HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 13. TBL
DAGSKRÁ 28. NÓV. - 2. DES.
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER
Nemendaverndarfundur í Bs kl. 9:00
Örnámskeiðið Google-Forms 14:20 í tölvustofu BS
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER
Nemendaverndarfundur í Hs kl. 14:00
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER
Deildarfundur BS og HS- undirbúningur smiðjudaga á miðstigi
undirbúningur fyrir föndurdag í Hs
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER- FULLVELDISDAGURINN
Jólaföndurdagur í Hs , foreldrar sérstaklega boðnir í skólann þennan dag.
Líknarkaffi í Höllinni kl. 15:00
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER
Síðasta tækifæri til að skrá sig á jólahlaðborð hjá Einsa Kalda.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- 28. nóv. lestrarspretti lýkur í HS.
- 28. nóv. Guðbjörg verður með Örnámskeið í google forms kl. 14:20 í tölvustofu Bs.
- 1. des. Jólaföndurdagur í Hs, foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í skólann þennan dag.
- 7. - 9. des. Smiðjudagar í 6. og 7. bekk.
- 9. des. Jólamatur: Í ár verður jólamatur starfsfólks GRV hjá Einsa Kalda. Skráning á kaffistofum fyrir 2.des.
- 13. des. Jólasundmót hjá 6. og 7. bekk kl. 9:00
- Tónleikar Litlu lúðrasveitarinnar verða 14. des. fyrir 1. - 5. bekk í Íþróttahúsinu.
- Helgileikurinn verður sýndur í Landakirkju sunnudaginn 18. des. og á Hraunbúðum 19. des. sama dag verða sýningar fyrir nemendur í 1. - 4. bekk.
- Litlu jólin hjá 1. - 5. bekk verða þann 20. desember.
Tilkynningar !!
- Skólinn hefur ákveðið að fjárfesta í baunakaffi- og sódavatnsvél. Verða að öllum líkindum settar upp fyrir 1.desember.
- Sigurlás skólastjóri verður ekki við í næstu viku.
- Eins og undan farin ár býður GRV öllu starfsfólki sínu í 1. des. kaffi Líknar. Kaffið verður í Höllinni fimmtudaginn 1. des. og vorum við beðin um að koma upp úr kl. 15:00. Vinsamlegast látið merkja við ykkur við innganginn.
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
- Lesið við sama borð - Breyttur tími, er núna þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00. Sjálfboðaliðar aðstoða erlenda nemendur skólans við lestur og heimanám.
- Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð. Þátttaka hefur verið frekar dræm nú í vetur, megum ekki láta þessa aðstoð falla niður.
Hrós vikunnar fá
Uppskrift vikunnar - Japanskt kjúklingasalat
Salatdressing
- 1/2 bolli olía
- 1/4 bolli balsamic
- 2 msk skykur
- 2 msk sojasósa
Setjið allt í pott og sjóðið saman í u.þ.b. 1 mínútu. Takið af hitanum og hrærið annað slagið í á meðan blandan kólnar (til að sósan skilji sig ekki)
- 1 poki núðlur (instant súpunúðlur, ekki kryddið)
- 1-2 msk sesamfræ
- 3-4 msk möndluflögur
Brjótið núðlurnar smátt niður. Ristið á þurri pönnu, byrjið á núðlunum (því þær taka lengri tíma) og bætið svo möndlum og semsamfræjum á pönna. Ath. að núðlurnar eiga að vera stökkar. Leggið til hliðar.
- Kjúklingabringur
- Sweet hot chilli sósa
Skerið kjúklingabringurnar í strimla og snöggsteikið í olíu. Hellið sweet chillisósu yfir og látið sjóða við vægan hita um stund.
- Salatpoki (salat að eigin vali)
- Kirsuberjatómatar
- Mangó
- Rauðlaukur
Skerið niður og setjið í botninn á fati. Stráið ristuðu núðlublöndunni yfir, hellið svo balsamicsósunni yfir og að lokum er kjúklingaræmunum dreift yfir.
Spakmæli vikunnar
Robert Louis Stephenson.
Vissir þú um kaffi ... 4
Vissir þú um kaffi ... 5
Vissir þú um kaffi ... 6
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.