 3. júní
Vorþemadagur – nemendur fara heim kl. 12:00 eða í Frístund.
Kjarnaskógur 6. – 10. bekkur
Stöðvar við skólann 1. - 5. bekkur
Fimmtudagurinn 4. júní
Skúffudagur 8:10 – 10:30
UNICEF hlaupið í Naustaborgum kl. 10:30 – Allir nemendur fara heim kl. 13:10
Leyfi: Gréta, Gunnar
Föstudagurinn 5. júní
Skólaslit 😊
Tímasetningar skólaslita
Kl. 9:00 1,3,5,7, og 9. bekkur
Kl. 11:00 2,4,6 og 8. bekkur
Klukkan 15:00 útskrift 10. bekkjar
Leyfi: Gunnar
Mánudagurinn 8. júní
Fundur vegna þróunarverkefnis Læsi fyrir lífið kl. 9:30 – 10:45. Kennarar úr 6. - 10. bekk á næsta skólaári.
Teymi vinna við ársskýrslur og frágang síns svæðis.
Leyfi: Erla, KarenÞriðjudagurinn 9. júní
Starfsmannafundur 8:10 – hróshringur og fl.
Kennarafundur kl. 10:00 – 12:00 – innra mat – ný menntastefna Akureyrarbæjar.
Miðvikudagurinn 10. júní
Mæting kl. 10:00 í morgunmat í boði skólans.
Frágangur og skýrslugerð