Fréttabréf Engidalsskóla sept 2021

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

Fréttabréf Engidalsskóla

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Nú er skólastarfið allt að komast í hefðbundnar skorður. Við ætlum okkur að leggja mikla áherslu á lestur og fyrsta lestrarátakið fór af stað í vikunni. Við óskum eftir samstarfi við ykkur og vitum við að saman getum við lyft grettistaki. Varðandi annað heimanám þá er heimanámsstefnan en í vinnslu en við gerum ekki ráð fyrir öðru heimanámi en heimalestri og úrvinnslu hans. Það er mjög mikilvægt að foreldrar lesi líka fyrir börnin sín sérstaklega þau sem ekki eru orðin fluglæs, þannig aukum við orðaforða og lesskilning.

Nemendur virðast vera ánægðir bæði með Stundafrið og Frístundafjör og finnst gott að hafa svona mikið val í skólanum. Við höfum þó ekki getað mannað allar smiðjur sem við ætluðum okkur sökum manneklu en það stendur vonandi til bóta.

Í síðasta fréttabréfi var aðeins komið inn á mikilvægi svefns og í tengslum við það viljum við minna á útivistarreglur taka breytingum 1. september ár hvert. Við sendum fyrir stuttu út leiðbeiningar varðandi hollt og gott nesti í skólanum. Langflestir hafa tekið tillit til þess en við verðum að biðla til þessara örfáu sem en eru að koma með eitthvað sem við viljum ekki fá í skólann að skoða málið betur finna eitthvað hollt og gott til að koma með. Það veldur leiðindum hjá þeim sem eru með hollt og gott nesti ef aðrir eru með eitthvað sem búið er að setja á bannlista. Hér vil ég nefna, pizzur (á ekki við heimagerðar), franskar kartöflur, djúpsteikta kjúklingabita og núðlusúpur sem dæmi.


17. september er starfsdagur, opið frá kl. 9:00 í Álfakoti en skrá þarf börnin.


Með bestu kveðju stjórnendur Engidalsskóla.

Uppeldi til ábyrgðar - mitt og þitt hlutverk

Nú í ágúst hóf skólinn innleiðingu á uppeldisstefnu sem nefnd er Uppeldi til ábyrgðar. Bekkirnir eru á fullu að skilgreina hlutverk hvers og eins. Foreldrar geta líka skoðað þetta með börnum sínum til dæmis hvert er hlutverk foreldra og barna á heimilinu og líka hvað er ekki hlutverk hvors um sig. Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar sem hægt er að notast við.
Mitt og þitt hlutverk

Hér má sjá leiðbeiningarhefti .....................

Mikilvægi svefns

Öllum er nauðsynlegt að fá næga hvíld og góðan svefn. Svefninn endurnærir og gefur okkur kraft til að takast á við dagsins gleði og amstur og er nauðsynlegur þáttur heilbrigðra lífshátta. Hann hefur áhrif á það hvernig okkur líður, samskipti við annað fólk, starfshæfni og lífsgæðin almennt (tekið af vef Embættis landlæknis). Talað er um að 6-10 ára gömul börn þurfi 10-12 klukkustunda svefn og 11-13 ára börn þurfi 9-11 klukkustunda svefn. Svefn hefur mikil áhrif á líkamlega og andlega heilsu barna og í niðurstöðum sem unnar eru upp úr nýjustu skýrslu um Heilsu og lífskjör skólabarna á Íslandi (í daglegu tali nefnd WHO rannskóknin eða HBSC) kemur fram að of lítill svefn eða svefnörðuleikar geta 25 falldað líkurnar á barn glími við depurð. Fyrir þá foreldra/forsjáraðila sem telja að barn sitt fái ekki nægan svefn og vilja taka á því bendum við á að ýmsar leiðbeiningar og skráningarform er að finna á heimasíðu Sálstofunnar sem mjög gott er að nýta sér.

Lestrarátak í september

Á myndinni hér fyrir neðan sjáum við lestrardreka Engidalsskóla, sem við gerum auðvitað ráð fyrir að eigi eftir að lengjast töluvert. Eins og fram kom í bréfi sem foreldrar/forsjáraðilar fengu sent byrjaði lestrarátaka 6. september og lýkur því 20. september. Nemendur skrá lesnar mínútur og lita inn í klukkuform, mikilvægt er að fylla formið áður en því er skilað í skólann. Telja má þær mínútur sem lesanar eru en líka þær mínútur þar sem lesið er fyrir börnin eða ef þau hlusta á hljóðbækur. Það verður spennandi að fylgjast með drekanum lengjast.
Big picture

Samþætt frístundastarf - Frístundafjör og Stundarfriður

Stundarfriður


Nemendur á miðstigi velja daglega hvað þeir vilja gera í því hléi sem fékk nafnið Stundarfriður. Flestir byrja daginn á að velja á stórri valtöflu í anddyri skólans en hægt er að velja viðfangsefni bæði inni og úti. Mikil ánægja er hjá nemendum með þessa nýbreytni og tala nemendur um að það sé frábært að hafa svona mikið val í skólanum.


Frístundafjör


Nemendur á yngra stigi völdu í samráði við foreldra. Íþróttasalur og youtube-danssmiðja eru mjög vinsælar smiðjur og hér má sjá stutt myndband af dansi sem nemendur gerðu. Mörgum krökkum þykir einnig gaman að tefla og er gaman að sjá hve liðtæk þau eru í Skákinni.

Ein mikilvægasta dagbók sem ég mun eiga

Í fyrra fór 5. bekkur í gegnum fjórar vikur þar sem þau hugsuðu og skráðu niður fyrir hvað þau geta verið þakklát fyrir, drauma sína, hverjum þau vilja hrósa og hvað þau hafa fallegt að segja um sjálfan sig svo dæmi séu tekið. Nemendur fengu dagbók sem þau skráðu hugsanir sínar í og má sjá forsíðuna á myndinni hér til hliðar. Lögð var áhersla á að bókin væri þeirra og ekkert námsmat upp úr henni. Verkefnið var hluti af sjálfstyrkingu nemenda og tókst það vel, að við munum halda áfram með það og núverandi 5. bekkur mun fá bók á næstunni.

Smiðjur og áhugasvið nemenda í 5. - 7. bekk

Í haust fjölguðum við greinum sem kenndar eru í smiðjutímum hjá nemendum í 5.-7. bekk og bættum svo við tveimur tímum í áhugasvið nemenda. Átta greinar eru kenndar í smiðjum og virðist vera almenn ánægja með það. Í vetur erum við með kennara sem helga sig algjörlega textílkennslu og smíðakennslu og er mikil ánægja með það. Sjáfsrækt er ný smiðja og útivistarsmiðjan er með ýmiskonar tvisti og heitir útvist og annað en þau hafa meðal annars verið að vinna með Legó. Á myndunum hér að neðan má sjá myndir þar sem nemendur voru að byggja samkvæmt leiðbeiningum og verkefni úr myndmennt. Við ætlum að vera dugleg að taka myndir af verkefnum nemenda og birta í fréttabréfunum.

Skemmtilegar myndir úr smiðjuvinnu nemenda

Nestismál

Big picture

Reykjaferð 7. bekkjar

Það voru ánægðir nemendur sem stigu út úr rútunni föstudaginn 3. september. Fyrsti hópurinn frá okkar skóla sem fór í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði.

Nemendur fræddust um ýmislegt og skemmtu sér vel á kvöldvökum. Dýrmætur tími sem á eftir að lifa í minningunni lengi.

Við eru óendanlega stolt af okkar nemendum sem stóðu sig með stakri prýði :)

Skólabúðir á Reykjum

Munið eftir starfsdeginum 17. september 2021

Big picture