Fréttabréf Garðaskóla
Október 2016 - 40. árgangur - 2. tölublað
Forvarnir í öruggu samfélagi
Kæru nemendur, forráðamenn og samstarfsfólk.
Í þessu fréttabréfi beinum við athyglinni að því fjölbreytta forvarnarstarfi sem fram fer í Garðaskóla. Forvarnarvika er nú haldin í Garðabæ í fyrsta sinn og við fögnum því verkefni. Forvarnarvikan er gott tækifæri til að draga fram í dagsljósið allt það góða velferðarstarf sem unnið er meðal foreldra, starfsfólks skóla og félagsmiðstöðvar, nemenda og í nærsamfélagi skólans.
Samfélagið okkar er umhyggjusamt. Stundum getur litið svo út að umhyggja nálgist afskiptasemi en þá ber að hafa það í huga að markmiðið er að tryggja vellíðan og velferð nemenda, sem er ein af grunnstoðunum í daglegu lífi Garðaskóla. Forvarnaráætlun skólans byggir á jákvæðum skólabrag og uppbyggilegum viðbrögðum við vanlíðan og þeim mistökum sem okkur getur öllum orðið á. Fulltrúar nemenda og foreldra, starfsfólk skólans og félagsmiðstöðvarinnar Garðalundar fylgjast í sameiningu með nemendasamfélaginu, rýna niðurstöður rannsókna um hagi og líðan ungs fólks og skipuleggja sérstök forvarnarverkefni út frá þeim þörfum sem birtast. Verkefnin eru fjölbreytt og dreifast á nokkur svið: uppbygging sjálfsmyndar og félagsþroska; kynheilbrigði og jafnrétti; varnir gegn notkun vímuefna; og síðustu ár hefur mikil áhersla verið lögð á umræðu um samskipti á netinu og notkun snjalltækja - en það er einmitt áhersluatriði forvarnarvikunnar að þessu sinni.
Við vonum að forráðamenn gefi sér tíma til að fylgjast með þeim atriðum sem bent er á í þessu fréttabréfi. Stöndum saman vörð um velferð og öryggi unglinga í Garðabæ.
Með samstarfskveðju,
Brynhildur Sigurðardóttir, skólastjóri Garðaskóla
Stefnan í Garðabæ
Forvarnarstefna Garðabæjar 2014-2018 er aðgengileg á vefnum.
Áhersluþættir stefnunnar eru:
- æska án vímuefna
- virðing fyrir sjálfum sér og öðrum
- virkni og þátttaka
- samfélag án ofbeldis.
Ungt fólk
http://www.gardabaer.is/thjonusta-i-gardabae/forvarnir-og-fraedsla/forvarnir/rannsoknir-skyrslur/
Velferð barna
Forvarnarvika Garðabæjar
Forvarnarvika er haldin í Garðabæ vikuna 10. – 14. október. Þetta árið er lögð megin áhersla á snjalltækjanotkun, líðan nemenda og svefnvenjur. Tilgangurinn er að vekja okkur til umhugsunar um tengsl snjalltækjanotkunar við líðan okkar og þau áhrif sem hún kann að hafa á svefnvenjur.
Yfirskrift vikunnar er Ertu gæludýr símans þíns? en slagorðið er komið frá nemanda í Sjálandsskóla. Í framhaldinu var efnt til myndasamkeppni í öllum grunnskólum Garðabæjar í tengslum við slagorðið og tveir nemendur í Garðaskóla fengu verðlaun fyrir myndir sínar, þau Laufey Sara Malmquist og Óttar Egill Arnarsson, bæði í 10. bekk. Myndirnar þeirra verða m.a. notaðar á veggspjöld sem gerð hafa verið til að vekja athygli á forvarnarvikunni og mynd Óttars Egils má sjá hér að ofan.
Mánudaginn 10. október kom Andri Bjarnason sálfræðingur í Garðaskóla og hitti alla nemendur skólans. Andri ræddi um snjalltækjanotkun og virkjaði nemendur í umræður um efnið. Umsjónarkennarar sáu sama dag um fræðslu og umræður um markaðsáhrif samfélagsmiðla í bekkjum sínum, þar á meðal Instagram.
Þriðjudaginn 11. október sótti fjöldi forráðamanna fræðslufund forvarnarnefndar í Sjálandsskóla um ofnotkun internetsins þar sem móðir sagði frá reynslu sinni og Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur flutti erindi.
Auk fræðsluerinda fyrir nemendur og forráðamenn býður Garðabær starfsmönnum skólanna fjölbreytta fræðslu á sviði sjálfsmyndar, félagsþroska, samskipta og snjalltækjanotkunar.
Ásta Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
Forsetinn heimsótti nemendur í 9. bekk
Svefn
er
nauðsyn
Afleiðingar af of litlum eða slæmum svefni eru t.d.
- líklegri til að veikjast
- pirringur
- minni einbeiting
- sækjum í óhollari mat
- hreyfum okkur minna
- depurð, kvíði,
Stafræn borgaravitund
„Stafræn borgaravitund (e. digital citizenship) er að hafa þekkingu, færni og viðhorf sem þarf til að sýna ábyrga og virðingaverða hegðun þegar tækni er notuð eða þegar tekið er þátt í stafrænu umhverfi“ (Stafræn borgaravitund).
Stafræn borgaravitund er tiltölulega nýtt hugtak sem kemur þó inn á alla þætti skólastarfs á 21. öldinni, sérstaklega í grunnskóla með opið, þráðlaust net. Í Garðaskóla er markvisst farið í stafræna borgaravitund í upplýsingatæknitímum hjá 8. bekk en hjá eldri nemendum fléttast þetta inn í faggreinar og almenn samskipti milli nemenda og starfsfólks. Meðal annars má nefna umræður um höfundarétt og upplýsingaleit, almennar samskiptareglur, viðbrögð við einelti í gegnum samfélagsmiðla, áhrif tækninnar á daglegt líf okkar og hvaða stafrænu fótspor nemendur vilja skilja eftir sig á leið sinni út í lífið.
Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi
Forvarnir á vegum heilsugæslu
Heilsugæslan í Garðabæ kemur að forvarnarmálum í Garðaskóla með fræðsluinnleggi í öllum árgöngum. Í 8. bekk skoðum við hvað hefur áhrif á líkamsímynd og hvernig umhverfið, samfélagsmiðlar og markaðsetning getur haft áhrif á hvernig við upplifum okkur sem einstaklinga. Við ræðum um það að ábyrgðin er okkar þegar kemur að því að taka ákvarðanir varðandi eigin heilsu. Í 9. bekk skoðum við hvernig við förum að því að taka ábyrgð á eigin kynheilbrigði með virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum. Þetta er einnig umfjöllunarefni í 10. bekk og að auki ræðum við almennt um ábyrgð á eigin heilsu.
Ása Sjöfn Lórensdóttir, skólahjúkrunarfræðingur
Umferðaröryggi
Unglingar kunna almennar umferðarreglur og í Garðaskóla er því lögð áhersla á að þeir fylgi þessum reglum og sýni ábyrga hegðun í umferðinni. Í umsjónarhópum er fjallað um mikilvægi þess að nota hjálm á reiðhjólum og rafhjólum. Nemendum í 10. bekk stendur til boða valgreinin Fornám að ökunámi. Elías Sólmundarson kennir valgreinina og segir m.a.:
„Í valáfanganum er fjallað um þær reglur sem eru í gildi í umferðinni og að þekking á þeim skapar öryggi fyrir alla. Nemendur tjá sig á ýmsa vegu um málefni sem tengjast umferðinni, s.s. öryggi, hættur og ábyrgð.“
Eineltis-áætlun
Garðaskóli vinnur skv. áætluninni Gegn einelti í Garðabæ. Mál er varða samskipti og líðan nemenda eru forgangsmál hjá starfsmönnum skólans og eru unnin í góðu samstarfi við forráðamenn.
Í eineltisteymi skólans sitja námsráðgjafarnir Ásta og Auður, ásamt Ástu Huld deildarstjóra.
Áfalla-áætlun
Skóla-bragur
Fréttabréf Garðaskóla
Misstir þú af fyrsta fréttabréfi haustsins?
Þar var fjallað um ýmis hagnýt atriði sem gott er að þekkja til í starfi skólans.
Þú getur nálgast öll fyrri frétttabréf á vef skólans.
Garðaskóli
Email: gardaskoli@gardaskoli.is
Website: http://gardaskoli.is/
Location: Garðaskóli, Gardabaer, Iceland
Phone: 590-2500
Facebook: https://www.facebook.com/Garðaskóli-635137559954040/?ref=ts&fref=ts