Fréttabréf Hörðuvallaskóla
desember
Kæra skólasamfélag
Þá er kominn desember, jólaljós farin að prýða hverfið og aðventan hafin með tilhlökkun og öllum sínum jólahefðum. Við leggjum áherslu á að skapa notalegt og streitulaust andrúmsloft í aðdraganda jóla. Fullveldisdagurinn var notaður til að koma skólanum í jólabúning, jólaljós og fallegar skreytingar nemenda prýða hvern krók og kima. Foreldrafélagið gaf nemendum kakómjólk og kleinur og var það mjög vel þegið.
Við höfum þegar fengið upplestur úr nýjum bókum fyrir nokkra hópa, en við færðum okkur yfir í streymi þegar smitum fór að fjölga í nærumhverfinu. Í stað jólaballa á sal skólans ætlum við að endurtaka leikinn frá í fyrra í samstarfi við foreldrafélagið og bjóða nemendum í 1.-7.árgangi á jólaskemmtun í Guðmundarlundi. Mánudaginn 20. desember verða síðan stofujól hjá þessum árgöngum.
Elsta stigið okkar verður með jólaboð að kvöldi 15.12. sem félagsmiðstöðin stýrir í samstarfi við skólann. Sá viðburður kemur í stað mætingar 20. desember og því er skyldumæting þetta kvöld. Ef nemendur komast ekki þarf að biðja um leyfi fyrir þá eins og á hefðbundnum skóladegi. Þar sem fjöldi nemenda fer yfir leyfilegt hámark samkvæmt sóttvarnarreglum þá þurfa allir að fara í hraðpróf og skila neikvæðu prófi um leið og mætt er í jólaboðið.
Við vorum lánsöm og náðum tökum á þeim smitum sem voru farin af stað innan skólans. Hvorki starfsmenn né nemendur hafa greinst utan sóttkvíar nú í 10 daga. Kærar þakkir fyrir ykkar þátt í þeim aðgerðum. Við getum þó alltaf búist við að upp komi smit það er eðlilegt í ljósi fjölda smita í samfélaginu, en þá tökumst við bara á við það. Nokkuð var um að nemendur væru skráðir í sjálfskipaða sóttkví þegar póstar frá mér um smit voru daglegir. Það er alveg eðlilegt. En jafnframt er mikilvægt nú þegar við höfum aftur náð stöðugleika að sem minnst röskun verði á skólagöngu barnanna. Ef sjálfskipuð sóttkví varir lengur en tvo daga þarf að sækja um leyfi fyrir henni eins og önnur leyfi og þá er fræðsluskylda á herðum forráðamanna eins og fram kemur í leyfisbeiðninni.
Í næstu viku verða hjá okkur 7 gestir frá Ítalíu, Spáni, Tyrklandi og Portúgal, kennarar og skólastjóri sem eru samstarfsaðilar okkar í Erasmus+ verkefni sem skólinn er þátttakandi í. Gestirnir verða að mestu í skólanum í Vallakór.
Boðið verður upp á jólafrístund líkt og undanfarin ár. Mikilvægt er að skrá hvern dag sem þið þurfið að nýta, mönnun þessa daga er reiknuð út frá skráningum. Upplýsingar hafa verið sendar út frá Hörðuheimum til foreldra barna þar.
Á nýju ári 2022 hefst skólastarf með starfsdegi mánudaginn 3. janúar, frístund opnar þann dag kl 10:00. Hefðbundið skólastarf samkvæmt stundaskrá hefst svo þriðjudag 4. janúar. Mikilvægt er að hafa í huga að sund og aðrar greinar sem kenndar eru hálfan vetur eru kenndar áfram í tvær vikur í janúar, svo jöfn skipti verði milli greina. Skipti verða því ekki milli hópa fyrr en um miðjan janúar.
Með ósk um góða aðventu og gleðileg jól,
hlýjar kveðjur úr skólanum
Þórunn Jónasdóttir
skólastjóri
Skipulögð dagskrá í desember
16. og 17. desember verður jólaskemmtun í Guðmundarlundi fyrir 1.-7.árgang. Líkt og í fyrra verður farið í rútum upp í Guðmundarlund, hópnum er skipt niður á þrjár skemmtanir. Í Guðmundarlundi verður boðið upp á leikþátt, kakó, piparkökur og mandarínur. Svo er auðvitað gengið kringum jólatré.
16. desember 9:30 - 1. EG, 2. BÓ, 4. JR, 6. HS, 7.BT
Rútur mæta við skólann kl. 9:00
16. desember 10:30 - 1. GS, 3. HS, 5. HU, 6.GI, 7. MT
Rútur mæta við skólann kl. 10
17. desember 9:30 - 2. JÞ, 3. FÞ, 4. IS, 5. AR
Rútur mæta við skólann kl. 9
Mjög mikilvægt er að nemendur komi klæddir þessa daga miðað við veður. Þannig að þeir geti verið úti í klukkutíma.
17. desember er jólamaturinn okkar í hádeginu, þeir nemendur sem ekki eru skráðir í mat eiga kost á að kaupa þessa máltíð staka. Í matinn er hamborgarhryggur með kartöflugratíni, rjómalagaðri sósu, rauðkáli og grænum baunum. Boðið er upp á Garden vegansteik fyrir þá sem ekki borða kjöt. Síðan er ís í eftirrétt. Máltíðin kostar 500 krónur. Börnin geta annað hvort komið með pening og skilað til ritara eins er hægt að leggja inn á reikning: 0537-14-608294 kt.480506-1030 mikilvægt er að hafa nafn barns og bekk í skýringum.
20. desember eru stofujól frá 9:30-11:30 þá mæta nemendur í 1.-7.árgangi til sinna umsjónarkennara og eiga notalega stund með sparinesti og kósýdegi sem hver hópur skipuleggur. 6.árgangur er að æfa helgileik sem verður tekinn upp og sýndur á stofujólum.
Morgundvöl er opin fyrir nemendur í 1. og 2.árgangi frá kl 8:00-9:30.
Frístund opnar kl 11:30 en skrá þarf sérstaklega þennan dag.
Fréttir frá foreldrafélaginu
Heil og sæl kæru foreldrar og forráðamenn. Við í foreldrafélaginu erum alveg virkilega ánægð með það samstarf sem við erum að byggja upp með foreldrum skólans, markmið okkar er að efla og tryggja þetta góða samstarf áfram, efla samskipti heimila og skólans, stuðla að velferð nemenda okkar og efla tengsl foreldra innbyrðis. Reynslan hefur sýnt okkur að bestur árangur í foreldrastarfi næst með virku starfi bekkjarfulltrúa og annarra foreldra í bekkjunum. Og var því eitt af fyrstu verkefnum foreldrafélagsins í byrjun skólaárs að tryggja þessa mikilvægu tengingu inn í alla bekki skólans og hefja leit að bekkjarfulltrúum. Við náðum þeim árangri núna í byrjun nóvember að vera með tengingar inn í alla bekki og var því tilvalið að hóa alla saman í smá spjall. Við fengum Bryndísi Jónsdóttur frá Heimili og skóla í lið með okkur og kom hún í heimsókn þann, 11 nóvember. Þetta var kynningarfundur fyrir alla bekkjarfulltrúa skólans og farið var yfir mikilvægi bekkjarfulltrúa og hvaða ávinning það hefur fyrir allt skólasamfélagið okkar að hafa þessa tengingu inn í bekki skólans. Virkilega skemmtileg og fræðandi kynning.
Langar okkur einnig að nota tækifærið og láta ykkur vita af ókeypis 90min vinnustofu, fyrir foreldra sem Heimili og skóli er með í samstarfi við Dale Carnegie um Jákvæð samskipti á heimilum. Það er einfalt að taka þátt. Þú skráir þig á slóðinni www.dale.is/foreldrar og færð slóð í tölvupósti með leiðbeiningum.
Hvenær: 8. des. kl. 20.00 til 21.30
Hvar: Live Online á netinu með gagnvirkri þátttöku (einfalt að taka þátt)
Fyrir hverja: Foreldra barna á skólaaldri og forráðamenn
Verð: Ókeypis
Foreldraröltið hefur gengið ágætlega það sem af er vetri. Áhugasamir röltarar ásamt stjórn foreldrafélagsins byrjuðu með röltið í ágúst og tóku svo bekkirnir við. Mæting hefur verið misgóð en metfjöldi var þegar 9 foreldrar barna 3ja bekkjar átti röltið. Samélagið er okkar allra og hvetjum við alla foreldra til að taka þátt. Það hefur sýnt sig að sýnileiki foreldra á þessum tíma er nauðsynlegur til að koma í veg fyrir hópamyndun og til þess að minna börnin á útivistartímann.
Nú í desember hafa allir bekkir fengið boð um að mæta einu sinni í foreldrarölt. Byrjum við því á nýjum hring núna 10. desember. Til hvatningar fyrir foreldra að mæta í sitt rölt þá ætlar foreldrafélagið að verðlauna þeim bekk sem flestir foreldrar mæta í rölt upp á glæsilega pizza veislu hjá ARA bar í vor. Gott væri ef bekkir sjá fram á að ekki geta mannað röltið sitt, að hafa þá samband við röltstjóra og hann kallar í áhugasamaröltara. Við óskum alltaf eftir fleiri foreldrum í hóp áhugasamra röltara og er hægt að skrá sig á Facebook síðu Foreldrafélagsins.
Við lítum á foreldraröltið sem samfélagslegt verkefni fyrir hverfið okkar. Það hefur forvarnargildi en
foreldraröltið tengir einnig saman foreldra, styrkir þau í hlutverkinu sínu og stuðlar að öruggara nærumhverfi fyrir börn og unglinga.
Mætum og verum virk í foreldrastarfi. Foreldrastarf er gjöf til barnanna okkar.
Foreldrafélagið óskar nemendum, starfsfólki, foreldrum og forráðamönnum gleðilegra jóla og hlökkum til að vinna áfram með ykkur á nýju ári.
Kolbrún Ýr
formaður foreldrafélagsins
Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Kúlunnar
Hörðuheimar og kastalinn
Jólin eru mætt í Hörðuheimum og einkennist dagskráin af jólaföndri, jólafótbolta í snjónum, jóla just dance, jólabíó ásamt fleira skemmtilegu. Barnaráðið skipulagði jólabarnaráðsdag sem verður næsta fimmtudag, 9. desember.
2.bekkur fékk að mála lítil piparkökuhús sem sló algjörlega í gegn.
Við viljum minna á að búið er að opna fyrir skráningu í frístund yfir jólin og fer sú skráning fram inná Völu.
Dagskrá Kastalans er með jóalaþema og verður nóg um að vera.
Hörðuvallaskóli er núvitundarskóli
Eins og ykkur flestum er kunnugt höfum við verið að innleiða núvitund í skólastarfið hjá okkur.
Í vetur hefur núvitund verið föst inni í stundarskrá mið- og elsta stigi. Við kennsluna er stuðst við bókina Námsefni í núvitund og velferð fyrir börn. Þar er m.a. farið í þjálfun hugans og hvernig við getum styrkt hæfni okkar í ýmsu með æfingu. Markmiðin með kennslunni eru að nemendur fái innsýn og þjálfun í hversu mikilvægt það er að ná stjórn á huganum með því að beina athyglinni að núinu, róa hugann og ná stjórn á tilfinningum sínum.
Núvitund merkir að beina athyglinni með ásetningi að því sem er að gerast hér og nú, án þess að dæma það á nokkurn hátt. Taka eftir hugsunum, skynjunum og tilfinningum.
Hægt er að finna margar góðar æfingar á netinu sem hægt er að gera með börnunum heima. Hjá Núvitundarsetrinu eru t.d. æfingar sérsniðnar að börnum og unglingum undir flipanum æfingar, öpp og vefsíður. Hér fyrir neðan er hlekkur inn á það ásamt góðri byrjendaæfingu frá Vertu þinn besti vinur.
https://www.nuvitundarsetrid.is/hlekkir
https://www.youtube.com/watch?v=wfExlzLp3dA&ab_channel=Vertu%C3%BEinnbestivinur
Auk þess er urmull af efni á ensku inni á netinu – slá bara inn mindfulness for children eða meditation for children. Fyrir unglinga er gott að slá inn meditation and teenagers.
Núvitundarkennarar Hörðuvallaskóla