HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 22. TBL
DAGSKRÁ 12. MARS. - 18. MARS
MÁNUDAGUR 12. MARS
Upplestarkeppni 7. bekkja í Tónlistarskólanum kl. 11:20.
Fundur hjá stjórnendum kl. 14:30
Fagfundur í stærðfræði í vikunni, fagstjórar boða til fundar.
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS
Vanda Sigurgeirsdóttir - fundur í HS með kennurum skólans frá kl. 13:00. Nemendur búnir í skólanum kl. 12:45.
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS
PISA könnun hjá 10. bekk. Prófið verður tekið í tölvustofum í HS og BS.
Deildarfundir í báðum húsum kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 15. MARS
FÖSTUDAGUR 16. MARS
Muna að athuga Vinnustund.
Góða helgi,
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Upplestarkeppnin hjá 7. bekk í Tónlistarskólanum 12. mars kl. 11:20.
- Vanda Sigurgeirsdóttir, 13. mars, með námskeið fyrir kennara frá kl. 13:00
- Pisa könnunin fyrir 10. bekk verður 14. mars. Verður í tölvustofu í HS og BS milli kl. 8:00 og 14:00.
- Skólaferðalag hjá 10. bekk 21.- 23. mars
- Þann 19. mars verður fyrirlestur frá Heimili og skóla fyrir foreldra nemenda í 8. - 10. bekk og fyrsta árið í FÍV.
- Samfés er föstudaginn 23. mars, gæti orðið fámmennt í unglingadeild.
- Mottumars stendur yfir allan mánuðinn, nú á ekki að safna mottu. Sokkar í rakarastofustíl er það sem passar öllum og verður tákn mánaðarins. Seldir verða sokkar til styrktar átakinu 5.-19. mars.
Tilkynningar !!
- Söngur á sal í Hs föstudaginn 23. mars
- Páskaleyfi nemenda hefst mánudaginn 26. mars, nemendur mæta aftur í skólann miðvikudaginn 4. apríl.
- Starfsdagur þann 3. apríl.
- Munum að vera ekki að ganga um ganga skólans með opna kaffibolla með heitum drykkjum þegar börnin eru í skólanum. Það skapar hættu ! Lokuð kaffimál eru í lagi.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara Vinnustundina vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
Spakmæli vikunnar
Það gerir öllum gott að geta hlegið að sjálfum sér annað veifið.
Hægeldað lambalæri með kóríander og myntusósu.
Lambalæri
Olía
Hvítlaukur
Chilli flögur
Salt og pipar
Aðferð: Berið olíu á lærið og kryddið með salti og pipar. Skerið hvítlauk smátt niður og nuddið lauknum og chilli flögunum á lærið. Chilli flögur eftir smekk.
Látið lærið í ofnin á 60 gráðum (medium/rare) í 8 klukkustundir. Þeir sem vilja lærið betur eldað (medium) stillið hitastigið á 65 gráður. Takið það svo út og látið standa í 45-55 mínútur áður en það fer aftur inní ofnin á 220 gráður (stilla á grill) í 5-7 mínútur.
Meðlæti: Bjóðið uppá ferskt salat að eigin vali . Gott er að nota hluta af fersku kryddjurtunum sem fara í sósuna í salatið.
Einnig er gott að bjóða uppá ofnbakaðar sætkartöflur. Skerið sætkartöflurnar í bita og berið smá olíu á. Kryddið með pipar og basiliku. Bakið í ofninum meðan að kjötið er að jafna sig á 200 gráðum í 40 mínútur. Saltið eftir að þær eru komnar úr ofninum.
Sósa:
½ búnt kóríander, smátt saxað
½ búnt mynta, smátt söxuð
2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 tsk. hunang
1 tsk. sítrónusafi
1 ½ dl sýrður rjómi
1 ½ dl majónes
salt og nýmalaður pipar
Allt sett saman í skál og hrært vel saman.
Hrós vikunnar fá
GRV fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.