Vikupistillinn
Tímabilið 23. - 29. apríl 2018
Heilræði vikunnar
"Alvöru golf er aðalega spilað á 20 sm velli - á milli eyrnanna"
Bobby Jones
Punktar
- Við viljum biðja starfsfólk um að líta reglulega á upplýsingatöflur.
- Við viljum biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföll.
- Umgengisreglur varðandi spjaldtölvunotkun, m.a. gul- rauð- og græn svæði.
Mánudagur 23. apríl
- Umboðsmaður barna og föruneyti koma í heimsókn og skoða Bjarg.
- Menntabúðir Hafnarfjarðar verða haldnar í Hvaleyrarskóla mánudaginn 23. apríl kl. 14:00 - 15:30 matsalnum.
- Kl. 14:30 Kennsla og móttaka innflytjenda. Fræðslufundurinn verður haldinn í Bratta, fyrirlestarsal Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlið.
Þriðjudagur 24. apríl
- Samvera hjá miðdeild.
- Samtökin 78 koma með fræðslu til nemenda í 8. WR þann 24. apríl kl. 12:40.
- Nemendaráðsfundur kl. 14:00.
- Kennarafundur er kl. 15:00 í fyrirlestrarsalnum.
Miðvikudagur 25. apríl
- Fundur hjá almennu starfsfólki kl. 10.30.
- Samvera hjá yngstu deild.
- Fundur í eineltisteymi kl. 10:40.
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 13:15.
- Nemendur í 10. MK ásamt þeim Margréti og Malen koma heim frá Danmörku.
Fimmtudagur 26. apríl
- Kennarar vinna að gerð námslota á fundatíma.
- Úrslit í stærðfræðikeppni Flesborgar sem nokkrir nemendur í elstu deild tóku þátt í verða kl. 17 í Flensborgarskólanum.
Föstudagur 27. apríl
- Nú tökum við til í nærumhverfi skólans og tínum rusl með nemendum okkar frá kl. 10 til hádegis. Umsjónarkennarar verða með sinn umsjónarbekk. Öðru starfsfólki verður raðað niður á bekki.
Nemendur í 3. bekk sungu inn Bjarta daga
Nemendur í 3. bekk sungu inn Bjarta daga
Hulda Sólveig var með fyrirlestur um Vinaliða-verkefnið okkar á málþinginu í Hraunvallaskóla.
Nýtt starfsfólk í húsi
Hildur Lovísa Rúnarsdóttir hefur verið ráðin stuðningsfulltrúi í Bjarg. Bjóðum við hana hjartanlega velkomna til starfa.
Afmælisdagar í apríl
Soffía á afmæli þann 2. apríl, Grétar átti afmæli þann 3. apríl, Aldís Ebba á afmæli þann 10. apríl, Margrét Ö. á afmæli þann 13. apríl, Friðþjófur á afmæli þann 17. apríl, Agnieszka á afmæli þann 22. apríl, Þórunn ritari á afmæli þann 26. apríl, Svandís á afmæli þann 27. apríl, Einar Karl á afmæli þann 30. apríl.
Á döfinni
- Litla upplestrarkeppnin í 4. bekkjum 30. apríl hefst kl. 8:20.
- Logos skimun fyrir lestrarerfiðleikum verður lögð fyrir nemendur í 8. bekk dagana 9. apríl til 9. maí.
- Íþróttadagur grunnskólanna þar sem nemendur í 9. bekk taka þátt verður 2. maí að Ásvöllum.
- Árshátið elstu deildar verður þann 2. maí.
- Lesferillinn er lagður fyrir alla nemendur í maí.
- Endurfyrirlögn samræmdra prófa hjá nemendum í 9. bekk verða 7. maí í íslensku og 8. maí í ensku.
- Nemendum í 5. bekk er boðið á tónlistardagskrá í Bæjarbíói 5. júní.
Vinaliðaverkefnið í Hvaleyrarskóla
https://www.youtube.com/watch?v=CkSRdASaX3M
Námslotur í Mentor-Holtaskóla
https://www.youtube.com/watch?v=Nk9Yu9wx3-Q
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200