Grunnskóli Reyðarfjarðar
Skólablað 2019 -2020
Ritnefnd skólablaðsins
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Díana Ívarsdóttir.
Blaðamenn: Ásdís Iða Hinriksdóttir, Daníel Arnar Stefánsson, Helgi Valur Björnsson, Jakup Peta, Klara Sól Jónsdóttir, Kristín Mjöll Guðlaugardóttir, Reynir Þór Jóhannsson, Þórður Páll Ólafsson, Þórhallur Gunnarsson.
Öðlingar, verðandi 1. bekkingar í Grunnskóla Reyðarfjarðar
1. Hvað heitir þú?
2. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
3. Hlakkar þig til að fara í skólann?
4. Hvað heitir besti vinur þinn?
5. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
Alexander Kári Fjallmann Sigurðsson
- Pizza.
- Já
- Haukur Leó sem er í skóla.
- Eins og pabbi minn.
Antoni Marcin Nowicki
- Pizza
- Já
- Igor
- Boxari
Aría Lív Sindradóttir
- Kjúklinganaggar og fiskistappa
- Já
- Júlíanna
- Leikskólakennari og kokkur
Arnþór Ingi Sigurðsson
- Pizza og franskar
- Já
- Bergur
- Sjómaður
Aron Sigurjónsson
- Pizza
- Já
- Júlíana
- Flugmaður
Bergur Rafn Kristjónsson
- Pizza
- Já
- Arnþór
- Laga bíla
Björg Inga Óskarsdóttir
- Franskar og núðlur
- Já
- Sarah og Ema
- Ég ætla að vera ég sjálf
Ema mehica
- Grjónagrautur
- Já
- Farah, Dalhal og Sarah
- Ég ætla að verða sex ára
Hafsteinn Árni Bergsteinsson
- Hamborgari og Pizza
- Já
- Bergur og Viktoría
- Allt
Igor Roman Krekiewicz
- Pizza
- Já
- Antoni
- Veit það ekki
Ísarr Leví Aðalsteinssoní
- Píta
- Já
- Sigurbjörn og Viktoría
- Skíðakennari
Júlíanna Líf Helgadóttir
- Pizza
- Já
- Aría
- Ég man það ekki
Kristófer Daði Stefánsson
- Pulsa
- Já
- Nökkvi en hann er í öðrum leikskóla
- Pabbi
Marcel Zajczyk
- Pizza
- Já
- Bergur og Alexander
- Vinna í Krónunni
Mattías Hrafn Kristbjörnsson
- Hamborgari
- Já
- Þóroddur og Björg Inga
- Ninja
Mike Hnatkowski
- Grjónagrautur
- Já
- Sigurbjörn
- Veit það ekki
Sarah Mehica
- Fiskur
- Já
- Björg Inga
- Kennari
Sigurbjörn Leó Marinósson
- Pizza og bjúga
- Já
- Hafsteinn
- Spiderman og Harry Potter
Steinunn Æsa Eiðsdóttir
- Kjötsúpa
- Já
- Aría
- Tannlæknir
Viktoría Von E. Davíðsdóttir
- Hakk og spagettí
- Já
- Hafseinn
- Tannlæknir
Þóroddur Björn Óskarsson
- Pizza
- Já
- Bergur, Alexander og Sigurbjörn
- Rokkari, söngvari og smiður
Skólaferðalag 2004 árgangsins
Við hittumst öll við Fjarðabyggðarhöllina snemma um morgunin, pökkuðum dótinu okkar í litlu rútuna, hittum Díönu, Jón bílstjóra og Sigrúnu mömmu Elsu og lögðum af stað í ferðalagið. Ferðinni var heitið á Bakkaflöt en á leiðinni þangað komum við við á Mývatni og fórum í jarðböðin og fengum okkur mjög góða súpu. Eftir það stoppuðum við á Akureyri og fórum á skauta og fengum okkur nesti. Keyrðum svo beina leið á Bakkaflöt.Þar byrjuðum við á því að fara í loftbolta og róluðum á meðan Dúi spilaði á blásturspíanóið sitt og Adam söng með. Eftir góða og skemmtilega útiveru fengum við gómsæta pítsu. Fórum síðan í þrautabrautina þar sem margir duttu ofan í vatnið í lok brautarinnar. Þegar brautinni var lokið kíktu flestir í sundlaugina eða fóru í sturtu. Síðan fengum við frítíma og var hann nýttur í að mála Adam, spila Tapped Out og horfa á Magga Mix, sumir fóru reyndar inn í herbergi að hvíla sig.
Morgunin eftir fengum við okkur glæsilegan morgunverð og klæddum okkur í blautbúninga og síðan var farið í riverrafting, það var sturluð upplifun. Nokkrir stukku ofan í ískalda ána. Síðan var brunað heim í heitapottinn og hádegismat, og við fengum yndislega tómatsúpu og heimabakað brauð. Eftir hádegið, drifum við okkur síðan í rútuna og skelltum okkur á Sauðárkrók. Þar fengum við smá tíma til þess að kaupa okkur nammi og eitthvað að drekka í Skagfirðingabúð og á N1. Þaðan fórum við á skotsvæðið á Sauðárkróki sem Skotfélagið Ósmann sér um. Þar hittum við Jón sem kenndi okkur á haglabyssu og að skjóta leirdúfur. Jón gaf Kristínu leirdúfu sem því miður brotnaði á leiðinni heim. Jónatan kenndi okkur síðan á boga, þegar við vorum búin að læra á haglabyssuna og bogann fórum við að læra á riffil. Svo fórum við aftur á Bakkaflöt og borðuðum kjúkling með sérstökum kartöflum (ekki góðar). Enduðum kvöldið á spilakvöldi, spiluðum Varúlf, átum snakk og drukkum gos. Birkir spilaði undir á píanó. Veðrið var gott þó það væri komið kvöld svo sumir ákváðu að fara í Kubb og hinir í Besta svarið. Svo var farið í háttinn.
Vöknuðum fyrir níu og fengum okkur morgumat. Fórum svo í Paintball sem var epískt, sumir fengu marbletti en aðallega eftir Jón bílstjóra sem naut sín í botn. Síðan var farið upp á herbergi og þar fengum við frístund. Monika bættist í hópinn sem gerði daginn allavega helmingi skemmtilegri.Við fengum gómsætt pasta og svo fór helmingurinn á kajak og hinn helmingurinn spilaði og slakaði á. Svo voru vaktaskipti. Fengum síðan lambalæri upp á gamla mátann í kvöldmatinn. Síðan var spurningakeppni og nasl.
Fengum að sofa til klukkan níu, fórum að pakka og græja okkur og brottför frá Bakkaflöt klukkan tíu því nú var ferðinni heitið á Fossatún og var það ágætis vegalengd. Þegar við vorum komin þangað komum við okkur fyrir í litlum huttum. Fórum síðan í svokallaða Tröllagöngu og fengum okkur mexíkanska kjúklingasúpu. Steinar Berg kom síðan til okkar og fræddi okkur um staðinn og plötuútgáfuna. Eftir það fengum við að skoða plötu safnið og hlusta á nokkur lög. Síðan var frjálstími sem nýttur var á ýmsan hátt t.d. eins og að kasta annara manna skóm upp á þökin á huttunum, en Díana var ekki ánægð með það. Sumir kusu samt frekar að taka því rólega og fara í heitu pottana sem voru á staðnum.
Næsta dag var ræs klukkan sjö og var farið beint í morgunmat en ekki mættu allir á réttum tíma. Næsta stoppið okkar var í Reykjavík og var farið í Reykjavík escape. Þar var okkur skipt niður í fjóra hópa síðan hófst skemmtilegur klukkutími þar sem við reyndum að komast út úr herbergjunum, en aðeins einn hópur náði því. Þá var keyrt upp í Kópavog í Lazertag sem var náttúrulega geggað! Fengum pítsu og gos á staðnum. Nú var ferðinni heitið í Landeyjarhöfn en við stoppuðum aðeins á leiðinni til að grilla pylsur/pulsur. Herjólfur sigldi ljúft með okkur út í Heimaey og fórum með dótið okkar upp á gistiheimili. Eftir mat fórum við að spranga og í bíó þar sem við horfðum á Avengers Endgame sem fór misvel í hópinn. Eftir bíóið fóru flestir upp á gistiheimili að sofa en nokkrir fóru aftur að spranga enda veðrið dásamlegt.
Sjötti dagur ferðalagsins var aðeins öðruvísi en hinir því Birkir og Klaudia áttu afmæli. Við vorum vakin klukkutíma of snemma og vorum við ekki alltof ánægð með það. Fórum síðan í Ribsafari sem var klárlega toppurinn á ferðinni. Síðan fórum við á eldgosasafnið og síðan í sund. Við átum Hlöllabáta og síðan skelltum við okkur í Herjólf. Við vorum öll alveg dolfallin af Vestmannaeyjum. Komum við í Vík og fengum okkur ís í tilefni afmælis Birkis og Klaudiu. Við keyptum okkur nammi fyrir kvöldið, og keyrðum að Gerði við Hala. Borðuðum kvöldmat horfðum síðan á mynd og settum á okkur maska. Útsýnið yfir Hornafjörðinn var fallegt.
Morgunmatur klukkan níu og lögðum af stað heim eftir yndislega ferð. :)
Alicja og Kristín.
Hópurinn á Akureyri
Hópurinn í Fossatúni
Hópurinn á Bakkaflöt
Viðtal við Stephanie Töru sem flutti til Portúgals
1. Hvað heitirðu fullu nafni ?
2. Hvers saknarðu mest frá Íslandi ?
3. Saknarðu Íslands ?
4. Er gaman í Portúgal ?
5. Hvernig er skólinn í Portúgal ?
6. Er skólinn í Portúgal öðruvísi en hérna á Íslandi?
7. Ertu búin að læra portúgölsku ?
8. inhver loka orð ?
1. Ég heiti Stephnie Tara B. Gunnarsdóttir
2. Ég sakna örugglega mest vina minna. Ég sakna líka þess, hvað það er gaman að leika sér í snjónum og margt fleira
3. Já
4. Já það er gaman, en mjög erfitt.
5. Skólinn í Portúgal er frekar strangur og það er hellingur af reglum. Allir í skólanum fá kort útaf því að skólinn er svo stór. Ef þú gerir eitthvað rangt í tíma ertu þú sendur út. Ef þú fellur í bekknum þarftu að taka hann aftur þangað til að þú nærð honum.
6. Eins og með reglurnar, maður þarf að rétta upp hönd með tveimur fingrum eða þú mátt bara ekki rétta upp hönd. Maturinn er líka allt öðruvísi og maður tekur próf í hverri viku
7. Nei ekki beint.
8. Þið eruð heppin að eiga heima á Íslandi
Viðtalið tók Kristín Mjöll 8. bekk
Þorgrímur Þráinsson
1. Hvað heitir þú fullu nafni?
Þorgrímur Þráinsson.
2. Hvar fæddist þú og ólst upp?
Ég fæddist í KR hverfinu í vesturbænum en bjó í Reykjavík í 7 ár og Kópavogi í 3 ár flutti síðan til Ólafsvíkur og var þar frá 10 til 22 ára. Ég lít á mig sem Ólsara og sveitamann og eftir það hef ég búið í Reykjavík.
3. Hvar býrðu í dag?
Ég bý á Tunguvegi 12 rétt hjá Bústaðakirkju í Víkingshverfinu.
4. Hvar varstu í skóla?
Ég byrjaði í Landakotskóla þegar ég bjó í vesturbænum og fór síðan í Kópavogsskóla.Svo lá leið mín Grunnskóla Ólafsvíkur síðan endaði ég í MR. Var svo einn vetur í háskóla í París.
5. Er skólinn öðruvísi núna en þegar þú varst í skóla ?
Sem betur fer hefur skólastarfið þróast á jákvæðan hátt. Krakkar eru og verða alltaf krakkar. Þau reyna að komast of auðveldlega frá náminu. Nenna ekki að læra of mikið,
sofa of lítið og ætla að sleppa auðveldlega frá öllu. Svo þegar krakkarnir fara í menntaskóla, þá fatta þau það að þau hefðu átt að leggja sig meira fram. Vegna þess að einkunnir skipta gríðarlega miklu máli og stúdents próf í dag eru í rauninni ávísun á áframhaldandi nám. Þess vegna er gott að ungt fólk mennti sig alveg sama þótt að þau
myndu ekki nota það í framtíðinni.
6. Áttu fjölskyldu, maka og börn?
Kona mín heitir Ragnhildur Eiríksdóttir og ég á þrjú börn sem að heita Kristófer 26 ára,
Kolfinna 24 ára og Þorlákur Helgi 18 ára.
7. Hversu lengi hefur þú verið rithöfundur ?
Ég skrifaði mína fyrstu bók akkúrat fyrir 30 árum. Það er einmitt plakat sem verður niðri á
bóka safni. Ég er búinn að skrifa 38 bækur á 30 árum.
8. Hvað heitir fyrsta bókin sem þú skrifaðir og ertu að skrifa nýja bók ?
Fyrsta bókin sem ég skrifaði heitir, Með fiðring í tánum, svo kom Tár bros og takkaskór og
síðan Mitt er þitt. Þær fjölluðu allar um sömu krakkana. Svo skrifaði ég aðrar bækur 15
árum seinna sem voru svipaðar Svalasta 7an, 009, Undir fjögur augu og Þokan. Þær eru
svona í svipuðum anda og fyrstu bækurnar. Ég var að enda viðað skrifa bók í vetur hún
kemur ekki út á þessu ári því að mig langar að vera í fríi þessi jól. Ég er ekki viss hvað
bókin heitir en vinnuheitið er Ljós heimsins. Hún er ekki ólík bókinni, Ertu guð afi sem mjög
margir hafa lesið.
9. Lestu mikið, ef já hvernig bækur ?
Ég les ekki mikið af skáldsögum, vegna þess að vinnan mín dags daglega er að halda fyrirlestra. Þannig að ég les mikið af bókum sem eru um það að ná árangri í lífinu, bækur eins og Hámarks árangur, Lifðu í núinu og Make your bed. Vegna þess að ef ég les þannig bækur þá finnst mér ég verða betri fyrirlesari til þess að geta haft áhrif á fólk.
10. Hvað gerir þú í þínum frítíma ?
Ég skrifa bækur í mínum frítíma, ég vinn alla daga á veturna við að halda fyrirlestra. Ég vinn með landsliðinu í fótbolta í kannski 2 mánuði á ári, ég búin að vera formaður Vals í 3 ár og er ný hættur því þannig að minn frítími er svona á kvöldin og um helgar. Þá fer ég yfirleit á kaffihús að skrifa en ef ég hef tíma þá fer ég líka í golf og í ræktina. Frítíminn minn er semsagt bókaskrif, ræktin, sund og golf.
11.Hefur þú búið erlendis ?
Því miður ég var í París í 1 vetur það er mín eina eftirsjá að ná til útlanda á þessum tíma mér stóðst til boða að fara til Bandaríkjana að spila fótbolta og fá allt ókeypis en ég þorði ekki ég var huglaus tvítugur þannig að ég hvet allt ungt fólk til að fara til útlanda ef það getur.
12. Hvað er skrýtnasta landið sem þú hefur komið til ?
Qatar vegna þess að það er svo heitt, það var sérstakt að vera í Kína á sínum tíma það þar svo margt fólk. Það var skrítið að vera í Indonesíu þar var svo mikil fátækt. Þannig að hvert land hefur sinn sjarma og við getum öll lært að því að fara og skoða bara nýtt fólk, ný lönd og öðruvísi þjóðmenningu.
13.Um hvað fjallar fyrirlesturinn þinn sem þú flytur fyrir 10. bekk ?
Hann fjallar um að vera ástfangin af lífinu. Það er ein glæra sem segir allt sem segja þarf jafnvel þótt ég sé með 65 glærur. Glæran sem skiptir mestu máli er,” Því fyrr sem þú fattar að árangurinn í lífinu veltur á þér,en ekki einhverjum öðrum þá er það miklu betra. Ekki bíða eftir að mamma og pabbi eða kennarinn leysi hlutina fyrir þig. Árangurinn veltur á þér.
14. Spilaðir þú fótbolta á þínum yngri árum, ef já hvaða liði ?
Ég spilaði með Víking Ólafsvík í 3. deild í 3 ár ég skipti yfir í Val tvítugur og var með Val í 12 ár og spilaði 17 landsleiki. Ég var svo heppin sem fyrirliði Vals, vann ég alla titla sem hægt var að vinna.
15. Með hvaða liði heldur þú í dag í fótbolta ?
Ég er alltaf Valsari. Númer 2 held ég með Víking Ólafsvík og númer 3 held ég með Leeds. Leeds var eitt besta liðið þegar ég var á ykkar aldri. Ég held samt dálítið með Manchester United því ég spilaði á móti Manchester United þegar ég var yngri.
16. Eru einhver lokkaorð til krakkana ?
Því fyrr sem þú fattar að þú berð ábyrgð á sjálfum þér, þeim mun betra. Vaknaðu til lífsins, þessi dagur er mikilvægasti dagur í lífinu þínu. Því gær dagurinn kemur aldrei aftur og morgun dagurinn kemur kannski. Þetta er dagurinn.!!!
Takk fyrir okkur :)
Viðtalið tóku Þórður Páll og Þórhallur 9. bekk
Framtíðarsýn útskriftarnema
Hvar heldurðu að þú verðir eftir 10 ár?
Hvar heldurðu að þú búir?
Heldurðu að þú eigir börn þá?
Hver verður makinn þinn?
Í hvaða framhaldsskóla ætlar þú?
Við hvað ætlarðu að starfa í framtíðinni?
Hver er drauma prinsinn/prinsessan þín?
Eru einhver loka-orð?
Adam Þór Jóhannsson
Alveg örugglega í litlari íbúð í Reykjarvík sem kostaði of mikið.
Í Reykjarvík.
Nei of snemmt finnst mér.
Hver veit.
Ég ætla í Verkmentaskóla Austurlands.
Ég held ég verði bara kokkur.
Það er leyndarmál.
Hlustið á foreldra ykkar, og vinnið heimanámið ykkar.
Alicja Krupinska
Bara einhversstaðar í útlöndum að njóta
Risastóru einbýlishúsi í Vestmannaeyjum með Lilju.
Neeeei
Sjáum bara til.
VMA eða MA
Planið er að verða Tattoo-artist
Lil Tracy
Álfheiður Ída Kjartansdóttir
Gift einhverri stelpu, kannski strák, með þrjá ketti og tvo hunda, með Stefaníu og Klöru sem nágranna.
Í litlu þorpi í Skotlandi.
Uuu neibb, kannski seinna í lífinu, eða aldrei.
Vonandi Madison Beer.
Ég ætla á Egilsstaði.
Verð örugglega dýralæknir eða einhvers konar læknir.
Klara Sóldís.
“I started school with straight A’s, now I’m not even straight.”
Berglind Sigurðardóttir
Einhversstaðar í útlöndum.
Í Volkswagen rúgbrauð.
Nei.
Einhver mjög heppinn.
Kemur í ljós.
Barþjónn og eiga minn eigin bar.
Steven Hyde.
Ugh, not again
Birkir Ingi Óskarsson
Ræktinni með Óla
Vonandi í nettu húsi
Neeeeeeee
Einhver kona
ME eða MA
Enda örgl. sem lögfræðingur
Jurgen Klopp
,,Ég held að ég sé eins og vín. Því eldri sem ég verð, því betri verð ég”
(Zlatan Ibrahimovic)
Daníel Dúi Ragnarsson
Fyrir sunnan að vinna sem verkfræðingur
Í Reykjavík
já kanski
Sú eina sanna
ME
Sem verkfræðingur
Hún er kvennmaður
Ég elska sjomlana mína
Elsa Margrét Jóhannsdóttir
Ég held að ég verði búin að mennta mig og búin að kaupa mér íbúð og bíl. Ég vona að ég eigi eftir að eiga mann og barn.
Ég held að ég eigi eftir að búa annaðhvort á Akureyri eða einhverstaðar í útlöndum.
Já, held það.
Hann verður einhver.
Ég ætla í Menntaskólann á Egilsstöðum.
Óákveðið.
No comment.
Sjáumst í næsta stríði.
Hartmann Kristinn Guðmundsson
- En á Íslandi
- Undir þaki
- Kannski
- Kvk
- Þann skóla sem kennir ekki mikla stærðfræði
- Ætla að verða læknir fyrir bíla
- Dodge
- Dodge er best
Klara Sóldís S. Ragnarsdóttir
Í kósý húsi með manninum eða konunni minni.
Í litlum bæ í Skotlandi með Ídu og Stefaníu sem nágranna.
Mesta lagi eitt mannabarn og marga hunda.
HARRY STYLES.
Ég ætla í ME.
Vonandi sem sálfræðingur.
Stefanía Marín.
Grey’s Anatomy, season 5, þáttur 6, 39:40.
Klaudia Maria Snarska
Annað hvort í háskóla eða í vinnu. Það fer eftir hvernig allt fer.
Á Reyðarfirði.
Já, örugglega.
Núverandi kærastinn minn.
Framhaldsskólann á Laugum.
Ætla að vera íþróttakennari.
Einar Örn :).
- Ég var ekki að hlusta
Kristín Valgerður Snævarsdóttir
Ítalíu
Í nunnuklaustri
Nei verð nunna
Leynilegi makinn minn verður Dúi.
ME
Nunnukennari
Daníel Dúi Ragnarsson
Nocco líf betra líf
Lilja Karen Halldórsdóttir
Vonandi í Afríku.
Vestmannaeyjum með Alicju;)
Vonandi nokkur.
Hver veit;))
Laugar vonandi hehe.
Ætla allavega til Afríku í hjálparstarf.
Birkir Ingi.
Shhh ekki segja Birki..
Mikael Sindri Stefánsson
Ég á eftir að vera í Hollywood og ég er kærasti Kylie Jenners
Í Hollywood
Já ég á eftir að eignast 14 börn
Kylie Jenner en ef það gengur ekki er Kim Kardashian alltaf til
VA
Ég mun ekki þurfa að vinna þar sem Kylie er moldrík
Millie Bobby Brown
Life is like a sandwich, no matter wich way you turn it the bread comes first.
Monika Lembi Alexandersdóttir
Vonandi á góðum stað, að vinna sem hárgreiðslu kona eða eitthvað slíkt.
Mögulega Akureyri, er samt ekki viss.
Gæti vel verið.
Núverandi kærastinn minn.
Vma.
Hárgreiðslukona.
Sóli.
Þú færð kraft úr kókómjólk.
Nikola María Halldórsdóttir
Í hesthúsi.
Á höfuðborgarsvæðinu.
Getur verið, en fer eftir því hvort ég mun eiga maka þá.
Veit ekki.
Laugar.
Að fljúga flugvélum.
Veit ekki.
Nei.
Ólafur Jónsson
Í Dubai að keyra Ferrari
Dubai
Nei takk
Einhver heppin stelpa.
Laugar
Sem lögreglumaður
Elísabet II Englands drotning
Þetta fæst ekki í Costco
Patrekur Máni Hauksson
Ég verð á snekkju
Ég mun búa í Los Angeles
Nei engin börn
Lana Rhoades
VA
Verð með stærsta fyrirtæki á Íslandi
Birgitta Haukdal
If it makes money, it makes sense
Patryk Lukasz Edel
- Í háskóla
- Í Reykjavík eða Bandaríkjunum
- Ég efast um það en lífið getur alltaf komið manni á óvart
- Einhver sæt skvísa
- Ég ætla í menntaskólann á Egilsstöðum á félagsfræðibraut
- Ég ætla að mennta mig sem sálfræðingur eða lögfræðingur en draumurinn er að vera tónlistarmaður
Stefanía Marín Fannarsdóttir
Á skurðastofu að gera risastóra aðgerða á Trump (Vonandi mun hann farast á borðinu).
Í húsi hliðina á Ídu og Klöru í litlu þorpi í Skotlandi.
Kannski eitt ef ég þori.
Benjamin Wadsworth.
ME.
Ég ætla að verða frægur skurðalæknir.
Álfheiður Ída.
Of Course I Dress Well. I Didn't Spend All That Time In The Closet For Nothing.
Útskriftardagur 29. maí 2020
Bekkjarmynd frá því veturinn 2017 - 2018
HARRY POTTER
Quidditch
Þetta árið var ákveðið að halda fyrsta Quidditch mótið hér á Reyðarfirði og var það haldið í íþróttahúsinu
Hvað er Quidditch? Quidditch (borið fram kviddits) er íþrótt sem kemur úr bóka- og bíómynda seríunum um Harry Potter.
Í Quidditch eru þrjár gerðir af boltum: Tromla notuð til að skora, rotari notaður til að taka út aðra leikmenn og svo er það gullna eldingin en í myndunum er það fljúgandi bolti á stærð við golfkúlu en á mótinu var það manneskja í vesti hlaupandi um völlinn.
Leikmönnum er skipt í 2 lið, í liðunum eru sóknarmenn sem reyna að skora í mörkinn með tromlunni, gæslumenn vernda mörkinn, leitarar hlaupa á eftir gullnu eldingu og reyna að ná henni og svo eru það varnarmenn sem geta skotið leitara eða sóknarmenn þegar þeir halda á tromlunni
Það eru þrjár lotur í einum leik. Lotunni lýkur ef leitarar ná gullnu eldingunni. Liðin safna stigum og er því liði gefið 30 stig sem ná gullnu eldingunni en líka eru gefin 10 stig þegar skorað er með tromlunni.
Nýr starfsmaður veturinn 2019 - 2020
Dóra Sólrún Kristinsdóttir.
Hvað ertu gömul?
64 ára.
Hvar ólst þú upp?
Ég ólst upp á Rifi, Snæfellsnesi.
Hvenær fluttir þú til Reyðarfjarðar?
Byrjun ágúst 2019.
Hefurðu komið til Reyðarfjarðar áður?
Já, nokkrum sinnum.
Hvar áttir þú heima áður en þú fluttir hingað?
Reykjavík.
Áttu einhver börn eða gæludýr?
Já, ég á þrjú börn og fimm barnabörn en engin gæludýr.
Í hvaða framhaldsskóla gekkst þú og hver er menntunin þín?
Ég fór aldrei í menntaskóla heldur fór ég í Lyfjatæknaskóla Íslands árið 1984 og svo þaðan í Guðfræðideild HÍ árið 2011 og útskrifast árið 2014 sem djákni.
Hvað er djákni?
Djákni sér um kærleiksþjónustu og sálgæslu og getur t.d. unnið í kirkju eða með eldra fólki.
Finnst gaman að vinna hérna?
Já mér finnst mjög gaman að vinna hérna og finnst gaman að vinna með fólki.
Viðtalið tók Ásdís Iða Hinriksdóttir
Mismunandi skólaganga,
Wala Abu Libdeh
Hvað ert þú gömul?
Ég er 34 ára
Hvar áttir þú heima áður en þú fluttir hingað og hvaðan ert þú?
Ég bjó fyrst í Jerúsalem í Palestínu en svo flutti ég til Íslands og í Kópavoginn, en núna bý ég í Neskaupsstað.
Átt þú einhver börn eða gæludýr?
Ég á þrjú börn sem eru 4 ára, 7 ára og 11 ára og þau eru í skóla í Neskaupsstað.
Í hvaða framhaldsskóla gekkst þú og hver er menntunin þín?
Fór í menntaskola og var svolítið að flakka á milli, fór í hárgreiðslu og stuðningsfulltrúann, en núna er ég búin með eitt og hálft ár í kennaranámi.
Hvernig var skólagangan þín?
Mjög erfið skólaganga það eru strangar reglur og strangir kennarar. Ég var í stelpuskóla og þar voru skólabúningar. Það sem að er öðruvísi við skólann úti og hérna er að það er ekkert umburðarlyndi gagnvart börnunum þar, það er verið að lemja og meiða krakkana. Flestir kennararnir eru ekki að nenna vinnunni sinna vilja bara klára kennsluna og fara heim.
Hvað varst þú gömul þegar þú byrjaðir og laukst skóla?
Ég var 5 ára þegar ég byrjaði í skóla úti og kem síðan hingað í 5. bekk.
Hvernig ferðaðist þú í skólann?
Ég fór með strætó.
Finnst þér gaman að vinna hérna?
Mjög gaman.
Varara Voronina.
Hvað ertu gömul?
Ég er 20 ára.
Hvar ólst þú upp?
Ég ólst upp í Rússlandi, Moskvu.
Áttir þú heima áður en þú fluttir til Reyðarfjarðar?
Moskvu og Barcelona.
Áttu einhver börn eða gæludýr?
Nei, en mig langar mjög mikið í hund.
Hver er menntun þín?
Ég lærði fyrst í háskóla og þar lærði ég að verða dansari og útskrifaðist sem atvinnudansari og er núna að læra að vera atvinnudanskennari.
Hvernig var skólagangan þín og hver finnst þér helsti munurinn á skólanum hér á Íslandi og úti?
Skólinn hérna og úti eru ekki eins. Maður er lengur að læra, minni tími til að lesa og mikið af prófum og þarna eru engar smiðjur eins og við höfum hér. Þar er skylda að vera í skólabúningnum. Úti þá er í raun bara tveir skólar, það eru ekki menntaskólar né háskólar. Þar byrjarðu í grunnskóla 6 ára og lýkur honum 17 ára. Síðan fór ég í balletskólann sem er svipaður menntaskóla á Íslandi. Mér finnst miklu skemmtilegra að vera í þessum skóla.
Finnst þér gaman að vinna hérna?
Já, ég elska að vinna hérna. Ég elska fjölbreytileikann og skemmtilega andrúmsloftið.
Paola Felix.
Hvað ertu gömul?
Ég er 37 ára.
Hvar ólst þú upp?
Ég ólst upp í Suður-Peru.
Hvenær fluttir þú til Reyðarfjarðar?
Ég flutti fyrst á Eskifjörð árið 2008 og svo flutti ég hingað á Reyðarfjörð árið 2009.
Áttu einhver börn eða gæludýr?
Ég á þrjú börn, eina kisu og einn fisk.
Hvernig var skólagangan þín og hver finnst þér helsti munurinn á skólanum hér á Íslandi og úti?
Skólinn úti er mjög öðruvísi, þar eru strangar reglur. Nemendur eru í skólabúningum. Á hverjum degi, alltaf klukkan hálf 9 þá biðja þau og syngja lag fyrir landið.
Finnst þér gaman að vinna hérna?
Já mjög gaman.
Barabara Szulc.
Hvað ertu gömul?
24 ára og ég verð 25 í desember.
Hvar ólst þú upp?
Ég ólst upp í Póllandi og flutti til Eskifjarðar þegar ég var 11 ára.
Hvar átt þú heima?
Ég bý á Neskaupstað.
Hvar áttir þú heima áður?
Eskifirði.
Áttu einhver börn eða gæludýr?
Ég á Labrador hund sem heitir Sonja.
Hvernig var skólagangan þín og hver finnst þér helsti munurinn á skólanum hér á Íslandi og úti?
Úti í Póllandi þá eru strangar reglur. Í byrjun skóladags þá þurfti alltaf að standa upp og heilsa kennaranum. Það átti alltaf að vera hljóð í kennslustundum og ef þú varst með læti þá varstu rekin úr tíma og fram á gang eða beint til skólastjóra, svo þurfti maður alltaf að koma og biðjast fyrirgefningar. Ég labbaði í skólann með vinkonum mínum. Það eru svipaðar íþróttir hér og úti og mikil áhersla á hlaup. Einnig var hægt að æfa dans og ég var að æfa með vinkonum mínum og við gerðum það sjálfar.
Finnst þér gaman að vinna hérna?
Já, mér finnst mjög gaman að vinna hérna.
Ljóð eftir nemanda í 10. bekk
Sálarástand
Ég skelf hugsandi um sóltímann,
um hitann og sólskýið.
Nú fer stjörnubjarti himinninn að sjást.
Ég hverf inn í svartholið.
Himingeimurinn er eins og dýpsti partur hafsins,
þú veist aldrei hvað leynist.
Sólmyrkvinn leynir stjörnuspánni,
jörðin felur sólina eins og gríma,
tunglið verður að tunglmyrkva og andlega fer.
Nú leggst ég í næturkyrrðinni undir stjörnuþoku.
Hugsandi um sálarástandið.
Berglind Sigurðardóttir
Viðtal við Sunnu
Hvað heitir þú?
Ég heiti Kristbjörg Sunna Reynisdóttir en er oftast bara kölluð Sunna.
Hvað ertu gömul?
Ég er fædd í mars 1968 og varð 51 árs á þessu ári.
Hvernig er að vera flutt?
Það er dálítið skrítið að vera allt í einu flutt burt frá Reyðarfirði. Ég var alls ekki að hugsa um að flytja en svo kom allt í einu tækifæri til að prófa eitthvað alveg nýtt. Ég sá auglýsingu á facebook um að það vantaði skólastjóra í leik og grunnskólann á Flateyri en þar hafði ég búið frá 1988 til 1996 og kynnst manninum mínum sem er þaðan. Fyrst deildi ég þessari auglýsingu bara og skrifaði að vonandi fengju þau einhvern góðan skólastjóra. Nokkrum dögum seinna datt mér svo í hug að ég gæti tekið þetta að mér og eftir það gerðust hlutirnir hratt og hálfu ári síðar vorum við flutt vestur til að takast á við þetta verkefni.
Hvernig er að vera skólastjóri?
Ég er skólastjóri bæði í leik og grunnskólanum hérna og sem betur fer bjóst ég aldrei við að það væri létt verk að vera skólastjóri svo það kom mér ekki á óvart að það er í ansi mörg horn að líta. Þetta skólaár eru 15 nemendur í grunnskólanum og 17 í leikskólanum. Ég er flesta daga með viðveru í grunnskólanum þar sem skrifstofan mín er en einn dag í viku fer ég á leikskólann og það er virkilega gaman að hitta krakkana þar og spjalla við þá. Fyrir utan allt sem skóastjóri þarf að sinna næ ég að kenna smá. Ég kenni unglingunum náttúrufræði sem er mitt uppáhalds fag og svo fæ ég stundum að leysa af hjá yngri nemendunum.
Saknar þú Grunnskóla Reyðarfjarðar?
Já ég get ekki sagt annað en ég sakni margs frá Grunnskóla Reyðarfjarðar, kennslunnar, krakkanna og allra samstarfsmannanna. Ég mæli hiklaust með honum sem vinnustað fyrir þá sem vilja vinna á skapandi hátt með öflugum vinnufélögum og kröftugum nemendahóp.
Hvers saknar þú mest á Reyðarfirði?
Það er mjög langt á milli Reyðarfjarðar og Flateyrar svo ég sakna barnabarnanna sem hafa alltaf tekið þvílíkan vaxtarkipp þegar ég sé þau með einhverra mánaða millibili núna í staðinn fyrir að hittast daglega þegar við bjuggum fyrir austan. Já og alls fólksins míns sakna ég líka en ef ég veit að öllum líður vel þá er söknuður ekki ofarlega í huga dags daglega. Þessi fjarlægð gerir það líka að verkum að við eigum saman lengri gæðastundir þegar við förum austur og búum hjá börnum og barnabörnum og þegar þau koma vestur til okkar. Við höfum nýtt öll tækifæri til að hittast og vera saman.
Hver eru áhugamálið þitt?
Ég byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum og finnst það ennþá mjög skemmtilegt. Mér finnst líka gaman að fara í göngur einhversstaðar í óbyggðum. Og svo finnst mér gaman að prjóna og síðast en ekki síst að eiga notalegar stundir með fjölskyldunni.
Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn?
Mér finnst siginn fiskur alveg rosalega góður. Hérna fyrir vestan hengjum við upp fisk sjálf í hjöllum og látum hann síga. Algengustu matarboðin sem við höldum hér eru með signum fiski.
Við vonum innilega að Sunnu muni ganga vel sem skólastjóri í Grunnskóla Önundarfjarðar.
Viðtalið tók Helgi Valur Björnsson