Samspil 2015
UT-átak Menntamiðju
Upplýsingatækninámskeið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara:
Hefst á vefnámskeiði miðvikudaginn 4. mars kl. 16:15-17:15, þar sem átakið verður kynnt nánar. Tryggðu þér pláss strax, skráning og nánari upplýsingar er að finna á www.samspil.menntamidja.is
Fyrirkomulag:
- Útspil - staðbundið 5 klst. námskeið sem haldið verður í Reykjavík, Borgarnesi/Snæfellsnesi, Bolungarvík, Akureyri, Egilsstöðum, Hvolsvelli (Suðurland) og á Reykjanesi.
- Vefnámskeið - 2x í mánuði tengd mánaðarlegu þema
- Kennslumyndskeið - 3x í mánuði, sjálfsnám - einnig tengd mánaðarlegu þema
- Þátttaka í umræðu á samfélagsmiðlum
Markmið að þátttakendur:
Kynnist hagnýtum dæmum um notkun upplýsinga- og samskiptatækni
Hafi gagn af námskeiðinu og geti nýtt viðfangsefni þess í eigin kennslu
Geti nýtt sér upplýsingatækni og samfélagsmiðla til að sinna starfsþróun
Séu virkir í starfssamfélögum á netinu og noti þau til að deila reynslu og þekkingu
Geri sér grein fyrir áhrifum tækniþróunar og tæknibreytinga á nám og kennslu
Fái innblástur til frekari þróunar efnis, aðferða og samstarfs
Verð:
Almenn þátttaka 5.000 kr.
Þátttaka metin til háskólaeininga 60.000 kr.