Fréttabréf Norðlingaskóla
30. nóvember 2018
Efni þessa fréttabréfs
- Skólastarfið í nóvember
- Ýmsir viðburðir í desember
- Viðbragðsáætlun vegna óveðurs
Skólastarfið í nóvember
Nóvembermánuður byrjaði með vel heppnuðum fjölmenningardegi 2. nóvember þar sem nemendur sóttu hinar ýmsu stöðvar og fræddust um eitt og annað tengt fjölmenningu. Myndir frá deginum má sjá hér á heimasíðu skólans.
7. bekkur setti svo upp leikritið um Línu langsokk af miklum myndarbrag. Fjölmargir gestir komu að sjá sýninguna og var það mál manna að sýningin hafi tekist einstaklega vel!
Lestrarsprettur stóð yfir í eina viku í nóvember en þá vikuna lásu nemendur sérstaklega mikið og keppnisskapið var allsráðandi. Jólabækurnar eru nú allar komnar á skólabókasafnið við mikla kátínu nemenda og hafa myndast langir biðlistar eftir vinsælustu bókunum. Rithöfundarnir Bjarni Fritzson og Ævar Þór Benediktsson komu svo og lásu upp úr sínum nýjustu bókum fyrir 3.-7. bekk sem hlustuðu af áhuga og tóku vel á móti gestunum.
Ýmsir viðburðir í desember
Þriðjudaginn 4. desember fara 1. og 10. bekkur samkvæmt hefð saman út í Heiðmörk og sækja jólatré fyrir skólann.
5.-7. desember eru svo jólasmiðjur en þá víkur hefðbundið skólastarf fyrir hvers kyns jólatengdum verkefnum.
Mánudaginn 10. desember er bangsa- og náttfatadagur í skólanum og þá má gjarnan mæta í náttfötum og með bangsa meðferðis í skólann. Þann dag er einnig söngstund fyrir 1.-10. bekk klukkan 8:30 í Mörkinni.
18. desember er síðasti kennsludagur fyrir jólafrí og einnig er jólaskóli seinni partinn þann dag að venju en þá mæta nemendur með fjölskyldum sínum og gleðjast saman. Nánari dagskrá fyrir skipulag jólaskólans og annað í desember mun berast frá stjórnendum og teymum von bráðar.
Jólaleyfið byrjar svo 19. desember en kennsla hefst að nýju 3. janúar.
Leirmótun og glerbræðsla. verk eftir nemendur í 8. og 9. bekk.
Viðbragðsáætlun vegna óveðurs
Starfsfólk Norðlingaskóla óskar ykkur góðrar helgar!
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli