Nesskólafréttir
Fréttabréf um skólastarf í samkomubanni...
Dagur eins
og dagurinn í dag er kærkominn. Frábært veður, ég held að allir hópar skólans hafi nýtt það í botn. Ekki spillti fyrir að einungis þrír hópar voru úti í einu á skólalóðinni og því afar fámennt hverju sinni. Einhverjir kíktu á fótboltvöllinn góða, aðrir í lystigarðinn og enn aðrir skelltu sér alla leið út að vita.
Um samgang barna eftir skólatíma á meðan samkomubanni stendur
Samtökin Heimili og skóli leituðu eftir upplýsingum hjá sóttvarnarlækni um samgang barna eftir skólatíma á meðan á samkomubanni stendur og fengu þessar leiðbeiningar:
Foreldrar eru hvattir til þess að takmarka samgang allra í fjölskyldunni við aðra utan fjölskyldunnar sem mest og hafa í huga að halda ákveðinni fjarlægð á milli einstaklinga ásamt hreinlætisaðgerðum. Þetta gildir hvort sem um er að ræða vini eða ættingja.
Foreldrar bera að sjálfsögðu ábyrgð á því hvernig þeir útfæra þessar grunnreglur um samskipti en í raun þýðir þetta að ekki er hvatt til þess að börn séu að hittast til að leika eða læra saman að óþörfu.
Mötuneytið hjá 7. - 10. bekk
Vinasel - reikningar
Nesskóli
Email: nes@skolar.fjardabyggd.is
Website: www.nesskoli.is
Location: Skólavegur, Neskaupstadur, Iceland
Phone: 4771124
Facebook: https://www.facebook.com/Nessk%C3%B3li-1629687307303414/
Spurt og svarað: skólastarf á neyðarstigi almannavarna
Sjá einnig:
Sameiginleg yfirlýsing í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. mars.
Upplýsingasíða Sambands íslenskra sveitarfélaga um COVID-19
Viðmið Sambands íslenskra sveitarfélaga um takmarkanir á skóla- og frístundastarfi vegna Covid-19
Upplýsingavefur landlæknisembættisins og Almannavarna um COVID-19
(English and polish translations will be available shortly).