Fréttabréf Norðlingaskóla
1. tbl. - 19. ágúst 2019
UPPHAF KENNSLU
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 23. ágúst kl. 8:30 en í samráði við skólaráð Norðlingaskóla verður sú breyting gerð á upphafi skóladagsins að í vetur munu allir nemendur skólans hefja skóladaginn klukkan 8:30. Boðið verður upp á morgungæslu fyrir þá nemendur sem þess þurfa frá kl. 8:00 til 8:30 þeim að kostnaðarlausu. Aðalbygging skólans opnar klukkan 7:45 og Brautarholt opnar klukkan 8:15.
Fyrsta skóladaginn hitta umsjónarkennarar nemendur sína á heimasvæðum þeirra og kynna fyrir þeim starf vetrarins. Eins og áður byrjum við á vinnu sem miðar að því að kynnast hvert öðru og læra saman á umhverfið hér í Norðlingaholti; náttúru, staðhætti, byggð, afþreyingu o.fl. Unnið verður á margvíslegan hátt, bæði úti og inni og því er mikilvægt að nemendur komi með skjólgóðan fatnað í skólann og klæði sig eftir veðri, því í Norðlingaholti er ekki til vitlaust veður heldur einungis vitlaus klæðnaður.
Námskynningar verða í öllum árgöngum í haust og verður öllum foreldrum boðið að koma á þær í vikunni 9.-13. sept. Þær verða auglýstar nánar þegar nær dregur.
SKÓLAÁRIÐ 2019-2020
Stundatöflur fyrir 1.-4. bekk eru með því sniði að kennsla hefst kl. 8:30 og henni lýkur kl. 13:45 alla daga. Í 5.-7. bekk hefst kennsla kl. 8:30 alla daga og lýkur kl. 14:00. Í unglingadeild er kennslan með svipuðum hætti, kennsla hefst kl. 8:30 en skóladagarnir eru mislangir hjá þeim.
NÝR YFIRMAÐUR MÖTUNEYTIS
Mötuneyti skólans hefur starfsemi sína strax á fyrsta skóladegi. Morgunhressing eða svokölluð ávaxtastund verður einnig fyrir þá nemendur sem eru skráðir í hana strax á fyrsta degi. Því er mikilvægt að minna foreldra á að skrá börn sín í gegnum Rafræna Reykjavík.
Ingimar Óskar Másson matreiðslumeistari er nýr yfirmaður eldhússins okkar í Norðlingaskóla og bjóðum við hann hjartanlega velkominn! Meðal þeirra nýjunga sem verða í matartímanum er sú að nemendur munu skammta sér sjálfir í hádeginu sem mun eflaust mælast vel fyrir og það hefur einnig reynst vel í baráttunni við matarsóun. Ingimar vonast eftir góðu samstarfi við nemendur og foreldra í vetur og ef einhverjar spurningar varðandi mötuneytið vakna má hafa samband við hann: ingimar.oskar.masson@rvkskolar.is.
FRÍSTUNDAHEIMILIÐ KLAPPARHOLT
Norðlingaskóli heldur áfram að samþætta skóla- og frístundastarf. Frístundinni er fléttað inn í stundaskrár allra nemenda á aldrinum 6-9 ára. Þetta fyrirkomulag styrkir skólastarf yngstu nemendanna og eflir þá í félags- og samskiptafærni, eykur sjálfstraust þeirra og jákvæða framkomu. Þegar skóladeginum lýkur tekur svo við gjaldskyld þjónusta frístundaheimilisins. Frístundastarfsmenn vinna náið með kennurum í 1.-4. bekk. Þeirra hlutverk innan teymanna er að sjá um hópastarf, frístundatíma og stuðning við nemendur með sérþarfir. Með þessu fá börnin heildstæðara og betra nám. Foreldrar sem vilja að barnið þeirra sé í Klapparholti eftir að skóladegi lýkur þurfa að skrá börn sín í gegnum Rafræna Reykjavík.
Bókin Velkomin í Klapparholt var gefin út af Norðlingaskóla nú á dögunum og fá allir nemendur 1. bekkjar bókina að gjöf. Bókin var unnin af starfsfólki skólans þeim Elísabetu Hönnu og Birki Hallbjörnssyni og er frábær viðbót við hið góða starf sem fer fram í Klappó. Tilgangur bókarinnar er að hjálpa nýnemum að undirbúa sig fyrir komandi vetur á frístundaheimilinu Klapparholti. Bókin getur veitt þeim aukið öryggi í nýjum aðstæðum en í bókinni er farið yfir skipulag og uppsetningu frístundastarfsins og það nýja umhverfi sem krakkarnir munu koma til með að kynnast í vetur.
SKÓLABOÐUNARHEIMSÓKNIR
Skólaboðunarheimsóknir verða dagana 17. til 22. ágúst. Líkt og síðustu tvö ár verða nýir nemendur skólans heimsóttir (ásamt 1. bekk) og þeir nemendur sem færa sig yfir í nýjan námshóp (3., 5. og 8. bekkur). Starfsmenn skólans munu hafa samband við heimilin um tímasetningu á heimsóknunum. Við viljum vekja athygli á því að öll skólaboðunargögn eru aðgengileg hér á heimasíðu skólans. Þar eru m.a. stundaskrár og bréf frá umsjónarteymum.
GANGUR VIÐ BRAUTARHOLT OG FLUTNINGUR BÓKASAFNSINS
Vegna fjölgunar nemenda á miðstigi hefur nú verið ákveðið að auka við húsnæðið í Brautarholti með því að byggja fatahengisgang framan við það og auka þannig einnig við kennslurýmið. Nemendur þurfa þá ekki lengur að ganga í gegnum allar stofurnar til að komast leiðar sinnar. Þetta verður mikil bót á því annars ágæta skólahúsnæði sem er í Brautarholti. Vonir stóðu til að framkvæmdir hæfust í sumar en það dróst því miður. Nú hafa borgaryfirvöld samþykkt að hefja framkvæmdir sem allra fyrst og er það vel. Þar til gangurinn verður tilbúinn munu nemendur á miðstigi nýta það rými sem áður hýsti bókasafnið og heitir Hátún en safninu hefur verið fundinn staður á neðri hæðinni í aðalbyggingu skólans við Árvað.
ÁRÍÐANDI!
Ef breytingar hafa orðið á högum nemenda skólans í sumar s.s. aðsetursbreytingar, ný eða breytt símanúmer og/eða netföng eru forráðamenn vinsamlegast beðnir um að tilkynna það til skólans í s: 411-7640 eða í tölvupósti á netfang: nordlingaskoli@rvkskolar.is sem allra fyrst. Við viljum biðja alla forráðamenn um að yfirfara upplýsingar bæði um nemendur og aðstandendur á Mentor.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 411-7636
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli