Flataskólafréttir
Skólaárið 2023 - 2024 1.september 2023
Kæra skólasamfélag
Ég ætla að byrja þennan fyrsta pistil ársins á því að kynna mig lítillega. Ég heiti Heiðveig Hanna Friðriksdóttir, yfirleitt kölluð Hanna og eins og mörg ykkar vita kannski þá tók ég við starfi skólastjóra af Ágústi þann 1.ágúst sl. Ég hef starfað í Flataskóla í nokkur ár bæði sem kennari og deildarstjóri þannig að mörg ykkar þekkja mig nú þegar. Síðastliðið ár starfaði ég í Hafnarfirði en sleit þó ekki alveg naflastrenginn við Flataskóla því þá gengdi ég því góða hlutverki að vera formaður foreldrafélagsins. Því embætti verð ég nú að láta af og ég hlakka til að hitta alla þá sem ég veit að verða áhugasamir um að taka við af mér í því hlutverki. En að öllu gríni slepptu þá hvet ég alla þá sem gætu hugsað sér að taka þátt í skólasamfélaginu okkar í gegnum foreldrafélagið til að mæta á aðalfund foreldrafélagsins sem verður þann 28.september kl.20 á bókasafni skólans. Þetta er ekki eins mikil vinna og margir óttast og stuðningur ykkar er ómetanlegur þáttur í dýrmæta samfélaginu okkar.
Skólaárið fer vel af stað í ný uppgerðu og fínu húsnæði. Enn er verið að vinna í einhverjum rýmum en frá og með deginum í dag eru allir nemendur komnir í sínar heimastofur. Verið er að klára að græja hluta af matsalnum svo bráðum sjáum við fram á að þurfa ekki að borða á ganginum á efri hæðinni. Eitthvað er þó enn í það að við fáum allan salinn afhentan svo við munum borða á ganginum á neðri hæðinni í einhvern tíma enn. Krakkakot á eftir að fá hluta af sínu rými afhent auk þess sem heimilisfræðistofa og smíðastofa eru ekki tilbúnar. Enn er verið að vinna í húsinu að utan. Þetta er þó allt á góðri leið og við þakklát fyrir hversu mikið er búið að gera fyrir skólann. Skipt hefur verið um dúka, loft og glugga í stærstum hluta hússins auk mikilla framkvæmda á ytra byrði þess. Við erum full tilhlökkunar fyrir nýjum vetri og sjáum fram á að geta unnið okkar góða starf án truflana frá óboðnum gestum eins og kórónuvírusum eða myglusveppum. En undanfarin ár með öllum sínum óvæntu útspilum hafa líka styrkt okkur sem samfélag og hér starfar ótrúlega samheldinn hópur fullorðinna og barna sem ég er einstaklega stolt af því að fá tækifæri til að leiða.
Ég hlakka til samstarfsins í vetur.
Kærleikskveðja,
Hanna
Sýn Flataskóla – S-in 5
Flataskóla er ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
Nemendur fá tækifæri til að æfa sig í að sýna seiglu, sjálfstæði og sköpun í námi sínu og í samskiptum er lögð áhersla á sjálfstjórn og samkennd.
Skólareglur Flataskóla
Í öllum samskiptum milli nemenda Flataskóla er lögð áhersla á að kenna nemendum mikilvægi samkenndar og ætlast er til að þeir temji sér sjálfstjórn.
Yfirheiti skólareglnanna tekur mið af 3. grein Barnasáttmálans “Það sem er barninu fyrir bestu” enda endurspegla skólareglurnar það að Flataskóli er réttindaskóli UNICEF og allt okkar starf tekur mið af því.
Skólareglurnar voru endurnýjaðar haustið 2022. Réttindaráð skólans sem skipað er kjörnum fulltrúum nemenda, valdi níu greinar Barnasáttmálans sem það taldi eiga erindi í skólareglur. Ákveðið var að hafa 3. gr. “Það sem er barninu fyrir bestu” sem regnhlífargrein yfir skólareglunum og þurfa reglurnar að taka mið af því sem er best fyrir börnin í skólanum. Mikilvægt er að vera meðvitaður um að réttur hvers barns endar þar sem réttur þess næsta byrjar.
Hópur nemenda skilgreindi hvað nemendur og starfsfólk þurfa að gera til að þau réttindi barna sem greinarnar ná yfir séu virt með því er stuðlað að því að réttindi allra barna í skólanum séu virt og skólabragur verði barnvænn.
Fulltrúar nemenda úr öllum árgöngum skilgreindu hvað nemendur þurfa að gera til að framfylgja reglunum og virða réttindi allra nemenda. Þau skráðu niður hvað þau sem einstaklingar þurfa að gera.
Foreldrasamstarf
Eins og áður sagði þá er þátttaka foreldra einstaklega mikilvægur þáttur í skólasamfélaginu. Þar eru bekkjarfulltrúar í lykilhlutverki og við erum að safna saman áhugasömu fólki til að fylla þann flokk fyrir veturinn. Við biðjum því áhugasama forráðamenn um að gefa endilega kost á sér með tölvupósti á heidveigf@flataskoli.is
Hefðbundið hlutverk bekkjarfulltrúa er að vera tengiliðir foreldrahópsins við kennara og skólann almennt, að koma á bekkjarskemmtunum o.fl. Í fyrra mynduðu bekkjarfulltrúar einnig stjórn foreldrafélagsins sem gaf mjög góða raun.
Á aðalfundi Foreldrafélagsins verða kjörnir fulltrúar í eftirfarandi hlutverk:
Stjórn Foreldrafélagsins - Einn fulltrúi úr hverjum árgangi. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og stýrir starfi félagsins. Kjörin til eins árs í einu. Sjá hér
Fulltrúar í skólaráð - Tveir fulltrúar foreldra og tveir til vara. Sjá hér
Aðalfundur Foreldrafélagsins
Boðað er til aðalfundar Foreldrafélags Flataskóla fimmtudaginn 28.september 2023 á bókasafni Flataskóla
Dagskrá aðalfundar er skv. lögum félagsins:
· Kosning fundarstjóra og fundarritara
· Skýrsla stjórnar
· Skýrslur nefnda
· Lagabreytingar
· Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði
· Kosning fulltrúa í stjórn Foreldrafélags
· Kosning tveggja skoðunarmanna reikningai
- Kosning fulltrúa foreldra í skólaráð
· Kosning fulltrúa í Grunnstoð (annað hvert ár - ekki í ár)
· Önnur mál
Fundurinn verður nánar auglýstur síðar en við hvetjum foreldra til að setja tímasetninguna í dagbókina!
Haustkynningar / bekkjakvöld
Fljótlega munum við boða til haustkynningarfunda árgagna sem hefð er fyrir að halda um miðjan september. Dagsetningar árganga og upplýsingar um fyrirkomulag fundanna verða sendar heim í vikupósti.
Umferðaröryggi
Mentor - handbók fyrir aðstandendur
Allir forráðamenn ættu að hafa aðgang að mentor en þar er að finna ýmsar upplýsingar varðandi ástundun og nám nemenda. Rétt er að benda á að nálgast má handbók fyrir aðstandendur í mentorkerfinu á heimasíðu mentor.is undir "aðstoð" eða með því að smella hér..
Skólapúlsinn
Skólinn notar kannanir Skólapúlsins til að fylgjast með og bæta innra starf skólans. Liður í því er að spyrja þá nemendur í skólanum sem eru á aldursbilinu 11-12 ára spurninga um líðan þeirra í skólanum, virkni þeirra í námi og almennra spurninga um skólastarf og bekkjaranda.
Nemendur svara í skólanum spurningalista á netinu. Hver nemandi svarar könnuninni einu sinni á ári og tekur um 20 mínútur að svara henni. Könnunin er hluti af innra mati skólans. Niðurstöður eru eingöngu birtar skólum í formi meðaltala og hlutfalla fyrir hópa. Niðurstöðurnar eru jafnframt notaðar af starfsmönnum Skólapúlsins til að framkvæma tölfræðigreiningar m.a. fyrir fræðsluskrifstofur, ráðuneyti og fræðimenn til að auka skilning á þroska og námsaðstæðum nemenda á landsvísu.
Vinnsla könnunarinnar uppfyllir skilyrði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga og er í samræmi við GDPR reglugerð Evrópuþingsins.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um könnunina.
Ef foreldri er mótfallið því að barn þess svari spurningalistanum þá biðjum við um að haft sé samband við skrifstofu skólans og þá verður tryggt að könnunin verði ekki lögð fyrir viðkomandi barn.
Ef frekari spurningar vakna en finna má svör við á með tenglinum hér að framan er hægt að hringja í starfsfólk Skólapúlsins í síma 583-0700 eða senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is.
Opnunartími skrifstofu
Skrifstofa skólans er opin kl. 7:45-15:00 alla daga vikunnar nema á föstudögum til kl. 14:30
Hægt er að senda skólanum tölvupóst á netfangið flataskoli@flataskoli.is
Mælst er til að foreldrar/aðstandendur skrái veikindi nemenda á Fjölskylduvef Mentor.is eða með Mentor appinu.
Auk þess er hægt að tilkynna forföll á skrifstofu skólans með tölvupósti eða í síma 513 3500. Vakin er athygli á að ef veikindi vara lengur en einn dag skal tilkynna daglega.