Vikupóstur
16. - 27. mars
Kæra samstarfsfólk
Nú eru aldeilis óvissu tímar í þjóðfélaginu. Nú er komið í ljós að það verði samkomubann í 4 vikur á landinu. Allt skólakerfið á Íslandi þarf svo sannarlega tíma til melta þessar upplýsingar og munum við senda ykkur póst sem fyrst með ítarlegri upplýsingum.
Varðandi árshátið og útivistardag þá koma upplýsingar um það á næstu dögum.
Heilsufarsleg atriði starfsmanna og inflúensueinkenni
1. Starfsmenn fylgjast með eigin heilsu og fara heim ef þeir finna fyrir einkennum og leita læknis ef þurfa þykir.
2. Starfsmenn koma ekki til vinnu ef þeir eru veikir og er ráðlagt að vera heima frá því einkenna verður vart. Inflúensa er mest smitandi fljótlega eftir að sjúkdómseinkenni byrja. Enda þótt veirurnar haldi áfram að dreifast í allt að fimm daga frá upphafi veikinda (sjö daga hjá börnum), dregur smám saman úr fjölda þeirra og um leið minnkar smithættan.
3. Starfsmaður sem mætir veikur af inflúensu til vinnu er umsvifalaust beðinn um að fara heim en í almennum sóttvarnaráðstöfunum samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/2007 felst að hver sá sem telur sig smitaðan af smitsjúkdómi hefur þá skyldu að fara varlega og gera sér far um að smita ekki aðra.
4. Einkenni smits. Sjá á vef landlæknisembættisins.
Reglur um hreinlæti og meðhöndlun úrgangs
1. Þvoðu þér reglulega um hendurnar (einkum fyrir máltíðir). Handþvottur verndar gegn beinni og óbeinni snertingu við inflúensuveiruna. Bein snerting er meðal annars að taka í höndina á sýktum einstaklingi sem hefur snert munn sinn eða nef eða haldið fyrir vitin til að hósta eða hnerra. Óbein snerting felst í að snerta hlut sem smitaður einstaklingur hefur handleikið, til dæmis hurðarhún eða notaða bréfþurrku.
2. Notaðu bréfþurrkur til að hylja nef og munn þegar þú hnerrar eða hóstar. Úðadropar úr vitum berast aðeins stutta leið, innan við einn metra. Þeir sem standa næst einstaklingi sem sem hnerrar eða hóstar án þess að halda fyrir vitin eru í hvað mestri smithættu. Að halda fyrir munn og nef dregur úr líkum á smiti.
3. Hentu notuðum bréfþurrkum beint í ruslið. Inflúensuveirur geta lifað tímabundið utan líkamans og hægt er að smitast með því að snerta hluti sem nýlega hafa mengast, svo sem vasaklúta eða bréfaþurrkur, eða með því að taka í hönd smitaðs einstaklings.
4. Haltu fyrir vitin ef bréfþurrkur eru ekki til taks. Þegar bréfþurrkur eru ekki við hendina skaltu halda fyrir nef og munn og þvo hendurnar strax á eftir eða hnerra á handlegginn eða í olnbogabótina til að hindra dreifingu veiranna.
5. Notuðum bréfþurrkum skal henda strax í lokaðar fötur sem í er plastpoki. Fjölga þarf ruslafötum tímabundið. Loka þarf plastpokum strax.
Góða helgi!
Bryndís, Alla og Heimir.
Mánudagur 16. mars
Leyfi: Ester, Margrét
Þriðjudagur 17. mars
Skíðadagur í Hlíðarfjalli – Lokaákvörðun tekin á mánudaginn.
Nefndarstörf kl. 14:45/ árshátíðarnefnd fundar.
Leyfi: Margrét
Miðvikudagur 18. mars
Bryndís á skólastjórafundi kl. 8-10
Leyfi: Margrét, Heimir og Anna Margrét
Fimmtudagur 19. mars
Nemendaverndarráðsfundur kl. 9:00 – 10:00
Leyfi: Margrét og Anna Margrét
Föstudagur 20. mars
Stjórnendafundur kl. 8:30 – 9:30
Skólastjórnendur á fundi FSNE kl. 13:00
Leyfi: Erla, Margrét og Anna Margrét
Mánudagur 23. mars
Kennaranemar í heimsókn hjá íþróttakennurum og unglingadeild
Leyfi: Halla, Margrét
Þriðjudagur 24. mars
Kennaranemar í heimsókn hjá íþróttakennurum og unglingadeild
Stjórnendafundur kl. 8:30 – 9:30
Vímuefnafræðsla hjá 10.bekk klukkan 10:30 – 12:30 kynjaskipt
Kennarafundur 14:45 – nánari dagskrá síðar
Leyfi: Margrét
Miðvikudagur 25. mars
Leyfi: Margrét
Fimmtudagur 26. mars
Nemendaverndarráðsfundur 9:00-10:00
Leyfi: Margrét
Föstudagur 27. mars
Stjórnendafundur kl. 8:30 – 9:30
Leyfi: Vala og Margrét