Nesskólafréttir
Skólahald í samkomubanni
Enn samkomubann
Viljum við sérstaklega minna á eftirfarandi:
- Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma.
- Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi (árgangi) í skólastarfinu eiga ekki að vera saman utan skóla.
- Við erum ekki að heimsækja félaga og vini frá öðrum bæjum í nágrenni okkar
Höfum það hugfast að samkomubann er í gildi til 4. maí og er mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum, þetta er að hafast hjá okkur.
"HLÝÐUM VÍÐI"
4. maí hvað þá
Vorboðinn hjólað í skólann
Nú þegar snjóa tekur að leysa og götur verða greiðfærar fjölgar alltaf þeim nemendum sem koma í skólann á hjóli. Þann 1. janúar s.l. tóku ný umferðarlög gildi og hvetjum við foreldra til að kynna sér þau.
Nýju lögin má nálgast hér á vef Alþingis.
Hér á síðu Samgöngustofu er samantekt á helstu nýmælum laganna, skipt eftir flokkum.
Meðal nýrra atriða má nefna:
- Skylda barna til að nota hlífðarhjálm við hjólreiðar er færð í lög og nær nú til barna yngri en 16 ára í stað barna yngri en 15 ára.
- Barn yngra en níu ára má ekki hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð hefur 15 ára aldri.
- Í lögunum eru ákvæði er varða snjalltæki og bann við notkun þeirra gert skýrt, jafnt fyrir ökumenn vélknúinna ökutækja sem og fyrir hjólreiðamenn.
Fræðslugáttin minnir á sig
Á Fræðslugátt er allt námsefni Menntamálastofnunar sem til er á rafrænu formi. Í ljósi aðstæðna er þar einnig námsefni sem tímabundið hefur verið sett á rafrænt form og þannig gert aðgengilegra fyrir nemendur, kennara og foreldra.
Við hvetjum ykkur til þess að heimsækja Fræðslugáttina og skoða framboðið. Þar er til að mynda mikið af lestrarefni sem nýta má í lestrarátakinu Tími til að lesa. Þessa dagana hafa einmitt flestir góðan tíma til að lesa og þörfin fyrir hugarleikfimi hefur sjaldan verið meiri en nú.
Fræðslugátt er skipt niður í námsefni fyrir yngsta stig, miðstig og unglingastig. Einnig er þar hægt að nálgast annað efni. Undir annað efni er námsefni héðan og þaðan sem við höfum fengið ábendingar um að geti nýst skólasamfélaginu vel á þessum tímum.
Við hvetjum einnig áhugasama að skrá sig á póstlista til að fá fréttir af nýju námsefni og öðru sem tengist útgáfu námsefnis.
Fjórði, fimmti og sjötti bekkur
Nesskóli
Email: nes@skolar.fjardabyggd.is
Website: nesskoli.is
Location: Skólavegur 12, Neskaupstaður, Iceland
Phone: (354) 477-1124
Facebook: https://www.facebook.com/Nessk%C3%B3li-1629687307303414/
Twitter: @ekkienn