Fréttabréf Naustaskóla

1. tbl. 15. janúar árgangur 2022

Kæra skólasamfélag

Gleðilegt ár!

Á þessum tímamótum förum við bjartsýn inn í nýtt ár með það að markmiði að halda uppi metnaðarfullu skólastarfi þrátt fyrir heimsfaraldur og þær takmarkanir sem honum fylgir. Næstu vikurnar reynir á gott samstarf heimilis og skóla þegar smitum fer að fjölga og nemendur fara í sóttkví. Þá þurfum við öll að vera þolinmóð og þrautseig og mikilvægt er að halda í þá vona að bráðum komi betri tíð með blóm í haga og að veiran hverfi á bak og burt. Við vonumst til að eiga áfram gott og gefandi samstarf við foreldra enda er gott samstarf heimilis og skóla lykilatriði að vellíðan og árangri nemenda í námi. Það er spennandi vorönn fram undan með árshátíð, upplestrakeppni og fleiri skemmtilegum uppákomum – ef Covid veiran verður til friðs.

Bryndís Björnsdóttir, skólastjóri.

Veikindi og sóttvarnir

Nú sem áður þurfum við ávallt að huga að daglegum sóttvörnum og fylgja reglum sem eru í gildi hverju sinni í samfélaginu. Í skólanum minnum við á að allir þurfa að þvo sér vel um hendur og spritta sig eftir þörfum.


Ef nemendur sýna einkenni eða eru veik/slöpp þá biðjum við ykkur um að halda þeim heima og fara í sýnatöku. Það er betra að nemendur séu heima ef þeir sýna einkenni því þá sleppum við síður við að fara í sóttkví eða smitgát. Það eykur frelsi okkar allra og betri líðan þegar á heildina er litið.


Ef við þurfum á einhvern hátt að breyta skipulagi í skólastarfi eða upplýsa ykkur um stöðu mála í ákveðnum árgöngum þá sendum við tölvupóst/upplýsingar til þeirra sem málið snertir.

Við viljum hafa upplýsingaflæðið gott, í hæfilega miklu magni og vera í góðu samstarfi við ykkur.


Ef ykkar barn greinist með Covid þarf að láta stjórnendur skólans vita en ef barn fer í sóttkví eða smitgát þá skal láta ritara skólans vita um það. Einnig minnum við á að foreldrar þurfa að skrá eða hafa samband við ritara ef um almenn veikindi er að ræða.

Á döfinni í janúar

6. jan - Þrettándinn

14. jan - smiðjuskil 4. -7. bekkur

17. jan - vika jákvæðs aga

21. jan - bóndadagur

Big picture