Fréttabréf Norðlingaskóla
30. september 2019
Efni þessa fréttabréfs
- Byrjun skólaársins
- Samráðsdagur 1. október
- Rósaballið 3. október
- Ólympíuhlaup ÍSÍ og Göngum í skólann
- Lestrarnámskeið fyrir foreldra 1. bekkinga 15. október
- Vetrarleyfi
- Vinaverkefni á miðstigi
- 3. bekkur á landnámssýningu
Byrjun skólaársins
Skólaárið hefur farið vel af stað, síðustu daga hefur verið einstaklega fallegt haustveður hér í holtinu okkar og stígvélin hafa fengið smá hvíld. Nemendur og starfsfólk hafa haft í nægu að snúast í hinum ýmsu verkefnum og fjölbreyttum smiðjum, nemendur í 4. og 7. bekk þreyttu samræmd könnunarpróf í september og gekk það vel fyrir sig. Við þökkum þeim fjölmörgu foreldrum fyrir komuna sem mættu á námskynningar og minnum á að þið eruð ávallt velkomin í skólann!
Samráðsdagur 1. október
Nú ættu allir að hafa bókað viðtal hjá umsjónarkennara fyrir samráðsdaginn sem er þriðjudaginn 1. október en þá hitta umsjónarkennarar nemendur ásamt forráðamönnum og fara yfir stöðu hvers og eins. Klapparholt er opið fyrir þá nemendur sem eru skráðir sérstaklega þennan dag.
Rósaballið 3. október
Árlegt rósaball unglingadeildar fer fram fimmtudaginn 3. október. Nemendur í 10. bekk sækja nemendur 8. bekkjar og fylgja þeim á ballið þar sem öll unglingadeildin skemmtir sér saman.
Ólympíuhlaup ÍSÍ og Göngum í skólann
Mánudaginn 7. október fer hið árlega Ólympíuhlaup ÍSÍ fram í Norðlingaskóla (áður Norræna skólahlaupið). Nemendur geta valið um þrjár vegalengdir: 2.5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu eru hamborgarar fyrir alla í boði skólans og nemendur fá viðurkenningarskjal.
Hlaupið markar jafnframt upphaf átaksins Göngum í skólann sem fer fram vikuna 7.-11. október en þessu alþjóðlega verkefni er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla.
Lestrarnámskeið fyrir foreldra 1. bekkinga 15. október
Lestrarnámskeið verður fyrir foreldra 1. bekkinga þann 15. október klukkan 17:00 og 19:30. Við hvetjum foreldra til að fjölmenna á þennan mikilvæga viðburð!
Vetrarleyfi 24.-28. október
Vetrarleyfi er í grunnskólum Reykjavíkur 24.-28. október. Þá er lokað í skólanum og frístund en við hittumst aftur endurnærð þriðjudaginn 29. október.
Vinaverkefni á miðstigi
Undanfarnar vikur hefur miðstigið unnið með vináttuna og það hvað orð geta sært mikið. Nemendur unnu saman í hópum að því að skapa sína eigin manneskju á þeirra reki, lögðu í það mikla vinnu og alúð og sköpuðu henni sögu, tilfinningar og umhverfi. Að því loknu skrifuðu þau á mennskjuna öll þau ókvæðisorð sem þau höfðu heyrt notuð á miðstigi og notað sjálf, rifu manneskjuna í tætlur og þurftu svo að tjasla henni saman aftur með límband eitt að vopni. Eins og gefur að skilja var það afar vandasamt verk og í raun ógerlegt án augljósra öra. Afrakstur verkefnisins hangir uppi í báðum anddyrum Brautarholts til stöðugrar áminningar um að orð særa og skilja eftir ör. Hér má sjá fleiri myndir.
3. bekkur á landnámssýningu
3. bekkur heimsótti Landnámssýninguna í september. Heimsóknin er hluti af smiðjum og nemendur ferðuðust á sýninguna með strætó. Á sýningunni fræddust krakkarnir um lífið á Íslandi við landnám og sáu margt forvitnilegt. Hér má sjá fleiri myndir frá heimsókninni.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 411-7640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli