Fréttabréf Egilsstaðaskóla
Desemberdagatal
Höldum fullveldisdaginn hátíðlegan
29. nóvember
Sparifatadagur í skólanum í tilefni 1.des. Hátíðardagskrá á sal.
Jólaföndur foreldrafélagsins
30. nóvember
Jólaföndrið foreldrafélagsins verður á laugardaginn 30. nóv frá kl.13-15. Nemendur í 9. bekk verða með kaffihús sem fjáröflun fyrir skólaferðalagið. Ekki er skyldumæting á jólaföndrið en allir eru hvattir til að mæta og eiga notalega stund.
Jóla, jóla
13. desember
Jólahúfu- og jólapeysudagur. Nemendaráð hvetur alla til að taka þátt.
Jólastund í skólanum
19. desember er síðasti kennsludagur fyrir jólafrí.
Þann dag er ein kennslustund í hverjum árgangi svokölluð jólastund. Þá eru nemendur með umsjónarkennurum í sinni stofu. Þar verður notaleg stund, lesin jólasaga og nemendur gæða sér á góðgæti sem þeir koma með að heiman. Munum eftir því að skólinn er hnetulaus.
Jólaskemmtun fyrir 7.-10.bekk
19. desember
Kl. 19:00-22:00.
Skemmtun í skóla og diskótek í Nýung.
Nemendur og kennarar 8.-10. bekkjar sjá um skemmtiatriði. Jólaskemmtun er skóladagur og því þarf að sækja um leyfi fyrir nemanda komist hann ekki. Að lokinni jólaskemmtun fara nemendur í 7.-10.bekk í jólaleyfi. Ókeypis er á skemmtunina og diskótekið.
Jólaskemmtun fyrir 1.-6. bekk
20. desember
Skóladagur kl. 10:00 - 11:30
Nemendur mæta í bekkjarstofur til umsjónarkennara. Jólaskemmtun er á sal. Á jólaskemmtununum 1.-6. bekkjar verður jólasagan flutt, dansað kringum jólatré og etv. koma gestir í heimsókn. Foreldrum 6. bekkjar er boðið að fylgjast með flutningi jólasögunnar.
Foreldrar er velkomnir á jólaballið. Nemendur fara heim að lokinni jólaskemmtun.
Frístund er opin frá kl. 8:00-16:00.
Skólabyrjun á nýju ári
3. janúar er starfsdagur - ekki skóli og Frístund lokuð.
6. janúar mæta nemendur aftur í skóla.
Frístund opin frá kl. 8:00 þann dag.