HÚSBRÉFIÐ
14. ÁRG., 2. TBL
DAGSKRÁ 3. september - 7. september
MÁNUDAGUR 3. september
Nemendaverndarráðsfundur í BS
ÞRIÐJUDAGUR 4. september
Nemendaverndarráðsfundur í HS 14:15
Fundarherbergi
MIÐVIKUDAGUR 5. september
Fagfundur í íslensku kl. 14:45.
4. bekkur fundar - samræmd próf. Salurinn í HS-15:00
7. bekkur fundar - samræmd próf. Stofa ? í BS - 15:00
Göngum í skólann hefst á landsvísu.
Vinabekkir hittast í Hamarsskóla
Skipulag auglýst eftir helgi.
FIMMTUDAGUR 6. september
Stjórnendafundur í Hs. kl. 14:30
FÖSTUDAGUR 7. september
Góð regla að yfirfara vinnustund á föstudögum.
Takk fyrir góða skólabyrjun og góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Göngum í skólann hefst formlega á landsvísu miðvikudaginn 5. september og stendur til 10. október. Við hvetjum alla nemendur og þá foreldra sem hafa tök á, til að ganga í skólann þennan tíma og taka þátt í átakinu.
- Heimasíða Göngum í skólann er http://www.gongumiskolann.is/
- Keppnin um Gullskóinn verður í 2.- 7. bekk.
- Dagur læsis 8. sept. Á degi læsis er fólk hvar sem er í heiminum hvatt til þess að skipuleggja læsisviðburði. Það má gera með því að lesa upp, segja sögur, fara með ljóð eða nota tungumálið á annan hátt til ánægjulegra samskipta.
- Náttúrurvísindadagar á unglingastigi verða í vikunni 10. - 14. september.
- Dagur íslenskrar náttúru er 16. september
- Fyrstu menntabúðirnar verða 19. september. Nánar auglýstar síðar.
- Samræmdpróf hjá 7. bekk eru 20. og 21. september.
- Samræmdpróf hjá 4. bekk eru 27. og 28. september.
- Kennarar í 4. og 7. bekk, Upplýsingar um prófin er að finna á https://mms.is/samraemd-konnunarprof.
- Evrópski tungumáladagurinn er 26. september.
- Haustþing kennara er 29. september.
Tilkynningar !!
- UTÁ- þarfaplattar: Þeir sem eiga platta finna þá til. Eigum að hafa þá sýnilega.
- Starfsmannafélag GRV: Ósvissuferð .????
- Örnefnagöngur og umhverfisstígar eru á heimasíðu GRV http://grv.is/skrar/file/namid/gonguleidir-grv-sept-2013.pdf ???
- Facebooksíður Grunnskólans: GRV fræðsla, Starfsmannafélag Grunnskóla Vestmannaeyja.
- Job shadowing: 10. - 15. september. Eva Kára veit ALLT um það :D
Afmælisbörn í september
Arnheiður Pálsdóttir 4. september
Daníel Geir Hjörvarsson 14. september
Sæfinna Ásbjörnsdóttir 14. september
Nina Ann Dau 16. september
Erna Tómasdóttir 18. september
Lára Skæringsdóttir 25. september
Hildur Jónasdóttir 26. september
Sigríður Hreinsdóttir 28. september
Dóra Guðrún Þórarinsdóttir 29. september
Svanhvít Friðþjófsdóttir 29. september
Uppskrift vikunnar - Kúskússalat frá Miðjarðarhafinu
Kúskússalat
safi og fínrifinn börkur af 1/2 sítrónu
salt og pipar
250 gr kúskús
300 ml heitt vatn
1 tsk malað kummin og 1/2 tsk kanill
4 þurrkaðar apríkósur eða 2 msk rúsínur
2 rauðar paprikur, grillaðar og afhýddar
1 krukka Dala fetaostur í olíu, t.d með tómötum og ólífum
½ lítill rauðlaukur fínt saxaður
2 tómatar saxaðir
4 msk af fínsöxuðum ferskum eða þurrkuðum kryddjurtum (4-6 msk) t.d myntu, steinselju, basilíku og kóríander
Aðferð:
Lagið kúskúsið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum en bætið kummini, kanel, apríkósum eða rúsínum og svolitlu salti út í vatnið sem hellt er yfir kúskúsgrjónin. Skerið paprikurnar í litla bita og hellið olíunni af fetaostinum. Blandið papriku og fetaosti saman við kúskúsið ásamt rauðlauk, tómötum, sítrónusafa, fínrifnum sítrónuberki og kryddjurtum eftir smekk. Hrærið vel og kryddið með pipar og salti eftir smekk.
Hrós vikunnar fá:
Allir flottu hlauparar Grunnskóla Vestmannaeyja!!!
Óskar veðurfræðingur sem hyggst nú stofna vefsíðuna oskavedur.is
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.