Nemandi vikunnar
Vikan 5.-11. desember 2017
Björn Þórir er nemandi vikunnar
Nafn: Björn Þórir Steingrímsson
Gælunafn: Björn
Bekkur: 7. bekkur
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Upplýsingatækni
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Fara í rússíbana
Áhugamál: Tölvur, Rubik´s cube
Uppáhaldslitur: Appelsínugulur
Uppáhaldsmatur: Blóðmör
Uppáhaldssjónvarpsefni: Friends
Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit? Five finger Death punch
Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Arsenal
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Kannski forritari
Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Kiribati, mjög afskekktar og spennandi eyjar í miðju Kyrrahafi.
Ef þú verður frægur þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða frægur? Leikari
Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Sáttur við reglurnar heima
Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Hreint vatn
Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Ódýrar vélhendur eða aðrir útlimir
Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Haltu áfram að gera það sem þér finnst skemmtilegt og ekki láta aðra brjóta þig niður.
Við þökkum Birni Þóri kærlega fyrir skemmtileg svör.