Fréttabréf Vesturbæjarskóla
Fréttir og upplýsingar um skólastarfið í Vesturbæjarskóla
Skólastarf eftir páska
Þriðjudaginn 6. apríl er starfsdagur og þá er frí hjá nemendum. Skóli hefst aftur eftir páskafrí miðvikudaginn 7. apríl. Engin breyting verður á skólastarfi eftir páska. Starfsfólk þarf að gera nokkrar ráðstafanir vegna sóttvarna eins og að vera með grímur, fylgja nálægðartakmörkunum og skipta sér á kaffistofur. Því miður getum við enn ekki boðið foreldrum inn í skólann.
Óskilamunir
Samsöngur
Fundir í Réttindaráði
Skólapúlsinn
Sumardagurinn fyrsti 22. apríl
Barnamenningarhátíð 20. - 25. apríl
Barnamenningarhátíð fer fram í apríl á hverju ári og er tileinkuð listum og menningu fyrir börn, með með börnum og ekki síst sköpunarverkum barna. Börn í 4. bekk tóku þátt í að semja lag hátíðarinnar eins og hefð er fyrir.
Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og fjölbreyttir viðburðir fara fram á menningarstofnunum, grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, listaskólum og víðar. Hátíðin rúmar allar listgreinar sem börn og fjölskyldur þeirra geta notið sér að kostnaðarlausu. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með því sem verður í boði og taka þátt.