Stiklur
Velkomin til starfa skólaárið 2020 - 2021
Þá er
sumarfríum okkar lokið og undirbúningur að nýju skólaári hafinn. Sumir komnir til vinnu en aðrir að sinna undirbúningi og endurmenntun að heiman.
Á morgun föstudag
er fyrsti starfsdagur kennara og stuðningsfulltrúa en skólaliðarnir eru búnir að vera hér undanfarna daga að gera allt klárt ásamt okkur stjórnendum. Engin skipulögð dagskrá verður á morgun en dagurinn góður til að setja sig í upphafs stellingar fyrir komandi skólaár.
Fyrsti starfsmannafundurinn
verður á mánudaginn, 17. ágúst, klukkan 10:00.
COVID-19
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að COVI-19 veiran er enn að hrella okkur. Áhrif á nemendur og starf þeirra eru engin... sbr. "Börn fædd árið 2005 eða síðar eru áfram undanskilin ákvæðum 3. gr. auglýsingarinnar sem snúa að fjöldatakmörkun og 4. gr. um almenna nálægðartakmörkun."
Hvað okkur fullorðna fólkið varðar þá... "Nemendum og starfsfólki í framhalds- og háskólum ber að tryggja a.m.k. eins metra bil sín í milli í skólastarfi í stað tveggja metra reglunnar sem almennt er í gildi í samfélaginu, samkvæmt breytingum á sóttvarnarreglum sem kynntar voru í dag. Hið sama á við um fullorðna í starfi leik- og grunnskóla, þ.e. kennara og annað starfsfólk sem þurfa að halda minnst metra fjarlægð sín í milli í skólastarfi. "
Númer eitt, tvö og
þrjú er að við förum varlega og tökum tillit til hvers annars.
Læt þetta duga í bili
en hlakka til að hitta ykkur á morgun og eftir helgi... :)