Stiklur
1. apríl er á mánudaginn #beware
Before and after
Ekki tókst okkur að fara í fjallaferð í þessari viku, spáin verður tekin á mánudaginn og vonandi finnum við góðan dag. Helga, Þórfríður og Klara komust klakklaust heim eftir velheppnaða námskeiðsferð #erasmus. Engir fundir voru í þessari viku en á þriðjudaginn fá hóparnir tækifæri til að hittast og svo verður starfsmannafundur í lokavikunni fyrir páskafrí. Í dag heimsóttu okkur skólastjórnendur af Austurlandi, Hornfirðingar voru reyndar líka með...heimsóknin tókst vel og stjórnendurnir hrifnir af skólanum okkar.
Erasmus
Trillurnar þrjár eru varla lentar frá Flórens þegar tvær úr...skreppa þangað. Í næstu viku verða Guðrún og Sigrún Júlía á námskeiði á sama stað "Soft skills for strong teachers" heitir námskeiðið.
Meiri Erasmus
Samstarfsverkefni Nesskóla og skólanna þriggja í Eistlandi, Lettlandi og Danmörku klárast í vor. Vonandi hefnist mér ekki fyriren þessi hópur sendi inn nýja umsókn um verkefni, "we only have one planet" , einnig bættist Portúgalskur skóli við. Verkefnið er hugsað fyrir unglingastig og þá helst níunda og tíunda bekk. ekki verður ljóst fyrr en í sumar hvort ef þessu verkefni verður.
Einnig er umsókn um annað verkefni sem tengist komandi 7. bekk, "Engaging Rural Youth" heitir það og er unnið með samtökum sem heita Landsbyggðin lifi.
Í þriðja Erasmus-lagi var sótt um námskeið líkt og þau sem eru í gangi núna, niðurstöður þar að lútandi gæti verið ljósar áður en við förum í sumarfrí.
Samtökin 78
Á mánudaginn koma fullttrúar frá samtökunum 78 og verða með fræðslu fyrir unglingastigið...11:40 - 13:00.
Blár apríl - blarapril.is
Nú er aprílmánuður á næsta leiti og kominn tími til að draga fram næluna og setja sig í stellingar fyrir dag einhverfunnar, þriðjudaginn 2. apríl. Þann dag förum við í okkar bláustu föt, berum næluna með stolti, rifjum upp sögurnar af Degi og Maríu og munum að einhverfa er alls konar!
Íslandsmeistarar og á leið í úrslit Evrópukeppninnar
Tíundi bekkurinn okkar fór með glæsilegan sigur af hólmi í Fjármálaleiknum 2019, spurningakeppni í fjármálalæsi. Í maí fara síðan þau Ester Rún og Freysteinn til Brussel að keppa fyrir hönd Íslands...#tilhamingju
Fróðleiksmoli vikunnar
Fróðleikshorn vikunnar kemur frá Nönnu Ísmland, náms- og starfsráðgjafa í ME. Hún birti Padlet (korktöflu) sem ber heitið Lesblindir í námi og tæknin. Fullt af gagnlegum tækjum þar.