Hvalrekinn
8. júní 2021
Þá er þessu sérstaka skólaári að ljúka. Það hafa verið margar og erfiðar ákvarðanir sem þurft hefur að taka á síðustu dögum og vikum. Ég er sannfærður um að við náðum að vinna eins vel úr stöðunni og hægt var. Vil ég nota tækifærið og þakka ykkur foreldrum fyrir samtalið sem við stjórnendur áttum við ykkur á síðustu tveimur vikum. Þetta voru ekki skemmtilegustu samtölin sem við höfum átt en skilningurinn var alstaðar fyrir hendi. Já hann er magnaður foreldrahópurinn hér á Holtinu :-)
Íþróttadagar og fjölgreindaleikar verða að bíða betri tíma og verða fyrir vikið enn kraftmeiri. Kennarar hafa nýtt tímann til ýmissa útleikja og útiverkefna undanfarna daga, gaman hefur verið að fylgjast með nemendum á ferðinni. Það hafa verið farnar hjólaferðir, bæjarferðir, Þjóðminjasafnið skoðað. Nemendur í 10. bekk náðu að fara í skemmtilega vorferð þar sem farið var um Suðurlandið þar sem farið var í flúðasiglingu, zipline og fleiru ógleymanlegu. Skemmtilegar minningar sem vonandi allir taka með sér inn í sumarið.
Nú má ekki gleyma að lesa! Ég vil hvetja ykkur foreldra að minna ykkar börn á mikilvægi lesturs. Þegar mælingar sýna að lestrarfærni barna fer aftur þá er enn mikilvægari þáttur foreldra að viðhalda lestri og hvetja sín börn til aukins lesturs. Þá er mikilvægt að þið séuð fyrirmyndin, takið ykkur bók í hönd og lesið fyrir og ekki síður með ykkar börnum. Smá tími fyrir svefninn getur gert gæfumuninn.
Enn verðum við að taka tillit til aðstæðna og því verðum við að miða komandi skólaslit við það. Nánari útfærsla á skólaslitunum má sjá hér fyrir neðan. Mikilvægt að er virða skipulagið þetta vorið.
Ég óska þess að þið öll hafið það sem best í sumar. Njótið sumarsins, ferðumst innanlands, hlúum að okkar nánustu og mætum hress og kát í ágúst þegar skólinn hefst að nýju.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.
Útskrift nemenda í 10. bekk
Myndataka verður af nemendum að lokinni athöfn.
Að lokinni athöfn er nemendum og gestum þeirra boðið að þiggja kaffiveitingar.
Fimmtudaginn 10. júní kl. 10:00 verða einkunnir nemenda í 10. bekk lesnar yfir í Innu og birtar nemendum í umsókn þeirra til framhaldsskólanna.
Skólaslit nemenda í 1. - 6. bekk
Skólaslitin í Hvaleyrarskóla verða fimmtudaginn 10. júní. Þetta árið verðum við að hafa skipulagið þannig að nemendur mæta án forelda. Mæting nemenda á sal er sem hér segir:
Yngri deild:
- 1. og 2. bekkir kl. 8:30
- 3. og 4. bekkir kl. 9:30
Miðdeild:
- 5. og 6. bekkir kl. 10:30
Nemendur mæta á sal skólans en fara síðan í sínar heimastofur með umsjónarkennara.
Skólaslit nemenda í 7. - 9. bekk
- Mæting nemenda í 7. - 9. bekk á sal er kl. 11:45.
Þetta árið verðum við með skipulagið þannig að nemendur mæta án foreldra.
Nemendur mæta á sal skólans en fara síðan í sínar heimastofur með umsjónarkennara.
Minnum nemendur á að koma með þær bækur og Ipad sem skila þarf fyrir sumarið.
Stelpur og tæknin
Körfubolti
Frímínútur
Fræðslumyndbönd fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna
Fræðslu- og rannsóknastofa um þroska læsi og líðan barna og ungmenna hefur útbúið myndbönd fyrir foreldra barna á Íslandi. Verkefnið var styrkt af samfélagssjóði Háskóla Íslands. Markmiðið er að kynna niðurstöður íslenskra og erlendra hágæðarannsókna á einfaldan og hagnýtan hátt.
Þetta eru tvö myndbönd, annars vegar Málörvun leikskólabarna og hins vegar Fjöltyngd börn í íslenskum leik- og grunnskólum. Síðarnefnda myndbandið er með textum á ýmsum tungumálum. Myndböndin fjalla um það hvernig foreldrar geta stutt við málþroska barna sinna og þar með gengi þeirra í námi.
Myndböndin eru aðgengileg á heimasíðu Rannsóknastofunnar https://menntavisindastofnun.hi.is/is/rannsokna-og-fraedslustofa-um-throska-laesi-og-lidan-barna-og-ungmenna
6. bekkir fóru í heimsókn í siglingaklúbbinn Þyt
6. bekkir fóru í heimsókn í siglingaklúbbinn Þyt
6. bekkir fóru í heimsókn í siglingaklúbbinn Þyt
Skóladagatal 2021-2022
Skólasetning næsta skólaárs verður þriðjudaginn 24. ágúst. Tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.
Sumarfrístund í Holtaseli 2021
Mánudaginn 14. júní hefjast sumarfrístund í Holtaseli. Skráning fer fram á „mínum síðum“ á www.hafnarfjordur.is. Þeir sem hafa skráð barn á sumarfrístundina geta bætt sér í hóp á facebook sem heitir „Sumarfrístund í Holtaseli 2021“
https://www.facebook.com/groups/3192161660846984/
Hér má nálgast bækling fyrir starfið.
Skráning er eftir vikum og þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Allar nánari upplýsingar má finna á www.tomstund.is.
Vorskólinn
Það mátti skynja bæði spennu og eftirvæntingu hjá þessum verðandi nemendum okkur og komum við til að taka vel á móti þeim í haust.
Foreldrar verða svo boðaðir á Skólafærninámskeið í lok ágúst.
Sumarlestur Bókasafns Hafnarfjarðar og Menntamálastofnunar
- Sumarlestur
- Bókasafnsratleikur
- Bókasafnsgetraun
- Lestrarhestur vikunnar
- Auglýsing fyrir lestrarhest vikunnar
Sumarlesturinn 2021 Menntamálastofnunar er í formi 500 mínútna sumarlestraráskorun fyrir hressa bókabéusa (lestrarhesta) til að hvetja þau til lestrar. Með þessu vonumst við til að auka áhuga á lestri þar sem fjölbreytt lesefni er kynnt og leitin að lesefni sem höfðar til hvers og eins auðvelduð.
Nánar um sumarlesturinn er að finna hér. Þar má finna nánari upplýsingar á íslensku, pólsku og ensku.
Fræðslugátt Menntamálastofnunar
Á Fræðslugátt er allt námsefni Menntamálastofnunar sem til er á rafrænu formi. Í ljósi aðstæðna er þar einnig námsefni sem tímabundið hefur verið sett á rafrænt form og þannig gert aðgengilegra fyrir nemendur, kennara og foreldra.
Við hvetjum ykkur til þess að heimsækja Fræðslugáttina og skoða framboðið. Þar er til að mynda mikið af lestrarefni sem nýta má í lestrarátakinu Tími til að lesa. Þessa dagana hafa einmitt flestir góðan tíma til að lesa og þörfin fyrir hugarleikfimi hefur sjaldan verið meiri en nú.
Fræðslugátt er skipt niður í námsefni fyrir yngsta stig, miðstig og unglingastig. Einnig er þar hægt að nálgast annað efni. Undir annað efni er námsefni héðan og þaðan sem við höfum fengið ábendingar um að geti nýst skólasamfélaginu vel á þessum tímum.
Við hvetjum einnig áhugasama að skrá sig á póstlista til að fá fréttir af nýju námsefni og öðru sem tengist útgáfu námsefnis.
Undirspil við íslensk dægurlög
Guðrún Árný tónmenntakennari hjá okkur eru búin að taka upp mikið af undirspili við íslensk dægurlög. Undanfarna daga hefur hún sett dægurlögin inn á youtube. Það er fátt sem gleður hjartað meira en fallegur söngur. Já, já við getum öll sungið við þennan fagra undirleik Guðrúnar Árnýjar. Hvetjum ykkur til að taka lagið og textarnir koma líka á skjáinn.
https://www.youtube.com/playlist?list=PL1JGavIrs8DZL6WAkpzNLE9VhpPyqEeIQ
Hvað getum við gert til að líða vel?
Á þessum fordæmalausu tímum sem við lifum er gott að vera í núinu, muna eftir öllu því góða sem er í kringum okkur og þakka fyrir það, því það er svo margt sem við getum verið þakklát fyrir.
Núvitund er góð leið til að ná ró og yfirvegun og hægt að stunda hvar sem er. Núvitund er að beina athyglinni að augnablikninu, því sem er hér og nú. Rannsóknir sýna að þeir sem stunda núvitund auka vellíðan sína, bæta heilsu, það dregur úr kvíða, streitu og depurð. Til að nálgast æfingar og öpp með núvitund þá er m.a. hægt að fara inn á þessar æfingar sem er hægt að hlaða inn á snjalltæki og hlusta hvar og hvenær sem er.
Á youtube eru hugleiðsluæfingar fyrir börn. En við fullorðna fólkið verðum líka og hugsa um okkur og hér má finna hugleiðsluæfingar fyrir fullorðna. Það er mikilvægt að við hugum að okkar heilsu því við verðum að vera stuðningur fyrir aðra t.d. börnin okkar því þau skynja vel ef við erum ekki í andlegu jafnvægi.
Þegar við eða nemendur erum í leik eða starfi getur verið gott að setja á tónlist eftir t.d. Friðrik Karlsson. Þessi tónlist er afslappandi og getur fengið okkur til að gleyma stund og stað og hugsa um eitthvað fallegt.
Á vefsíður Hugarfrelsis er hægt að kaupa hugleiðslusögur fyrir börn - ekki svo dýrar en alveg frábærar til að hlusta á fyrir svefninn eða bara hvenær sem er.
Covid-19 veiran
Handþvottur er okkar besta vörn gegn smiti corona veirunnar en það á líka við almennt um aðra smitsjúkdóma líka svo sem inflúensuna, magakveisur, og augnsýkingum svo eitthvað sé nefnt. Endilega skoðið góðar leiðbeiningar hér varðandi handþvott.
Vefur Landlæknis um Corona veiruna.
Munum að:
- Gæta vel að hreinlæti, þvo hendur reglulega með sápu og nota handspritt.
- Forðast snertingu við augu, nef, munn.
- Huga vel að yfirborðsflötum t.d. hurðarhúnum, handriðum, lyftuhnöppum, snertiskjám, greiðsluposum og ljósarofum.
- Sleppa handaböndum og faðmlögum og heilsa fremur með brosi.
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/