Seyðisfjarðar- skóli
Skólahald á tímum samkomubanns.........
Gleðilegt sumar kæru vinir
Þessi vika var í styttra lagi eins og sú á undan. Við erum hress og kát eftir páskafrí og sumardaginn fyrsta.
Við munum ekki gera breytingar á skólahaldi í næstu viku frá því sem nú er, en starfsfólk skólans undirbýr nú að starfið verði með, svo gott sem, hefðbundnu sniði eftir 4. maí. Við virðum að sjálfsögðu þær takmarkanir sem taka gildi þá og aðlögum alla þætti að því sem við höfum náð að gera nú þegar.
Við stefnum þá að því að hafa útskriftir, námsmat og hefðbundið vorstarf samkvæmt skóladagatölum en jafnframt skila þroska- og færnimati í foreldraviðtölum á leikskóladeild ásamt því að aðlaga elstu börn í leikskóladeildinni að grunnskólastarfinu af krafti í maí.
Við munum einnig í samstarfi við Verkmenntaskóla Austurlands, bjóða elstu nemendum grunnskólans á rafræna skólakynningu hjá VA og árlegir skilafundir kennara varðandi yfirfærslu nemenda í grunnskólanum yfir til ME mun fara fram rafrænt.
Við gerum ráð fyrir að ljósmyndir af nemendum í unglingadeild verði teknar fyrir nýtt skólaspjald fljótlega. Ljósmyndararnir eru að skoða hvort það muni nást að taka myndir af öðrum hópum og láta vita ef af getur orðið.
Á þessari stundu er einnig ljóst að mötuneytið í grunnskóladeildinni opnar aftur 4. maí.
Niðurstöður í foreldrakönnun Skólapúlsins í leik- og grunnskóladeild eru komnar í hús og eru í skoðun hjá stjórnendum. Við fengum góðar ábendingar og höfum verið að ræða hvaða þættir megi betur fara skv. niðurstöðum. Við munum vera í samstarfi við skólaráð og fá fleiri foreldra úr foreldrahópnum til að leggja lið varðandi tillögur að umbótum.
Það er eingöngu vika eftir af þessu stranga samkomubanni og við ætlum okkur að halda það vel út. Sóttvarnirnar hjá okkur, handþvottur og þrif eru mikilvæg nú sem fyrr og við sinnum þessu af kostgæfni. Við blöndum ekki hópum og tveggja metra fjarlægðin er í enn gildi.
Gildi starfsmanna í skólanum öllum
Stjórar á fjarfundi
hvað einkennir ofurhetju? -ofurhetjuþema í 7.bekk
Helstu fréttir úr listadeildinni .....
- Hefðbundin stundatafla tónlistarnámsins tekur gildi eftir næstu viku.
- Charles Ross kemur 4. maí og kennir sínum nemendum þá vikuna.
- Sigurbjörg Kristínardóttir mun kenna aftur tónfræði í maí.
- Sandra María mun ljúka málunarnámskeiðinu sem var hafið fyrir samkomubannið, í maí.
- Sönglota með Kristjönu Stefáns verður í lok maí eða frá 25. maí til og með 5. júní. Hún mun hitta alla nemendur sína á fjarfundi á skólatíma í vikunni áður og lotunni lýkur á tónleikahaldi sem munu bera svip af þeim takmörkunum sem verða þá í gildi.
- Við stefnum að tónleikahaldi í lok maí eins og kemur fram á skóladagatalinu, þeir tónleikar verða útfærðir í samræmi við gildandi fjöldatakmarkanir.
- Gjöldin fyrir vorönnina verða send út í maí.
Í næsta fréttabréfi .........
Við skýrum nánar frá áhrifum þess að samkomubanni verður að hluta til aflétt 4.maí, í fréttabréfi í lok næstu viku. Munum öll að næsta vika er stutt vegna verkalýðsdagsins 1. maí sem ber upp á föstudag.
Verið er að reikna út leikskólagjöldin og aðlaga þau en gera má ráð fyrir að gjaldseðilinn komi til með að hafa lengri greiðslufrest en venja er og miða við skerta þjónustu. En nánar um þetta allt og fleira í næstu viku, væntalega fimmtudaginn 30.apríl.
Seyðisfjarðrskóli
Email: svandis@skolar.sfk.is
Website: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/is
Location: Suðurgata 4, Seyðisfjörður, Iceland
Phone: 4702324