Vikan 17 - 24 janúar
2-3 bekkur Naustaskóla
Heil og sæl kæru foreldrar/forráðamenn
Vika jákvæðs aga var vel nýtt í 2 og 3 bekk. Unnin voru verkefni sem hengd verða upp á kennslusvæðinu okkar og frammi á gangi. Báðir bekkir unnu stór lausnahjól sem hengd verða upp og límd á gólfin þar sem börnin geta nýtt sér til að leysa vandamál eða ágreining.
27 og 28 janúar verða viðtalsdagar í Naustaskóla. Þessa daga mæta nemendur ásamt foreldrum í viðtal við umsjónarkennara. Engin hefðbundin kennsla er þessa daga, frístund er opin fyrir þau börn sem skráð eru. Biðjum við foreldra um að skrá sig í viðtal á mentor.is
Í lok næstu viku koma nemendur með verkefni sem unnin hafa verið síðan í nóvember heim og biðjum við ykkur um að skoða þau með börnunum og ef einhverjar spuriningar vakna þá er hægt að ræða þær í foreldraviðtölunum.
Það er nóg að gera í tröllaþemanu okkar og eru allir að búa til sín eigin tröll. Við höldum svo áfram að vinna með tröllin í næstu viku.
Við erum með kennaranema hjá okkur og munu þær vera með okkur í 6 daga næstu 3 vikurnar, þær heita Diljá Dögg og Júlía Kristey og eru þær á 3 ári í kennaranámi við Háskólann á Akureyri.
Bestu kveðjur og góða helgi
Teymið í 2-3 bekk
Vala, Sigga, Hulda, Emilía, Silvía, Erla, Karen og Harpa