Hvalrekinn
24. janúar 2023
Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli
Námsviðtöl 3. febrúar 2023
Námsviðtöl eru ráðgerð föstudaginn 3. febrúar.
Foreldrar panta viðtal í Mentor eins og verið hefur. Opnað verður fyrir skráningu fimmtudaginn 26. janúar og er skráningin opin til og með þriðjudeginum 31. janúar. Þórunn Harðardóttir skrifstofustjóri hefur sett inn þau viðtöl þar sem túlkur er með. Ekki hægt að breyta tímasetningu þeirra viðtala.
Einhver viðtalanna fara fram á öðrum degi og er það þá gert í samráði við foreldra.
Stöðumat í janúar 2023
Fyrir námsviðtalsfundina þurfa foreldrar ásamt börnum sínum, að skoða námsframvinduna inni á Mentor. Opnað verður fyrir stöðumatið í Mentor þann 30. janúar.
Athygli er vakin á því að hæfnikortið er lifandi plagg og því getur síðasta mæling ekki alltaf gefið rétta mynd. Sum hæfniviðmið eru metin oftar en einu sinni en það á frekar við eftir því sem börnin verða eldri. Þegar svo er þarf að skoða hæfniviðmiðið í Mentor og þá kemur upp saga/námsferill, þ.e. hvaða hæfni barnið hefur náð frá því skólinn hófst. Gott er að skoða það til að gera sér grein fyrir raunverulegri stöðu.
Nú í janúar er gefin einkunn fyrir framvindu, sem ætluð er til að gefa nemendum og foreldrum nokkra hugmynd um stöðu barnsins í hverri grein. Einkunnin lýsir stöðu barnsins í janúar 2023 en hún birtist efst á hæfnikorti nemandans í hverju fagi. Eins og áður segir opnar hæfnikortið mánudaginn 30. janúar. Til að gefa fyrir framvinduna notum við skalann; góð framvinda, hæg framvinda, í hættu að ná ekki lágmarkshæfni.
Hér má nálgast leiðbeiningaglærur fyrir foreldra til að skoða námsmat barna sinna.
Öðruvísi jóladagatal
Nemendur í yngri deild og starfsmenn skólans hafa tekið þátt í Öðruvísi jóladagatali í sjötta sinn og er afraksturinn að þessu sinni 132.500 krónur, en heildarupphæðin er komin í 730.521 krónur. Sem er aldeilis frábært framtak.
SOS barnaþorpin eru alþjóðlega hjálparsamtök sem vinna að því markmiði að börn fái að alast upp við góða umönnun hjá stöðugri fjölskyldu. Þau starfa víðsvegar um heiminn í 136 löndum.
Til viðbótar í ár þá fengu nemendur fræðslu um Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna en hann samstendur af 54 reglum sem eiga að stuðla að velferð og réttindum barna um heima allan.
Heimanám - Hvatning
Við viljum minna á að samkvæmt reglum um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar er nám nemenda sem er í leyfi á ábyrgð foreldra. Því viljum við benda á að allar áætlanir nemenda í 1. – 10. bekk má finna inn á Mentor og hjá nemendum með spjaldtölvur/Ipad eru verkefni, áætlanir og annað efni er einnig að finna inni á Google Classroom.
Foreldrar geta nálgast námsbækur og önnur gögn í skólanum.
We would like to remind you that according to the rules on school attendance in Hafnarfjörður, the education of students who are on leave is the responsibility of the parents. We would also like to point out that all plans for students in 1st - 10th grade can be found on Mentor. In addition, for students with Ipads, assignments, plans and other material can also be found on Google Classroom.
Parents can arrange to get books from the school.
Heimanámsaðstoð í skólanum
- Valgrein er einu sinni í viku fyrir nemendur í elstu deild.
- Doddi hjálpar þér með heimanámið fyrir nemendur í mið- og elstu deild frá kl. 14:00 - 16:00 á mánudögum og miðvikudögum.
- Boðið er upp á heimanám þegar Verið í opið á kvöldin.
Doddi/Þórður Jón Jóhannesson er leiðbeinandi hjá okkur og hann er á þriðja ári í mannfræði í HÍ. Hluti af hans námi er að bjóða upp á samfélagsaðstoð.
Myndir úr skólastarfinu
Tarsanleikur í íþróttum
Lestrarhvalur í elstu deild
Samvera hjá 2. EG
Mikilvægi læsis og móðurmáls.
Hér er hægt að nálgast bæklinga á ýmsum tungumálum um mikilvægi móðurmálsins. Að hafa gott vald á móðurmálinu hjálpar börnum að læra íslensku, þar sem tungumál vinna saman, en er ekki síður mikilvægt til að þroska með einstaklingum öryggi og sterka sjálfsmynd.
Hér er bæklingur frá Bókasafni Hafnarfjarðar um mikilvægi lesturs og að skapa notalegar lestrarstundir foreldra og barna. Þessi bæklingur er bæði á íslensku, ensku og pólsku.
https://www.hafnarfjordur.is/media/auglysingar/laesisbaeklingur-isl.pdf
https://www.hafnarfjordur.is/media/fraedsluthjonusta/laesisbaeklingur-ens.pdf
https://www.hafnarfjordur.is/media/fraedsluthjonusta/laesisbaeklingur-pol.pdf
Þú getur þjálfað upp þínar svefnvenjur og stuðlað þannig að bættri heilsu
Fyrir okkur flest, þá er svefn bara eitthvað sem við þurfum að gera og við leggjum oft ekki neina vinnu í að hámarka gæði svefns til þess að stuðla að bættri heilsu. Margir hafa orðið varir við umræðu varðandi svefnvenjur unglinga og að þeir séu ekki að fá nægan svefn og séu jafnvel með ranga líkamsklukku. Það er staðreynd að skortur á gæðasvefni getur haft skaðleg áhrif á heilsu okkar. Hér eru nokkrar staðreyndir:
- Skortur á gæðasvefni veikir ónæmiskerfið í okkur og við verðum oftar veik. Við þurfum sérstaklega að huga að þessum þætti í baráttu við kórónuveiruna. Sterkt ónæmiskerfi ver okkur fyrir veikindum.
- Skortur á gæðasvefni í langan tíma getur ýtt undir alvarleg veikindi eins og hjartasjúkdóma, háan blóðþrýsting, óreglulegur hjartsláttur, sykursýki, o.fl.
- Skortur á gæðasvefni ýtir undir andleg veikindi eins og þunglyndi og kvíða.
- Skortur á gæðasvefni ýtir undir þyngdaraukningu
En hvað getum við gert til þess að þjálfa upp góðar svefnvenjur? Það eru til margar aðferðir til þess að tryggja það að þú fáir góðan nætursvefn og vaknir endurnærð/ur næsta morgun með orku í amstur dagsins. Hér eru aðferðir sem virka vel:
- Slökktu á skjánum um 1.5 tíma áður en þú ferð að sofa. Bláa ljósið frá síma/ipad hefur neikvæð áhrif á svefn.
- Kældu svefnherbergið niður. Kjöraðstæður fyrir svefn er um 18° og til að hefja svefn er gott að minnka kjarnahita okkar um 1 gráðu. Þú sofnar fyrr, helst sofandi yfir nóttina og bætir svefngæðin.
- Myrkur. Ekki fara að sofa með bjart í herberginu.
- Búðu til svefnáætlun. Farðu ALLTAF að sofa á sama tíma og vaknaðu ALLTAF á sama tíma. Líka um helgar.
- Ekki fara svöng/svangur að sofa. Ekki borða þunga máltíð rétt fyrir svefninn.
- Stundaðu líkamsrækt. Rannsóknir sýna að regluleg hreyfing bætir svefn.
Fyrir marga hljómar þetta eins og mikið af atriðum sem þarf að huga að en eins og með allt annað, þá þarf ekki nema smá tíma til þess að búa sér til nýjar venjur.
Ég þjálfa mikið af afreksíþróttafólki og fæ ósjaldan fyrirspurnir varðandi næringu og fæðubótarefni. Hvað sé hægt að gera til þess að bæta afköst. Svarið mitt er alltaf það sama: Skoðaðu svefnvenjur þínar og bættu þær ef þörf er á. Þegar svefninn er kominn í lag, þá fyrst fer allt hitt að virka.
Vilhjálmur S. Steinarsson, íþróttakennari
Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum
Skólasöngur Hvaleyrarskóla
Munum öll - að þakka fyrir það.
sem okkur er gefið, sama hvað,
Með jákvæðni og æðruleysi.
Það sem bætir lífið okkar er kurteisi.
- Viðlag -
Við í Hvaleyrarskóla stöndum hönd í hönd
Ekkert mun slíta okkar vinabönd.
saman skínum skært sem kertaljós
því skólinn minn er mitt leiðarljós
-BRÚ -
Við hjálpumst alltaf að
nefndu stund og stað,
þá kem ég með
og stend með þér.
Umhverfið - pössum við vel
Og pössum hvort annað, líka jafn vel.
Erum vafin vinatryggð.
Það sem bætir lífið okkar er ábyrgð
- VIÐLAG -
Bjóðum hjálp, ef eitthvað er að
og tökum vel eftir, hugsum um það
Í amstri dagsins er mörgu að sinna
Það sem bætir lífið okkar er, samvinna.
- VIÐLAG Í KEÐJU
lag : Guðrún Árný. Texti : Palli ( Páll S. Sigurðsson) og Guðrún Árný
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:00 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/