Seyðisfjarðar- skóli
......... samkomubann á tímum skólahalds ;)
Það er nú blessuð blíðan
Mikið hafa þetta verið yndislegir góðviðrisdagar að undanförnu. Allir nemendur hafa verið mikið úti við leik og nám og í þessu bréfi eru nokkrar myndir frá liðinni viku þar sem skólastarfið og fallegi bærinn okkar skartaði sínu fegursta í blíðunni.
Í þessu bréfi ætlum við að fara yfir hvað það er sem gerist við afléttingu hafta og samkomubanns n.k. mánudag.
Frá og með mánudeginum 4.maí munum við fella úr gildi viðbragðsáætlunina sem var gefin út 16.mars og við höfum verið að vinna eftir. Því munu nemendur og starfsfólk:
- Kenna og mæta í skólann samkvæmt stundaskrá og fyrra skipulagi deilda í listadeild, leik- og grunnskóladeild.
- Blanda hópum í skólanum ef þarf samkvæmt stundaskrá skv. fyrra skipulagi.
- Spritta hendur reglulega og þrífa öll rými vel að loknum skóladegi.
- Kenna list- og verkgreinar, íþróttir í íþróttahúsi og sund samkvæmt stundaskrám.
- Hafa opið á eðlilegum tíma í Skólaseli.
- Hafa opið á leikskóladeildinni til klukkan 4:15 fyrir þau börn sem áttu vistunartíma til þess tíma.
- Leyfa foreldrum yngstu barnanna (á Álfhóli) í leikskóladeild að koma inn í fataklefa en við tökum á móti öðrum börnum við dyrnar eða úti í garðinum. Sérstakur póstur mun koma til foreldra leikskólabarna varðandi upphaf og lok dags.
- Anda inn anda út- mjög reglulega yfir daginn.
- Ekki láta okkur detta í hug að við náum að gera allt sem við þurftum að fresta. Því miður verður það ekki hægt. Maímánuður er mjög annasamur tími í skólum. Við komum til með að þurfa að velja og hafna.
- Setja foreldraviðtöl í gang á leikskóladeild. Þau eiga að vera árleg og öllum finnst þau mjög mikilvæg.
- Við erum að skipuleggja námsmat sem verður aðlagað að því sem við höfum náð að gera.
- Við erum að teikna upp mismunandi sviðsmyndir varðandi skólaslit.
- Við komum til með að viðhalda tveggja- metra -reglunni meðal fullorðinna, og vanda okkur þar starfsfólk og gestir.
- Við takmörkum gestakomur en þó eru þær ekki með öllu bannaðar
- Þvoum okkur um hendur reglulega heima og í skólanum.
- Anda djúpt og slaka :)
- Starfsfólk má taka undirbúninginn sinn utan skólans ef það kýs svo.
- Fundahald starfsfólks verður með minnsta móti og kennarafundir á fimmtudögum á Zoom.
Það er einnig gleðilegt að
- Ærslabelgurinn verður fullur af lofti og tilbúinn til að nemendur geti hoppað á mánudag.
- Nemendur í mataráskrift mæta í Herðubreið í hádeginu því mötuneyti opnar eftir helgi.
- Freeky Fridays, félagsstarf mið- og unglingastigs verður á sínum stað föstudaginn í næstu viku.
- Elstu nemendurnir í leikskóladeild fá að aðlagast grunnskólastarfinu með mörgum heimsóknum í maí. Unnur og Ágústa eru búnar að gera sérstaka áætlun um það.
- Austurlandslíkanið og Skólaskrifstofa mun geta fundað með okkur og foreldrum en áfram þarf að viðhalda 2 metra fjarlægð á milli fullorðinna.
- Framhaldsskólarnir finna leiðir til að kynna starfið hjá sér rafrænt og elstu nemendurnir okkar taka þátt í þeim kynningum.
- Gestakennararnir okkar eru á leiðinni og listadeildin starfar með eðlilegum hætti frá og með mánudeginum líka.
Um starfsmannamálin í skólanum
Í heild bárust 102 umsóknir um auglýst störf við skólann þannig að ljóst er að það eru nokkrir sem geta hugsað sér að vinna hjá okkur. Það er sennilegt að Covid faraldurinn hefur haft áhrif á fjölda umsókna. Umsóknir verða metnar af stjórnendum og aðilar boðaðir í viðtöl á næstu dögum og vikum. En nánar um umsóknir og lausar stöður hér.
Rétt í lokin
Það hefur einnig verið mjög gaman að skrifa þessi bréf til ykkar. Safna gögnum frá stoltum kennurum og ábendingum um hvað væri gott að minnast á í þeim. Bréfin hafa almennt verið opnuð og lesin - af 250 manns þegar best lætur! Ef þið smellið á hjartað efst í bréfinu eftir lestur bréfsins þá vitum við að þið eruð enn að lesa þetta bréf og kunnið að meta það.
Það er svo sannarlega þannig að maí mánuður, rétt eins og ágúst og september eru mjög erilsamir mánuðir í skólastarfi almennt. Hér og allstaðar um allt land. Mjög annasamir fyrir nemendur og kennara og við ætlum að fara inn í þennan vormánuð sem byrjar á morgun á frídegi og svo gleðidegi þar sem flest kemst í fyrri skorður á mánudag, með það í huga að við ætlum ekki að ná öllu og gera allt sem við náðum ekki að gera á meðan á höftum og fullu samkomubanni stóð, á næstu 3 vikum. Það væri algjört rugl - svokallaður ógerningur.
Eitt af því sem ég heyri á nemendum er að margir kunna í raun vel við frelsið og hæglætið sem þeir öðluðust við að vera og læra meira heiman frá sér og við það að gera minna. Það er athyglisvert þó svo að við vitum vel að flestir hafa saknað allskonar úr félagslífinu vegna samkomubannsins. Þá er eitthvað til í því að það sé gott að vera ekki alltaf að þenja sig og sprengja og einnig gera raunhæfar kröfur til sín og annarra.
Það væri áhugavert og sennilega gagnlegt fyrir okkur að spjalla um þetta og að nýta nokkra stund á næstunni í að ígrunda hvort að það að gera minna hafi haft einhverjar jákvæðar afleiðingar og þá hverjar þær voru á þessu tímabili og hvort ástæða sé til að gera allt eins og áður. Ástandið hefur gert það að verkum að við munum fá samaburð. Ef þið hafið skoðun á því hvernig þið upplifðuð þessa Covid tíma varðandi nám barnanna og skólastarfið megið þið endilega senda skólastjóranum ykkar póst.
En í hnotskurn þá.....
Skólastarf fari í fyrri skorður frá og með mánudeginum 4. maí og við viljum hnykkja á eftirfarandi
- Fullorðnir og 16 ára og eldri eiga að virða tveggja metra regluna
- Gestakomur inn í húsnæði skólans eru leyfðar en ekki sjálfsagðar
- Opnun og lok í leikskóladeild eru ekki alveg hefðbundin
- Þrif verða áfram mikil og regluleg
- Við nýtum handspritt
- Við þvoum okkur um hendurnar og kennum börnunum áfram að það sé mikilvægt að þvo hendur heima og í skólanum
Við eru öll almannavarnir
Hafið það sem allra allra best um þessa löngu helgi
Seyðisfjarðarskóli
Email: svandis@skolar.sfk.is
Website: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/
Location: Suðurgata 4, Seyðisfjörður, Iceland
Phone: 4722324