Nemandi vikunnar
13.-24. febrúar - löng vika!
Móheiður Elín er nemandi vikunnar
Nafn: Móheiður Elín Margeirsdóttir
Gælunafn: Móa
Bekkur: 7. bekkur
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Enska og heimilisfræði
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Fara til Danmerkur
Áhugamál: Að syngja og fótbolti
Uppáhaldslitur: Fjólublár og ljósblár
Uppáhaldsmatur: Sushi
Uppáhaldssjónvarpsefni: Modern family
Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Justin Bieber og Taio Cruz
Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Dalvík og Haukar
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Barnalæknir
Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Ég myndi velja England, af því mig hefur alltaf langað að fara þangað
Ef þú verður fræg þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða fræg? Að syngja
Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Veit ekki
Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Fullt af peningum, svo þau gætu keypt föt og mat
Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Lyf sem læknar krabbamein
Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Að gefast ekki alltaf upp, að halda alltaf áfram en ekki stoppa
Við þökkum Móheiði Elínu kærlega fyrir skemmtileg svör.