Vikupistillinn
Tímabilið 17. - 23. september
Punktar
- Opnað hefur verið fyrir hjá Skólagátt:
- Lesferill-lesskimun fyrir nemendur í 1. bekk sem þarf að framkvæma fyrir lok september.
- Lesferill fyrir nemendur í 2.-10. bekk sem þarf að framkvæma fyrir lok september.
- Við viljum biðja kennara að fara yfir hvort ekki sé örugglega búið að leiðrétta orðalag og laga kvarðann (hæfni 5 tákn) í námskránni/hæfnikortinu í Mentor, hver kennari í sínu fagi/fögum. Munum að leita í síunni og byrja á hvk 18 - 19 ..
Mánudagur 17. september
Þriðjudagur 18. september
- Samvera miðdeildar kl. 8:20. Fulltrúi frá Samgöngustofu kemur í heimsókn og verður með umferðarfræðslu.
- Nemendur elstu deildar kjósa sér formann nemendaráðsins og verða framboðsræður á sal kl. 12:50 og síðan kjósa nemendur í heimastofum.
- Samvera hjá elstu deild kl. 13:25. Fulltrúi frá Samgöngustofu kemur í heimsókn og verður með fræðslu er lýtur að vespum.
- Deildarfundir eru kl. 15:00 - 16:00.
Miðvikudagur 19. september
- Samvera yngstu deildar kl. 8:20. Fulltrúi frá Samgöngustofu kemur í heimsókn og verður með umferðarfræðslu.
Nemendaverndarráðsfundur kl. 13:15.
Fimmtudagur 20. september
- Samræmd könnunarpróf í íslensku fyrir 7. bekk.
- Aðalfundur starsmannafélagsins í fyrirlestrarsalnum kl. 15:00 - 16:00.
Föstudagur 21. september
- Samræmd könnunarpróf í stærðfræði fyrir 7. bekk.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Starfsmannamál
Anna Margrét kennari í Bjargi hefur sagt upp sínu starfi og óskaði eftir að láta af störfum síðasta mánudag. Þökkum við henni kærlega fyrir samstarfi og óskum við henni góðs gengis.
Haustfundir með foreldrum
Áhugasamir hlustendur.
Kíkt á Von mathús
Það var notaleg stemning á Von mathúsi síðasta föstudag. Kolbrún, takk fyrir berjasaftina.
Kíkt á Von mathús
Það var notaleg stemning á Von mathúsi síðasta föstudag. Kolbrún, takk fyrir berjasaftina.r.
Tiltekt vikunnar
Við ætlum að biðja nemendur í 6. SL og Svandísi umsjónarkennara þeirra að sjá um tiltekt á skólalóðinni þessa vikuna.
Afmælisdagar í september
Elva Brá á afmæli 2. sept., Marta Gígja á afmæli 7. sept., Sigrún Ö. á afmæli 9. sept., Hrönn G. á afmæli 12. sept., Ásta á afmæli 16. sept., Guðrún H. á afmæli 21. sept., Hafdís á afmæli 22. sept., Hrönn Á. á afmæli 23. sept., Aðalheiður G. á afmæli 26. sep.
Á döfinni
- Evrópski tungumáladagurinn.
- Samræmd könnunarpróf fyrir 4. bekk eru 27. og 28. september.
- Nemendur í 10. bekk fá til sín dönsku gestina þann 24. september.
- Forvarnardagurinn er 3. október, nemendur í 9. bekk hafa tekið þátt í þeirri dagskrá.
- Alþjóðadagur kennara er 5. október.
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=jvS6zqJ86W4
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200