Menntabúðir
Egilsstaðskóli 19. febrúar
#Austmennt
Menntabúðir #Austmenntar númer tvö á þessu skólaári verða haldnar í Egilsstaðskóla mánudaginn 19. febrúar kl. 16:15-18:00. Sem fyrr fjalla menntabúðirnar um upplýsingatækni í skólastarfi.
Það eru skólar á Fljótsdalshéraði sem standa saman að menntabúðunum í Egilsstaðaskóla
Dagskrá
Kl. 16:15-16:25 Móttaka í matsal
Kl. 16:25-16:55 App hraðstefnumót
Kl. 17:00-17:30 Snjalltími
Kl. 17:30-18:00 Menntabúðir, yfirlit
Upplýsingatækni í skólastarfi
#Austmennt er samstarfsverkefni skóla á Austurlandi um menntabúðir í upplýsingatækni í skólastarfi. Er þetta skólaár fyrsta skólaárið þar sem þetta fyrirkomulag er prófað. Menntabúðirnar eru opnar öllum áhugasömum kennurum og skólastjórnendum af öllum skólastigum.