HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 17. TBL
DAGSKRÁ 6. - 10. FEBRÚAR
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR
Nemendaráðsfundur Bs kl. 9:20
Umboðsmaður barna verður með fyrirlestur fyrir nemendur í 6. - 8. bekk.
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR
Nemendaráðsfundur Hs kl.14:00
Fagfundur í stærðfræði Hs
Jóga kl. 15:30 í stofu 34
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR
Badminton í íþróttahúsinu frá kl. 14:00 - 15:00
Fagfundur í íslensku í Hs færist yfir á næsta miðvikudag
Fagfundur í íslensku í BS - fagstjóri auglýsir fundinn
Undirbúningur smiðjudaga á unglingastigi
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR
Stjórnendafundur í Bs kl. 15:00
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Kynning frá umboðsmanni barna fyrir 6. -8. bekk. 6. febrúar.
- Könnunin Ungt fólk: lögð fyrir 5. -10. bekk í vikunni 7. -9. feb.
- Allir lesa - landsleikur í lestri hefst 27. janúar og stendur til 19. febrúar. Leikurinn er fyrir allla landsmenn, allir geta myndað lið. Keppnin er ekki bara liðakeppni því stóra keppnin er á milli sveitafélaga.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns hófst 1. janúar frekari upplýsingar má finna á bókasöfnum skólans eða á http://www.visindamadur.com/lestraratak
- Þorrablót hjá 1. - 5. bekk verður mánudaginn 13. febrúar.
- Smiðjudagar á unglingastigi 14.- 16. febrúar, árshátíð 16. feb.
Tilkynningar !!
- Lífshlaupið hófst 1. febrúar, búið að draga í lið og mikil keppni komin í gang.
- Ýmsir viðburðir verða á dagskrá fyrir starfsfólk á meðan Lífshlaupið stendur yfir,
- Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur í heimsókn til okkar fimmtudaginn 2. mars, nemendum í 1. - 5. bekk verður boðið á Maxímús Músíkús. Einnig verður opin sýning fyrir alla eyjamenn miðvikudaginn 1. mars, verður í íþróttahúsinu.
- Minnum þá sem eru á útivakt í HS að taka talstöðvar með sér á vaktina.
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
- Lesið við sama borð - hófst aftur þriðjudaginn 17. janúar. Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð.
Kryddað banana brauð – Glúten og sykurlaust
Hráefni:
- ½ bolli af bókhveiti
- ½ bolli af möndlumjöli
- 1 ½ tsk af matarsóda
- ½ tsk af kardimommum
- 2 tsk af kanil
- 1 tsk af engifer
- ½ tsk af núggat
- ½ tsk af vanillu dufti eða 1 tsk af vanilla extract
- ½ tsk salt
- 2 stór egg
- ¼ bolli af fljótandi kókósolíu
- ¼ bolli af mjólk að eigin vali
- 1 tsk af eplaediki
- 3 meðal stórir og þroskaðir banana
Leiðbeiningar:
- Forhitið ofninn í 180 gráður og hyljið bökunarform með smjörpappír/bökunarpappír
- Takið stóra skál og blandið saman öllum þurru hráefnunum
- Í aðra skál skal hræra saman egg, kókósolíu, eplaediki og mjólk. Bætið svo saman við bönunum með því að stappa þá út í með gaffli. Ekki stappa þá í algjört mauk samt, hafið nokkra stærri bita með.
- Bætið núna saman við þurrefnin og hrærið þar til allt er alveg fullkomlega blandað saman.
- Setjið núna blönduna í bökunarform, dreifið pecan hnetunum yfir ásamt bókhveitinu þessu malaða, stráið síðan kanil og kókósolíunni yfir allt saman.
- Setjið formið í neðstu stillingu á ofninum og látið bakast í 45 mínútur eða þar til prjónn sem þú getur notað til að stynga í deigið kemur út hreinn. Ef þér finnast pecan hneturnar brúnast heldur hratt þá má setja álpappír yfir.
- Þegar brauðið er bakað þá skal leyfa því að kólna aðeins áður en það er tekið úr forminu. Svo skal skera í 12 sneiðar og bera fram volgt, hollt og gott bananabrauð.
Spakmæli vikunnar
Vissir þú um mat og drykk #7
Vissir þú um mat og drykk #8
Vissir þú um mat og drykk #9
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
Lífshlaupð er hafið, margir úr GRV eru að æfa í Metabolic
Dagskrá fyrir lífshlaupið
Þriðjudagur 7. feb. Jóga í stofu 34 í BS kl. 15:30. Svanhvít sendir póst vegna skráningar í lok vikunnar.
Miðvikudagur 8. feb. Kl. 14:00 - 15:00 verður boðið upp á:
Badminton í Íþróttahúsinu.
Þeir sem ekki hafa tök á að fara í badminton geta farið í 45 mín. göngu frá Íþróttahúsinu.
Sunnudagur 12.feb. Kl. 18:15 verður boðið upp á : Samflot í sundlauginni
í umsjá Kötu Harðar. Aðeins 20 pláss í boði, þarf að skrá
sig. Verð 1.750 kr.
Þriðjudagur 14. feb. Jóga í stofu 34 í BS kl. 15:30
Svanhvít sendir póst vegna skráningar í lok vikunnar.
Miðvikudagur 15.feb. Kl. 16:15 verður boðið upp á: Metabolic tíma í
Týsheimilinu ath lokaður tími fyrir starfsfólk skólans.
Þarf að skrá sig. Verð 500 kr.
Miðvikudagur 15. feb. Hjúkrunarfræðingar skólans bjóða
Miðvikudagur 22. feb. Starfsmönnum Barnaskólans upp á blóðfitu- og
blóðþrýstingsmælingu á milli 8:00 og 10:00. Verður að
koma fastandi í mælingu.
Fimmtudagur 16. feb Hjúkrunarfræðingar skólans bjóða starfsmönnum Hamarsskóla upp á blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu
Fimmtudagur 23. feb. á milli 8:00 og 10:00 í. Verður að koma fastandi í mælinguna.
Miðvikudagur 22. feb. Heilsukaffi starfsfólks – mætum endilega með eitthvað hollt og sláum upp hlaðborði í hvorum skóla fyrir sig.