Snjalli skólinn okkar
Þemadagar í Setbergsskóla 2018
Dagana 14. - 16. mars
Hefðbundið skólastarf var lagt til hliðar, bekkjarbönd rofin og unnið að ýmsum verkefnum í aldursblönduðum hópum.
Að þessu sinni var þemað „Snjalli skólinn minn“ og vísar til þess að á flestum stöðvum voru unnin verkefni þar sem smáforrit eða tölvutækni voru notuð til að efla sköpunarkraft og gleði.
Skipulagðar voru 14 stöðvar og skiptu nemendur um stöð á 20 mínútna fresti. Unnið var á stöðvum frá kl. 9:00 - 11:30 miðvikudag og fimmtudag en frá kl. 9:00 - 9:40 á föstudeginum en við enduðum þemadaganana með því að koma saman og dansa zumba á sal skólans.
STÖÐVARNAR
Osmo
Í Osmo er m.a. hægt að þjálfa fínhreyfingar, orðaforða, stærðfræði, forritun og orðaforða. Í grunnpakkanum af Osmo er statív og spegill. Spjaldið er sett í statívið og speglinum smellt á myndavélina. Við það virkjast svæðið "á borðinu".
StopMotion
Á StopMotion stöðinni voru gerð 2 myndbönd yfir allan daginn þar sem nemendur létu hugmyndaflugið ráða. Nemendur voru fljótir að tileinka sér tæknina og skiluðu frá sér mjög skemmtilegum myndböndum.
Hér að neðan má sjá eitt af myndböndunum sem gert var.
Kahoot
Jitterbug
Quizlet
Quizlet er gott forrit til að halda utan um glósur. Kennari getur búið til glósulista sem nemendur hafa aðgang að, og nemendur geta búið til eigin glósulista. Einnig er hægt að finna glósur sem aðrir hafa búið til, bæði íslenskar og erlendar.
Á þemadögunum var forritið notað til að fara í spurningarkeppni í liðum þar sem reynir mikið á samvinnu. Spurningarnar birtast á öllum spjöldum, en svarið getur verið á hvaða spjaldi sem er. Það er því ekki nóg að horfa bara á sitt spjald, heldur þarf að fylgjast með þeim öllum. Upp á skjánum er svo hægt að fylgjast með framgang liðanna.
Google Translate
Hvar er Valli?
Lazy Monster
Ratleikur með QR kóða
Í tilefni af þemadögunum var Instagram notandi stofnaður fyrir skólann. Á þessari stöð fengu nemendur það verkefni að taka myndir í þema leiðarljósa skólans sem eru virðing - víðsýni - vinátta og pósta á Instagram. Notuð vou myllumerkin #virðing #víðsýni #vinsemd #vinátta #setbergsskóli og #setbergtema18
Klikkið endilega á linkinn og skoðið myndirnar sem teknar voru: Instagram Setbergsskóla
UPPLIFUN NEMENDA AF ÞEMADÖGUNUM
Steinar Bragi í 5. HM skrifar
Í Setbergsskóla voru haldnir þemadagar 2018 14. – 16. Mars s.l. Áhugavert var á þemadögum þetta árið að aðallega var einblínt á snjalltæki . Mér fannst sniðugt að það þarna kom yoga inn auk Valla og SMT verkefnisins. Áhugavert er alltaf að sjá það að tæknin gefur svo marga möguleika inn í framtíðina. Dæmi er með Quiver, þú teiknar mynd af kú skannar og lætur svo kúna baula. Annað dæmi er með QR ratleikinn, þú berð myndavél upp að QR kóðanum og færð uplýsingar um næsta skref. En þrátt fyrir að allt var svona skemmtilegt stóð eitt upp úr hjá mér: Quizlet live, það var svo skemmtilegt og sérstaklega því það var nákvæmlega öfugt við t.d. Kahott. Þessir tæknidagar voru ótrúlega frábærir í alla staði. Starfsfólkið á svo sannarlega hrós skilið fyrir sitt verk.
Lilja og Klara Dís í 1. RÁ
Það var gaman á þemadögum í skólanum. Mér fannst skemmtilegast að taka myndir af dýrum í spjaldtölvunni. Við vorum líka að dansa og fara í leiki.
Klara Dís skrifar:
Á þemadögum eignaðist ég vinkonu og við vorum alltaf saman. Það fyrsta sem við gerðum var á stöð 21, þar fórum við í tölvur og við notuðum kubba, blöð og blýant og penna. Með kubbunum gerðum við myndir úr tölvunni. Við teiknuðum það sem var í tölvunni á blað fyrir framan myndavél og þegar björninn togaði það upp þá kom fullt af því sem hann togaði upp (Osmo). Við enduðum á stöð 20, þar sem við gerðum æfingar og dönsuðum og hermdum eftir kalli og skrímsli (Lazy Monster).
Eðlisfræði tilraunir teknar upp í Clips
Hér fyrir neðan getið þið horft á tvö myndbönd sem gerð voru á þemadögunum.
Yoga slökun með SideKick
Quiver
SMT verkefni og geislahátið
VERÐLAUNAAFHENDING Á LOKAHÁTÍÐ
Lestarátak Ævars
Í janúar og febrúar kepptust lestarhestar Setbergsskóla um að lesa og skila af sér miðum á bókasafnið í von um að verða sögupersóna í næstu bók Ævars vísindamanns. Dregið var svo úr öllum innsendum miðum þann 12 mars. En þrátt fyrir að nemendur Setbergsskóla hafi sent inn 158 miða og þar með lesið 474 bækur var heppnin ekki með okkur þetta árið.
Það sem nemendur skólans hinsvegar vissu ekki, var að fram fór leynileg keppni á bókasafninu og voru vinningshafar verðlaunaðir á lokahátíð þemadagana. Sex nemendur sköruðu fram úr varðandi lestur og voru tveir nemendur efstir með 42 lesnar bækur hvor.
Sindri Arnar í 4. AMG og Bjarki Steinar í 6. EE sigruðu því þessa leynilegu keppni. Benjamín Darri í 4. AMG, Vilhjálmur í 3. UH, Sylvía í 2. RGJ og Birnir Hólm í 1. HG stóðu sig líka frábærlega og voru verðlaunuð fyrir árangurinn.
Skólahreysti
Sundkappar heiðraðir
Þriðjudaginn, 13. mars for fram boðsundskeppni grunnskólanna í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Í ár tóku 544 keppendur þátt frá 34 skólum. Keppt var í tveim flokkum á mótinu, annars vega í flokki liða úr 5.-7. bekk og svo svo hins vegar í flokki liða úr 8.-10. bekk. Setbergsskóli átti eitt lið í hvorum flokki.
Keppnin for þannig fram að synt var 8x25 metrar og komust 9 hröðustu tímarnir í undanúrslit og síðar 3 hröðustu tímarnir í úrslit.
Skemmst er frá því að segja að lið miðdeildar Setbergsskóla hafnaði í 12. sæti en lið unglingadeildarinnar í 7. sæti. Bæði lið stóðu sig virkilega vel og voru keppendur flottir fulltrúar skólans.
Stóra upplestarkeppnin í Setbergsskóla
Sigurvegarar Veistu svarið
Veistu svarið er spurningakeppni sem haldin hefur verið í grunnskólum Hafnarfjarðar síðastliðin ár. Þar keppa skólar sín á milli um bikarinn sem var síðast í okkar höndum árið 2010.
Miðvikudaginn 28. febrúar fór fram lokaumferð í Veistu svarið og var keppnin á milli Setbergsskóla og Víðistaðaskóla. Fyrir hönd Setbergsskóla kepptu Eiríkur Kúld Viktorsson, Svanberg Addi Stefánsson og Eydís Lilja Guðlaugsdóttir. Keppnisandinn var mikill í krökkum beggja liða og háðu þau harða baráttu sem endaði með sigri Setbergsskóla. Sigurvegararnir voru heiðraðir með gjöf og dúndrandi lófaklappi á lókahófi þemadaganna.
VIRÐING - VÍÐSÝNI - VINSEMD
Fjörið heldur áfram...
Setbergsskóli
Email: setbergsskoli@hfjskoli.is
Website: www.setbergsskoli.is
Location: Setbergsskóli, Hllðarberg, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 5651011
Twitter: @setbergsskoli