Stiklur
https://www.youtube.com/watch?v=WyF8RHM1OCg
Róm var ekki
byggð á einni nóttu... eða svo segir sagan og Óskar Ágúst líka... Að byrja nýtt skólaár er að mörgu leyti svipað...gerist kannski ekki á jafnlöngum tíma...en allavega ekki yfir nótt . Fyrsti skóladagurinn sýndist mér ganga vel. Eðlilega er ekki allt fullkomlega komið í skorður, en öndum að okkur skólaloftinu, leyfum hlutunum að þróast. Ef eitthvað bráðvantar þá endilega komið að máli við mig.
Þriðjudagurinn næsti...og hugsanlega þar næsti...
Við byrjum á því að gefa stigunum tækifæri á að hittast og því verður stigsfundur á þriðjudaginn. Fyrsta september er síðan aftur þriðjudagur og þá reikna ég með kennarafundi.
Nýjar tölvur
fyrir kennara eru væntanlegar fyrir 1. september. Fínar vélar að því er mér skilst. Samhliða er verið að vinna að því að setja upp 13 nýja senda til að bæta WI-FI netið innan skólans.
Sóttvarnir
Grunnskólarnir eru heppnir að því leitinu að nemendur okkar telja ekki þegar kemur að takmörkunum í því samkomubanni sem nú er. Það sama er hins vegar ekki að segja um okkur fullorðna fólkið... við þurfum að passa okkur... og svo er um að gera að ítreka við nemendur okkar mikilvægi sóttvarna.
Hreinlæti er lykilatriði
Handþvottur er mikilvægasta sýkingavörnin sem hægt er að viðhafa því snerting, bein og óbein, er lang algengasta smitleið sýkla milli manna. Allir eiga að gæta fyllsta hreinlætis og spritta sig um leið og komið er inn í skólann og sem oftast eftir það. Sprittstöðvar eru víða um skólann.
Washing your hands: The purple paint demonstration
Virðum ,,eins meters reglu”
Mikilvægt er að við tökum tillit til hvers annars, það eru fjarlægðar takmarkanir í gangi. Nýtum t.d. kennslustofurnar sem vinnuaðstöðu og til fundahalda eins og hægt er. Varasömustu staðirnir eru kaffistofan og þröng rými eins og ljósritunarherbergið.
Andlitsmaskar … hvernig á að nota þá...
Ef einhverjir vilja eða þurfa að nota grímur er mikilvægt að vita hvernig það er gert... það skiptir nefnilega máli...
How to wear a medical mask
Að lokum
eru óskir um að þið njótið helgarinnar, komið endurnærð inn á mánudaginn með fullt af D-vítamíni og súrefni í líkamanum... :)