Menntabúðir
UT í námi og kennslu
Menntabúðir miðvikudaginn 25. nóvember 2015 kl. 16:15-18:15
Þriðju menntabúðir haustmisseris verða haldnar miðvikudaginn
25. nóvember kl. 16:15-18:15 í stofu H-207 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk miðlar af eigin reynslu og þekkingu og aflar sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Þær eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og kennaranemum.
Þemað að þessu sinni er: "Netbundin verkfæri tengd námssviðum"
Mikil fjölgun hefur átt sér stað í framboði netbundinna UT-verkfæra sem yfirleitt eru hönnuð fyrir öll stýrikerfi. Það sem einkennir flest þeirra er einfaldleiki og hentugt er að nýta þau í námi og kennslu.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með framlag í búðirnar. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námskrárvinnu, varpa fram spurningu eða koma með eitthvað málefni sem þarfnast lausnar. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku.
Dagskráin er enn í mótun og verður birt hér innan skamms.
Skráning fer fram á eftirfarandi vefslóð: http://bit.ly/Menntabudir-25-nov.
Samstarfsaðilar: UT-torg, Menntamiðja, Rannum, Menntasmiðja, Reykjavíkurborg, SAMspil2015.
Menntabúðir Námsumsjón og námsmat
Wednesday, Nov 25, 2015, 04:15 PM
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, Stakkahlíð, Reykjavik, Capital Region, Iceland
UT-torg - Menntamiðja
Email: bjarjons@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is
Phone: 8630535
Facebook: https://www.facebook.com/pages/UT-torg/173085796204552?ref=bookmarks
Twitter: @UT_torg