Stiklur
...frá Lúx....þaðan sem handsápan er upprunin
Fundesember
03. desember: Hópar
10. desember: Kennarafundur + stuðningsfulltrúar í bekk
17. desember: Starfsmannafundur
Fössari
Ég hefði svo sannarlega viljað vera einhverja aðra helgi í burtu. Jólafatafjör í dag, en ég var með ykkur í anda... og svo jólahlaðborð annað kvöld...eins og þeir segja þetta í Lúx... Bon appetit et bon amusement...eða það held ég allalvega.
Slökkviliðið
Í morgun átti að vera saklaus heimsókn slökkviliðsins til 3. GS...svo þegar Securitas hringdi og truflaði mig í hádegiskampavíninu... eftir að hafa hvorki náð í húsvörð né skrifstofu fóru að renna á mig grímur tvær...til þrjár... hvort var það Gunna eða Soffía sem ýtti á takkann... ;) #sætirstrákaríslökkviliðinu
Jólapóstkassar
Ég sá um daginn hönnunarkeppni ...að mig minnir í 6. VG...um jólapóstkassann...skemmtilegt innlegg í #sköpunarkennslu ...Sköpun er einmitt einn grunnþáttum menntunar; ásamt læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi ...og jafnrétti. Rifjum þetta samt betur upp á kennarafundinum...
Menntabúðir
Það var gaman að heyra hversu vel tókst til með menntabúðirnar. Á myndunum sá ég líka hversu duglegt okkar fólk var að mæta...frábært...vonandi nýtist þetta ykkur í kennslunni.
Vinnustaðagreiningin
Þá er vinnustaðagreiningin komin á fullt, svarhlutfall Fjarðabyggðar í heild var komið í tæp 50% í gærmorgun. Vonandi eru þið dugleg að svara, ég minni á að í lok könnunarinnar er svo möguleiki á að skrifa texta ef ykkur finnst eitthvað ekki hafa komið fram.
Samstarf við eldri borgara
Ég minni á stiklu úr síðustu Stiklu um samstarf við Fjarðabyggð endilega hafið samband við
Guðrúnu Lilju með hugmyndir um samstarf... :)
Nemendaverndarráð
Ég fékk góða spurningu í vikunni um hlutverk nemendaverndarráðs. Eitthvað sem gott er að rifja reglulega upp...hér má finna allt um ráðið...og meira til...
https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/menntamalaraduneyti/nr/16592
Leiklistarvalið
okkar, sem Þórfríður stjórnar, gerði góða hluti er tóku þátt í hryllingshúsi VA nýlega... úúú..... ;)