Vikupóstur - Unglingadeild
Föstudagurinn 1. nóvember 2019
Sæl og blessuð
Takk fyrir góða viku öllsömul. Það var ánægjulegt að hitta foreldra á viðtalsdaginn og eiga spjall um námið og líðan nemenda í skólanum. Það er ekki hægt að predika nógu mikið hvað gott samstarf milli heimilis og skóla skiptir miklu máli og því hvetjum við foreldra til að fylgjast vel með námi barna sinna og hafa samband við okkur ef einhverja spurningar vakna.
Í vikunni fengu nemendur í 10. bekk Geðheilbrigðisfræðslu og lagt var fyrir nemendur í 9. bekk skimunarprófið GRP 14 en það er ritmálspróf sem getur gefið vísbendingar um leshömlun og erfiðleika við lesskilning.
Á þriðjudaginn 5. nóvember kl. 13 er nemendum í 10. bekk boðið í heimsókn í Menntaskólann á Akureyri og fá þeir frí í vali sem það þurfa.
Í dag var nemendadagurinn haldin hátíðlegur og vakti hann mikla lukku að vanda. Uppbrotsdagar gegna mikilvægu hlutverki við að viðhalda góðum skólabrag.
Að lokum viljum við minna á að fyrsta vika í hverjum mánuði verður símalaus. Það er því símalaus vika í næstu viku. Nemendur þurfa kannski að gera ráðstafanir eins og að koma með heyrnartól með snúru ef þeir vilja tengja við tölvuna til að hlusta á tónlist og sumir þurfa að vera með aðgangsupplýsingar á hreinu fyrir hljóðbókasafnið til að geta innskráð sig í tölvu í staðin fyrir í símanum.
Eigið góða helgi