Vikupóstur
1. bekkur
Heil og sæl, kæru foreldrar!
Við kíktum á bókasafn skólans. Sumir fengu lánaðar bækur, aðrir bara skoðuðu bækur á safninu sem þeir skiluðu svo. Hvar er Valli? var vinsæl í þetta skiptið.
Við æfðum áfram árshátíðaratriðið okkar og tókum fyrstu æfinguna á sviðinu á fimmtudaginn. Árshátíðin er alltaf skemmtileg og undibúningurinn fyrir hana spennandi.
Handþvottur er mikilvægur þessa dagana og höfum við því beðið börnin um að þvo sér fyrir nestis- og matartíma. Allur matur er nú skammtaður á diskana og hellt í glösin fyrir þau. Sumir eru að velta þessum breytingum fyrir sér og höfum við þá sagt að það sé flensa að ganga. Einhver börnin hafa greinilega heyrt um covid eða kórónaveiruna, en við tölum um flensu. Þetta hefur ekki verið mikið til umræðu hjá okkur, en um að gera að ræða þetta einslega við börnin heima og mikilvægt að vera ekki með hræðsluáróður.
Njótið helgarinnar!
Bestu kveðjur,
Elín, Sigga, Rósa og Sunna
Útivistardagurinn 17.mars
Nemendur taka með sér nesti í bakpoka og umfram allt að vera vel klæddir!
Nánar er hægt að lesa um þetta í mars fréttabréfi skólans: