Hvalrekinn
Mars 2019
Bolludagur og bræður hans
Vonandi hafa allir átt ánægjulegt vetrarfrí og haft nóg fyrir stafni.
Á Bolludaginn er nemendum velkomið að koma með rjómabollur í nesti ef þeir kjósa það. Skólamatur býður upp á fiskibollur í hádeginu og á þriðjudag, Sprengidag, verður að sjálfsögðu saltkjöt og baunir í matinn.
Hér fyrir neðan getið þið foreldrar séð dagskrá Öskudagsins og eru allir hvattir til þess að koma í skemmtilegum búningum í skólann eða kannski náttfötunum! Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og verður hefðbundin stundaskrá lögð til hliðar hjá yngstu- og miðdeild. Skóla lýkur á öskudaginn kl. 11.20 og tekur Holtasel þá við þeim nemendum sem þar eru skráðir.
Nemendur í 7. bekk leggja land undir fót og ætla að dvelja í Skólabúðunum á Reykjum í næstu viku. Við óskum þeim góðrar ferðar og góðrar skemmtunar.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri
Öskudagur
Öskudagurinn er á miðvikudaginn 6. mars og hvetjum við alla til að koma í búningi þann dag. Nemendur mæta í skólann samkvæmt stundaskrá og eru til kl. 11:20. Þeir nemendur sem eru í áskrift hjá Skólamat fá samloku, ávaxtadrykk og banana með sér í lok dags.
Þeir nemendur sem eru í Holtaseli geta farið þangað að skóla loknum. Forráðamenn nemenda sem eiga pláss í Holtaseli láti vita ef þeir ætla ekki að nýta það þennan dag.
Breytt dagskrá er hjá nemendum í yngstu- og miðdeild en kennt er samkvæmt stundaskrá hjá nemendum í elstu deild. Hér má sjá nánari dagsrká.
Samræmd könnunarpróf eru hjá nemendum í 9. bekk
Nemendur í 9. bekk fara í samræmd könnunarpróf sem hér segir:
Mánudaginn 11. mars er prófað í íslensku.
Þriðjudaginn 12. mars er prófað í stærðfræði.
Miðvikudaginn 13. mars er prófað í ensku.
Þar sem við reynum að þjónusta nemendur sem best í prófinu og við prófunina þá er nemendahópnum skipt í tvo prófhópa. Fyrri prófhópurinn á að mæta kl. 8:20 í próf og seinni prófhópurinn kl. 11:30. Nemendur fá að vita í hvorum hópnum þeir eru ásamt því að póstur verður sendur á foreldra með þeim upplýsingum.
Við viljum minna á eftirfarandi reglur eru varðar fyrirlögn prófanna:
GSM símar eru bannaðir meðan á prófi stendur. Hafi nemendur GSM síma með sér er nauðsynlegt að slökkt sé á þeim og þeim komið í vörslu þess sem situr yfir.
Nemendum er óheimilt að vera með tónlist í eyranu í samræmdum könnunarprófum, t.d. úr MP3 eða iPod spilurum. Slíkt getur truflað nemandann sjálfan og nemendur á næstu borðum.
Nemendum er heimilt að hafa nesti með sér í próf. Þó skal svo frá því gengið að það sé snyrtilegt og neysla þess trufli ekki aðra.
Í prófið í stærðfræðinni eiga nemendur að mæta með góðan vasareikni með sér.
Það eru vinsamleg tilmæli frá Menntamálastofnun að nemendur fái ekki að fara út úr prófinu fyrr en próftíminn er liðinn. Við viljum því minna á að gott er fyrir nemendur að hafa með sér bók að lesa í ef þeir þurfa að bíða.
Þá viljum við minna á að góður næstursvefn og næring fyrir próf eru mjög mikilvægir þættir.
Hér má nálgast bréf frá Menntamálastofnun vegna prófunnarinnar annars vegar til foreldra; á íslensku, á ensku , á pólsku. Hins vegar til nemenda; á íslensku, á ensku , á pólsku.
Upplestarhátíð í Hvaleyrarskóla
Sigurvegarar
Keppendur
Upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk
Nemendaferðir í mars
Nú í mars eru fyrirhugaðar eftirfarandi nemendaferðir:
- Nemendur í 9. bekk eru að Laugum og koma heim í dag, föstudag.
- Nemendur í 7. bekk fara að Reykjum mánudaginn 4. mars.
- Nemendur í 10. bekk fara í heimsókn í Flensborgarskólann þann 5. mars.
- Þann 15. mars fara nemendur í 9. og 10. bekk á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldskólakynningu.
Heimavinnuaðstoð í Hvaleyrarskóla
Um heimavinnuaðstoð / Heilahristing:
Heimavinnuaðstoðin er fyrir öll börn í 1. til 10. bekk. Markmið verkefnisins er að styrkja börnin í námi og kynna fyrir þeim þjónustu bókasafnsins í tengslum við nám og áhugamál.
Nánari upplýsingar veitir:
Hulda M. Rútsdóttir, Verkefnastjóri Rauða krossins, Netfang: hulda@redcross.is
Viðvera hjúkrunarfræðings
Hér má sjá upplýsingar um heilsuvernd skólabarna.
Á döfinni
Forinnritun nýnema sem eru að útskrifast úr 10.bekk er 8. mars – 13. apríl.
Fræðslan Sjúk Ást verður fyrir nemendur í elstu deild. Fyrir nemendur í 8. og 10. bekk þriðjudaginn 12. mars og fyrir nemendur í 9. bekk fimmtudaginn 14. mars.
Þann 15. mars fara nemendur í 9. og 10. bekk á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldskólakynningu.
100 - miðaleikurinn hefst þann 18. mars og lýkur þann 22. mars.
Þann 20. mars er Skólahreystikeppnin í íþróttahúsinu að Ásvöllum.
Þann 21. mars kl. 14:00 - 15:30 er stærðfræðikeppni grunnskólanna í Hafnarfirði haldin í Flensborgarskólanum. Keppnin er ætluð fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
Samfestingur er fyrir nemendur í elstu deildinni (8. - 10. bekkur) þann 22. mars.
Þann 26. mars er boðsundskeppni grunnskólanna í Laugardalslaug.
Þann 26. mars fá nemendur í 10. bekk fræðslu frá Fjármálaviti.
Nemendur í 10. bekk fara á Skólaþing, 10. SB þann 2. apríl og 10. GB þann 5. apríl.
- Þemadagar verða 10. - 12. apríl þar sem unnið verður með jörðina mína. Afrakstur vinnunnar verður á opnu húsi föstudaginn 12. apríl.
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/