Bundið áfangaval og valáfangar
HAUSTÖNN 2022
- BLAK BLAK2ÞJ05
- BOGFIMI BOGF2ÞJ05
- HANDBOLTI HAND2ÞJ05
- KNATTSPYRNA KNAT2ÞJ05
- KÖRFUBOLTI KÖRF2ÞJ05
- ÓLYMPÍSKAR LYFTINGAR ÓLFT2ÞJ05
- SKÍÐAGANGA SKÍG2ÞJ05
- SUND SUND2ÞJ05
Nemendur sem ætla sér í háskólanám eru hvattir til að taka fleiri 3. þrepsáfanga en lágmark á brautinni segir til um.
DANSKT MÁL OG SAMFÉLAG 2
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: DANS2BF05
Nemendur kynnast dönskum bókmenntum og hvernig þær endurspelga danskt samfélag. Nemendur fái munnlega þjálfun í að tjá sig munnlega, kynnast hinum ýmsu mállýskum og hvar þær eru sterkastar. Farið verður í uppruna dönskunnar og skyldleika hennar við íslensku, tengsl landanna og áhrif þeirra á íslenska menningu og samfélag. Einnig farið stuttlega yfir sögu og menningu Færeyja og Grænlands, stöðu dönskunnar í þeim löndum og ríkjasamband þeirra við Danmörku.
EÐLISFRÆÐI-VARMAFRÆÐI, HRINGHREYFING, SVEIFLUR OG BYLGJUR
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: EÐLI2AF05 og STÆR2VH05
Í þessum áfanga er farið yfir grunnatriði í tengslum við varmafræði, hreyfingu hluta í fleti, hringhreyfingu. Þyngdarlögmálið, sveiflu- og bylgjuhreyfingar og bylgjur í fleti. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
ALMENN EFNAFRÆÐI
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR2JA05
Í þessum fyrsta áfanga í efnafræði fyrir nemendur á náttúruvísindabraut verður farið í grunnatriði almennrar efnafræði. Frumefni, atóm, jónir og sameindir, lotukerfið, rafeindaskipan og efnatengi, nafnakerfi ólífrænna efna, efnahvörf og efnajöfnur, mólhugtakið, lausnir, gas og magnútreikninga.
ENSKA - YNDISLESTUR
Undanfari: ENSK3HO05
Nemendur lesa sér til ánægju og skila skýrslum og lestrardagbókum. Nemendur hafa frjálst val að mestu leyti hvaða bækur þeir velja með nokkrum reglum.
Áfanginn er kenndur í fjarnámi.
FÉLAGSFRÆÐI - KENNINGAR OG SAMFÉLAG
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í þessum áfanga er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar og kynntar helstu kenningar greinarinnar. Samfélagið er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og nokkrar þekktar rannsóknir innan félagsfræði skoðaðar. Farið er yfir vítt svið félagsfræðinnar og nemendur þjálfaðir í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslegum málefnum.
MANNFRÆÐI
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLA2KS05
Nemendur munu kynnast undirflokkum mannfræðinnar og vinna nokkuð með líffræðilega mannfræði. Megináherslan verður þó á félagslega mannfræði. Nemendur munu kynna sér helstu rannsóknaraðferð mannfræðinnar, þátttökuathugun og munu fá að spreyta sig á aðferðinni með því að vinna einfalda rannsókn sem felur í sér þátttökuathugun. Í áfanganum verður meðal annars fjallað um ólík fjölskylduform, sifjakerfi, hagkerfi, trúarhugmyndir, kynhlutverk og lagskiptingu.
FJÖLMIÐLAR OG MENNING
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Áfanginn er inngangur og kynning á fjölmiðlum. Fjallað verður um þrjú form nútímafjölmiðlunar: blöð og tímarit, ljósvakamiðla og fjölmiðlun innan netheima. Kannað verður hvað einkennir boðskipti innan þeirra og þau borin saman, bæði í sögulegu og fræðilegu samhengi. Einnig verður farið í sögu nútímamenningar, nemendur kynna sér ýmsar tegundir afþreyingarmenningar sem fjölmiðlar hafa skapað. Fjallað verður um fréttaflutning í nútímasamfélagi og hvernig fjölmiðlar og fréttastofur meðhöndla fréttir. Þess er ætlast að nemendur fylgist nokkuð með þeim atburðum sem eru að gerast á líðandi stundu. Ennfremur er fjallað um kenningar um áhrifamátt fjölmiðla og þátt þeirra í félagsmótun einstaklinga og á þróun og tíðarandann í samfélaginu.
GRUNNÁM MÁLM- OG VÉLTÆKNIGREINA 1. ÁR (GRMVH2022)
Undanfari: Enginn
Grunnnám málm- og véltæknigreina veitir nemendum undirbúning til áframhaldandi náms í málm- og véltæknigreinum s.s. í stálsmíði, bifvélavirkjun og vélstjórn. Auk kjarnagreina taka nemendur faggreinar s.s. málmsuðu, málmsmíðar, rafmagnsfræði og vélstjórn.
GETTU BETUR
Undanfari: Enginn
Gettu betur er þriggja eininga valáfangi á fyrsta þrepi. Áfanginn er aðeins í boði í dagskóla og krafa er gerð um a.m.k. 85% mætingu. Áfanginn hefur í senn fræðslu- og skemmtigildi. Nemendur verða þjálfaðir í að svara alls kyns spurningum í anda Gettu betur keppninnar. Ennfremur afla nemendur sjálfir fanga sem víðast og búa til spurningar sem notaðar verða til æfinga. Rætt verður um mikilvægi góðrar liðsheildar og stuðnings skólasamfélagsins alls.
INNGANGUR AÐ HEIMSPEKI
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Er guð til? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu.
HÖNNUN OG BLÖNDUÐ TÆKNI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum verður kennd markviss hugmyndavinna. Nemendur halda dagbók og vinna markvissa skissuvinnu og safna hugmyndum sínum í hugmyndabanka. Nemendur að temja sér aðferðir við að skynja umhverfi sitt og nýta það til listsköpunar, eins og með endurnýtanleg efni. Nemendur fá að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan hönnunar. Verkefnin eru undir leiðsögn kennara og nemendur hanna hluti úr mismunandi efnum með tilliti til efnis, litavals og útlits.Nemendur þjálfaðir í að vinna sjálfstætt og þjálfist í gagnrýnni hugsun gagnvart eigin verkum og annarra. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.
ÍSLENSKA - GLÆPASÖGUR
Undanfari: ÍSLE2MG05
Í áfanganum verða lesnar íslenskar og erlendar glæpasögur, lítillega fjallað um sögu glæpasagnaritunar og nokkrir þekktir glæpasagnahöfundar kynntir. Glæpasöguformið verður skoðað og skilgreint og fjallað um stöðu glæpasögunnar innan bókmenntanna. Í áfanganum verða einnig skoðuð tengsl þessara bókmennta við aðra miðla svo sem sjónvarp og kvikmyndir. Nemendur lesa glæpasögur og vinna ýmis verkefni sem tengjast glæpasagnageiranum og semja meðal annars eigið hugverk á þessum nótum.
RITLIST - SKAPANDI SKRIF (ÍSLE3RS05)
VALÁFANGI
UNDANFARI: ÍSLE2MG05
Í áfanganum verða kenndar aðferðir í skapandi skrifum, nemendur fá rými og leiðsögn í að þróa eigin stíl og þjálfa ritfærni. Meðfram verða lesnir mismunandi textar og farið í ýmiskonar æfingar sem veita innblástur. Sem dæmi verður farið út í gerð handrits fyrir kvikmyndað eða leikið efni, ljóð, smásögur, skáldsögur, gjörninga með texta og fleira. Verkefni áfangans verða fjölbreytt og oftast geta nemendur valið sér form texta til að vinna með. Lögð er áhersla á sköpun nemenda og er sjónum beint að verklegum æfingum.
HREYFING OG HEILSURÆKT
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
HREYFING OG HEILSURÆKT
ALMENNUR KJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
SÉRHÆFING Í ÍÞRÓTTAGREIN
Undanfari: Enginn
Áfangi ætlaður nemendum sem leggja stund á íþróttagreinar en eru ekki nemendur á afreksíþróttasviði.
TEYGJUR OG LIÐLEIKI
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í þessum áfanga er unnið með teygjur og liðleika.
ÞJÁLFUN, HEISLA OG VELLÍÐAN
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Nemendur kynnist og læri undirstöðuatriði er varðar skipulagningu á hreyfingu og öðlist þekkingu á gildi útivistar. Markmið áfangans er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu og andlega og félagslega líðan.
Listir og menning
Undanfari: HUGN1HN05
Í áfanganum verður áhersla lögð á tengsl menningar og samfélagsgerða. Skoðuð verða forn menningarsamfélögum, áhrif kristni og gyðingdóms á evrópska menningu í fortíð og nútíð og sjónum beint að þjóðfélagsbreytingum sem endurspeglast í menningu og listum. Nokkur tímabil og menningarsvæði verða skoðuð sérstaklega og þau valin í samráði við nemendur. Dæmi um tímaskeið eru forn-egypsk menning, rómversk menning, miðaldir í Evrópu, endurreisnin í Evrópu, barokktíminn í Evrópu, 19.öldin, stríðsáramenning, rokktímabilið, blómatíminn og japönsk menning.
LÍFFRÆÐI - ERFÐAFRÆÐI
Undanfari: LÍFF2LE05
Í áfanganum, sem er valáfangi í erfðafræði fyrir náttúruvísindabraut, nýtir nemandinn þá þekkingu og færni sem hann hefur aflað sér í fyrri líffræðiáföngum og öðrum námsgreinum við vinnu að fjölþættum úrlausnarefnum og verkefnum. Meginmarkmið áfangans er að nemandinn geti einn, eða í teymi, aflað sér viðhlítandi þekkingar úr viðurkenndum heimildum og með eigin rannsóknum. Að nemandinn geti mótað eigin afstöðu studda rökum leiddum af þekkingaröfluninni sem áfanga til sköpunar nýrra hugmynda, við úrlausn flóknari verkefna eða til að afla nýrrar þekkingar.
ÁHUGALJÓSMYNDUN
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum læra nemendur að nýta sér myndavélar og myndavélina í snjallsímanum sínum á skapandi hátt sem vinnutæki. Farið verður í listræna hlið ljósmyndunar, unnið með myndbyggingu, litafræði, lýsingu, formfræði sem og nálgun myndefnis. Verkefni áfangans miða að því að nemendur öðlist færni í að taka betri myndir ásamt því að öðlast leikni í stafrænni myndvinnslu í tölvu þar sem notuð eru opin og frí myndvinnsluforrit. Unnið er með mismunandi aðstæður og birtu, inni og úti.
KVIKMYNDAHANDRIT
Undanfari: Enginn
Markmið áfangans er að kynna fyrir nemendum mismunandi uppbyggingu kvikmyndahandrita og gerð þeirra með hjálp sérhæfðra forrita. Farið verður yfir frumsamin handrit, helstu atriði í uppbyggingu handrita, tekin dæmi um hvernig bækur hafa verið umskrifaðar í kvikmyndahandrit ásamt handrit að heimildarmyndum. Megináhersla á dramatíska uppbyggingu sögu sem sögð er með hjálp kvikmyndarinnar.
MYNDLIST - ANATOMIA
VALÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: MYNL2FF05 og SJÓN1LF05
Í vestrænni menningu hefur mannslíkaminn verið eitt mikilvægasta viðfangsefni listrænnar tjáningar. Í áfanganum er beina- og vöðvabygging mannslíkamans teiknuð. Jafnframt er markmið áfangans að gera nemendur færa í að fylgja eigin listrænu fyrirætlunum án tæknilegra annmarka og að geta greint og rannsakað viðfangsefni myndlistar með akademískri aðferðarfræði.
VATNAVERÖLD
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Áfanginn fyrir alla nemendur sem hafa áhuga á að kynnast vatni í öllum sínum jarðlegu myndum til hugmynda um vatn í geimnum. Við lifum í vatnaveröld sem breytist stöðugt. Þekking og skilningur á eðlis-, efna- og líffræðilegu mikilvægi vatns og mismunandi aðgengi að því, er nauðsynlegur til að stuðla að sjálfbærni við nýtingu vatns á jörðinni. Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbærni vatns, verða lögð til grundavallar
Nemendur taka þátt í öflun þekkingar um vatn, m.a. í efnaferlum, mótun búsvæða og í lífverum. Þeir móta viðfangsefni kennslustundanna sem byggja á fræðsluþáttum um vatnið, umræðu og samantekt ályktana um efnið. Námið er leiðsagnarnám með áherslu á jafningjafræðslu. Nemendur munu halda rafræna dagbók um framvindu námsins og gera eigið myndaband sem lokaverkefni þar sem þeirra sýn á stöðu vatnamála verður birt.
FAB LAB OG NÝSKÖPUN
VALAÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: Enginn
Farið er almennt yfir búnað í Fab Lab smiðjunni og þá möguleika sem felast í notkun hennar. Farið er yfir notkun á Inkscape tvívíddar vektor hugbúnaði. Kennt hvernig teikna á upp hluti, breyta og flytja á mismunandi skráarsnið. Kennt hvernig á að breyta raster myndum í vektor myndir. Farið er yfir grunnatriði í notkun á teikniforritinu Inkschape, þrívíddarforritinum Google sketchup og Blender og hvernig er hægt að nýta sér það til ýmissa verkefna. Farið er yfir grunnatriði í notkun á laserskurðartæki, vinylskera og tölvustýrðum fræsara. Unnið er með sköpunarkraft nemenda og samvinnu.
SAGA - ÁTÖK Á 20. ÖLDINNI
VALAÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: Enginn
Í áfanganum verða tekin fyrir helstu átök 20. aldar. Sérstök áhersla verður lögð á heimsstyrjaldirnar tvær, kalda stríðið og átökin Mið – Austurlöndum. Einnig verður uppgangur stórvelda í Asíu á 20. öld skoðaður. Áhersla verður á hugmyndafræðilegan bakgrunn átakanna og afleiðingar þeirra fyrir samskipti þjóða.
ÞROSKASÁLFRÆÐI
Undanfari: SÁLF2IS05
Teknar verða fyrir helstu kenningar, viðfangsefni og rannsóknaraðferðir þroskasálfræðinnar. Nemendur læra um þroska mannsins frá frjóvgun og fram á fullorðinsár, einkum líkamsþroska, vitsmunaþroska, persónuleikaþroska og tilfinningaþroska. Byggt er á því sem nemendur hafa áður lært um sögu og sjónarmið sálfræðinnar, rannsóknaraðferðir og nám. Rætt verður um helstu álitamál þroskasálfræðinnar, svo sem erfðir og umhverfi, og stigskiptan og samfelldan þroska. Skoðuð verða mótunaráhrif fjölskyldunnar, auk frávikshegðunar og ýmsan vanda barna og unglinga. Nemendur fá þjálfun í að lesa rannsóknarskýrslu í þroskasálfræði.
SJÓNLISTIR - LITA OG FORMFRÆÐI
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum kynnist nemandinn lögmálum myndbyggingar og rannsakar hvernig eðli myndflatar breytist eftir því á hvaða hátt línur og form skipta honum upp. Nemandinn þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð með það að markmiði að ná fram mismunandi áhrifum á tvívíðan flöt en einnig í þrívídd. Grundvallaratriði í meðferð lita eru einnig viðfangsefni áfangans og kannar nemandinn samspil þeirra, virkni og áhrif. Nemandinn þjálfast í að blanda liti og beita þeim á markvissan hátt. Hann þjálfast í notkun margvíslegra efna og áhalda við rannsóknir sínar. Nemandinn kynnist verkum nokkurra listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Samhliða henni þjálfast hann einnig í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
SJÚKRALIÐANÁM (SJÚK1H2022)
Undanfari: Eins árs nám í framhaldsskóla
Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Í náminu er rík áhersla lögð á samvinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem sjúkraliði á Íslandi. Starfsheitið sjúkraliði er lögverndað. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum.
SKYNDIHJÁLP
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
12 klukkustunda námskeið í skyndihjálp, kennt þrjá eftirmiðdaga.
FLÓKNARI BORÐSPIL
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
STUÐNINGUR Í NÁMI
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Vilt þú fá stuðning í námi? Áfangi fyrir nemendur sem vilja fá stuðning í námi, fyrir nemendur sem eru með annað móðurmál en íslensku eða hafa búið erlendis. Í stuðningsáfanganum koma nemendur með sín eigin verkefni og fá aðstoð kennara eftir þörfum.
STÆRÐFRÆÐI - HEILDUN, RUNIR OG RAÐIR
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR3DF05
Í áfanganum er unnið með stofnföll falla, óákveðið og ákveðið heildi og heildunaraðferðir. Deildajöfnur af fyrsta stigi eru skoðaðar og runur og raðir.
STRJÁL STÆRÐFRÆÐI
VALÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL
Undanfari: STÆR2GF05/STÆR2GN05/STÆR2JA05
Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Helstu efnisatriði eru: Mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, reiknirit, raðir, jafnmunaröð, jafnhlutfallaröð, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10, leifaflokkar og aðgerðir með leifaflokkum.
FORRITUN
Undanfari: Enginn
Farið er lauslega yfir sögu forritunar, uppbyggingu tölvu og helstu stýrikerfi. Farið er í undirstöðuatriði forritunar og lausnir einfaldra forritunarverkefna í hlutbundnu forritunarmáli, t.d. Python og Pygame eða Java. Áfanginn getur hentað nemendum á öllum brautum. Helstu hugtök: Uppbygging tölvu, hugbúnaður og vélbúnaður, breytur, virkjar, fylki, heiltölur, kommutölur, gildissvið (scope), slembitölur, strengir, listar, grafík, föll, stafasett, tvíundar-, tuga- og sextándaform, búlskar segðir og skilyrðissetningar, lykkjur, inntak og úttak í textabundnum notendaskilum, athugasemdir röðun, prófun og villuleit.
INNGANGUR AÐ UPPELDIS- OG MENNTUNARFRÆÐI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í áfanganum er uppeldi skoðað frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um foreldrahlutverkefnið og rætt um hverju væntanlegir foreldrar geta búist við þegar von er á barni. Kynntar eru aðferðir atferlisstefnunnar við uppeldi og agastjórnun.
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/