Vikupistillinn
Tímabilið 30. september - 6. október 2019
Heilræði vikunnar
"Þeir ofvirku vinna alltaf"
að minnsta kosti í uppklappinu
Júníus Meyvant
Sýnum ábyrgð við notkun síma og annarra snjalltækja
Punktar
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt fundaskipulagi ársins.
- Við viljum biðja kennara um senda umsjónarmenn með ávaxtaboxinn upp í móttökueldhús fyrir kl. 11:00 á daginn.
- Kennsla ÍSAT (íslenska sem annað tungumál) færist úr stofu 12a í stofu 15/upplýsingaver.
- BH-Gestir er nýtt þráðlaust net sem er fyrir einkatæki starfsmanna, nemenda og gesta. Netið er opið frá kl. 6:00 - 18:00. BH-Mobile fer að loka.
Mánudagur 30. september
- Nú er allra síðasti dagurinn til að Lesfimiprófa nemendur og setja niðurstöður í Skólagáttina. Munið eftir að skrá niðurstöður í Skólagáttina og einnig inn á Mentor. Hér má nálgast leiðbeiningarglærur varðandi Mentor.
- Göngum í skólann - skráning í yngri og miðdeild.
- Verið - miðdeild - 6. bekkjarkvöld.
- Verið - elsta deild - kraftakeppni Versins.
Þriðjudagur 1. október
- Samvera.
- Göngum í skólann - skráning í yngri og miðdeild.
- VR kynning fyrir nemendur í 10. bekk kl. 12:40 í fyrirlestrarsalnum.
- Heimanám á vegum Rauða krossins er á bókasafninu frá kl. 13:30 - 15:00. Hvetja nemendur til að nýta þennan tíma.
- Á fundartíma eru deildarfundir.
Kl. 16:30 - 19:30 vinnum við starfsdaginn af okkur.
- Kl. 16:30 - 18:00 teymisfundir A.
- Kl. 18:00 matur í boði skólans.
- Kl. 18:30 - 19:30 unnið að skipulagi kennslu.
Miðvikudagur 2. október
- Samvera í umsjón 4. IVJ.
- Skiladagur á blaðinu Göngum í skólann.
- Forvarnardagurinn þar sem nemendur í 9. bekk taka þátt, frá kl. 10 - 12 í fyrirlestarsalnum.
- Fundur í nemendaverndarráði kl. 14:10 - 15:00 inni hjá námsráðgjafa.
- Verið - miðdeild - feluleikur.
- Verið - elsta deild - Lip Sync Battle.
Fimmtudagur 3. október
- Skólastjórnendafundur kl. 9:00.
- Fundur í eineltisteyminu kl. 14:00 - 15:00, inni hjá námsráðgjafa.
- Á fundartíma eru teymisfundir A.
Föstudagur 4. október
- Verið - miðdeild - bíókvöld.
- Verið - elsta deild - Kahoot.
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Aðgangur hefur verið stofnaður að Snöru fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar. Aðgangurinn er fyrir starfsmenn og nemendur og hugsað til nota í kennslunni eins og þarf.
Afmælis
Takk fyrir okkur Hrönn og til hamingju með daginn. Einnig takk fyrir ísinn Hafdís.
Bókasafn
Enn eru bækur ritskoðaðar út um víða veröld. Takk fyrir að minna okkur á freslið Sif.
Nordplus
Nemendur í 10. MS ásamt danska vinabekknum fór í heimsókn í Hellisheiðarvirkjun á miðvikudaginn.
Tiltekt vikunnar
Við biðjum nemendur í 8. SB undir stjórn Sigríðar umsjónarkennara að taka til á skólalóðinni.
Fréttir úr Bjargi
Síðasti dagur Destiny Sunday í 8.SB er föstudagurinn 27. september, en hann er að flytja aftur til Ítalíu. Við þökkum honum samveruna og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.
Á mánudaginn 30. september byrjar Londrit Avdulahi í Bjargi.
Ytra mat Menntamálastofnunar
- Hér eru upplýsingar um ytra mat Menntamálastofnunar.
- Hér má nálgast talglærurnar sem sýndar voru á kennarafundinum.
- Hér má nálgast matsblað fyrir vettvangsathugun í kennslustund hjá kennurum.
Afmælisdagar í október
Bragi á afmæli þann 15. október. Við óskum honum innlega til hamingju með afmælið :-)
Á döfinni
- Október er mánuður myndlistar.
- Flensusprauta verður í boð Hafnarfjarðarbæjar þriðjudaginn 8. október kl. 11:15 - 12:15. Sprautað verður hér í skólanum.
- Ólympíuhlaup ÍSÍ (Norræna skólahlaupið) verður 9. október kl. 10:00.
- Bóka- og bíóvika 11. - 17. október. Nemendum í 4. bekk er boðið á opnunarhátíð í Gaflaraleikhúsinu.
- Vetrarfrí 21. og 22. október.
- Námsviðtöl 30. október.
- Nemendur í 6. bekk eru Logos skimaðir í október og nóvember.
- Í október eru nemendur í 1. bekk framburðarskimaðir og einnig lesskimaðir.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200