HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 9. TBL
DAGSKRÁ 6. NÓV. - 10. NÓV.
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER
Nemendaverndarráð í BS 8:30
Ruglusokkadagur
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER
Nemendaverndarráð Í HS 13:30
Fulltrúar Fræðsluráðs og fræðslufulltrúi koma í heimsókn í bæði skólahúsin.
ÍBV og íþróttabúningadagur
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER
Fagfundur í Íslensku
Deildarfundir Í báðum húsum
Baráttudagur gegn einelti. 1. - 3. bekkur fara í BS.og 6. og 7. bekkir koma í HS.
Litríkur dagur (margbreytileikinn)
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER
Stjórnendafundur í BS klukkan 14:30
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER
Lesum á göngum í skólanum
Kósý- og bangsadagur
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Föstudaginn 10. nóv langar okkur að starfsfólk bjóði nemendum upp á pönnukökur eins og við gerðum á síðasta ári í vinavikunni.
- Við auglýsum eftir sjálfboðaliðum til að baka þennan dag. Þeir sem bjóða sig fram hafa samband við Ólu Heiðu í Hs og Dóru Guðrúnu í Bs.
- Fulltrúar fjölskyldu- og fræðsluráðs ásamt Drífu Gunnarsdóttur fræðslufulltrúa ætla að heimsækja báða skóla þriðjudaginn 7. nóvember: Barnaskólinn kl. 8:30 - 9:15 og Hamarsskóli kl. 10:00 -10:45.
- Baráttudagur gegn einelti verður 8. nóv. Vinabekkir fara í heimsóknir á milli skólahúsa þennan dag.
- Allir starfsmenn eiga að vera búnir að fá póst með dagskrá fyrir þennan dag ef ekki hafið samband við stjórnendur.
- Linkur á hvatningarbréf frá Menntamálastofnun vegna Baráttudags gegn einelti
- https://mms.is/sites/mms.is/files/hvatningarbrefs_dags_gegn_einelti_2017.pd
- Fyrirlestur Vöndu Sigurgeirsdóttur fyrir allt starfsfólk verður í sal Hs miðvikudaginn 15. nóvember frá kl. 13:00 - 16:00. Fyrirhugað er að Vanda verði einnig með fyrirlestur fyrir foreldra þriðjudaginn 14. nóv.
- Norræna bókasafnavikan verður 13. - 19. nóvember. Verkefnið er á vegum Sambands Norrænu félganna sem leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir.
- Mánudaginn 13. nóvember er stóri upplestardagurinn í tengslum við Norrænu bókasafnavikuna.
- Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember.
- Skáld í skólum fyrir miðstig og unglingastig 17. nóvember.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
Tilkynningar !!
- Anna Rós verður í leyfi 6. -15. nóv. forföll skal tilkynna til Ingibjargar. Góð vinnuregla að senda alltaf tilkynningu til aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra.
- Fríða Hrönn námsráðgjafi bætir við sig viðveru í Hamarsskóla á fimmtudögum kl. 8:00 - 10:00..
- Föndurdagurinn í HS verður 7. desember.
- Verkefni verða til sýnis í vikunni 13. - 17. nóvember. Við biðjum kennara að senda okkur hugmyndir að verkefnum þ.e.a.s. ef vilji er fyrir því að skipta út verkefnum.
- Nýjar verkgreinalotur í Hs hefjast 25. janúar 2018.
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur fá aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
Ostakaka með karamellusósu
- 2 pakkar dökkt Oreo-kex
- (taka kremið af og geyma)
- 80 g smjör – brætt
- 400 g rjómaostur (Philadelphia) – við stofuhita
- 2 dl sýrður rjómi – við stofuhita
- 4 egg – við stofuhita
- ½ tsk. salt
- 2 tsk. vanillusykur
- Kremið úr kexinu
- 1 dl sykur
Aðferð
Botn
- Kremið skafið af kexinu og sett til hliðar.Kexið er mulið í matvinnsluvél eða í mortéli.
- Smjör brætt og blandað saman við mulninginn. Bökunarpappír settur í botninn á 22-23 cm bökunarformi og mulningnum dreift jafnt á botn og hliðarnar. Best að nota fingurna til að þjappa mulningnum vel saman. Geymt í kæli á meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
- Ofninn hitaður í 160°C (yfir- og undirhiti). Rjómaostur, kremið úr kexinu, sykur og sýrður rjómi – hrært saman. Eggjum bætt við einu í einu og því næst vanillusykri. Allt hrært saman þar til blandan verður slétt og fín. Sett í bökuformið yfir kexmulninginn.
- Bakað í ofni í rúma klukkustund (u.þ.b. 65-70 mínútur) – gott að láta kökuna kólna á grind og síðan er hún sett inn í kæli í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt. Stundum myndast sprunga í kökuna en hana má fela með hnetumulningi og karamellusósunni.
Frábær karamellusósa
- 2½ dl sykur
- 1 dl vatn
- 1½ dl rjómi eða matreiðslurjómi
- ½ tsk. salt
- 1 tsk. vanilluessens
- Smjörklípa
Aðferð:
- Blanda saman rjóma, salti og vanilluessens í skál/könnu. Sykur og vatn sett í pott – hrært saman. Hitað upp og haft á meðalhita – passa að láta ekki sjóða um of. Mikilvægt að hræra ekki í á meðan soðið er – tekur u.þ.b. 15-20 mínútur eða þangað til liturinn er orðinn gullinbrúnn.
- Ekki hefur gefið góða raun að stoppa suðuna og halda áfram síðar. Best að fylgjast vel með suðunni. Þegar sykurblandan er orðin gullinbrún er potturinn tekinn af hellunni og rjómablöndunni hellt í – þá getur myndast mikil suða – hræra rólega þar til blandan verður slétt. Má hafa á mjög lágum hita.
- Smjörklípa sett í karamellublönduna í lokin og blandað saman við.
- Ath.: Ekki hræra í sósunni á meðan sykurinn er að dökkna – mikilvægt að fylgjast vel með þegar hann byrjar að dökkna – það gerist hratt og sykurblandan má ekki verða of dökk.
- Karamella – hana má búa til daginn áður eða nokkrum dögum áður og geyma í krukku í kæli. Áður en hún er sett yfir kökuna er betra að velgja hana aðeins en samt ekki of mikið. Ef notuð er uppskriftin frábær karamellusósa nægir að nota hálfa uppskriftina.
- Hnetum stráð yfir hugsanlegar sprungur sem hafa myndast í kökunni. Karamellusósu hellt yfir og skreytt með jarðhnetum. Þegar kakan er geymd í kæli þarf ekki setja plast yfir hana.
- Kakan geymist vel í nokkra daga í kæli.
Spakmæli vikunnar
Ég er kennari. Þannig skilgreini ég mig. Góður kennari er ekki einhver sem einungis gefur svör við spurningum heldur skilur hann mismunandi þarfir og hindranir nemenda og gefur þeim verkfæri til að hjálpa öðrum til að ná árangri.
Það er þannig sem að ég sé sjálfan mig, hvað sem ég mun gera eftir stjórnmál mun það tengjast kennslu.
- Justin Trudeau
Hrós vikunnar fær
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.