Samspil 2015
UT-átak Menntamiðju
Margþætt upplýsingatækninámskeið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara:
- Útspil - staðbundið 5 klst. námskeið
- Vefnámskeið - 2x í mánuði tengd mánaðarlegu þema
- Kennslumyndskeið - 3x í mánuði, sjálfsnám
- Þátttaka í umræðu á samfélagsmiðlum
Hefst á vefnámskeiði föstudaginn 20. febrúar kl. 16:15-17:15 - Átakið og miðlar kynntir. Tryggðu þér pláss strax. Almenn þátttaka kr. 5.000, þátttaka til 10 ECTS eininga kr. 60.000.
Markmið að þátttakendur:
kynnist hagnýtum dæmum um notkun upplýsinga- og samskiptatækni
hafi gagn af námskeiðinu og geti nýtt viðfangsefni þess í eigin kennslu
geti nýtt sér upplýsingatækni og samfélagsmiðla til að sinna starfsþróun
séu virkir í starfssamfélögum á netinu og noti þau til að deila reynslu og þekkingu
geri sér grein fyrir áhrifum tækniþróunar og tæknibreytinga á nám og kennslu
fái innblástur til frekari þróunar efnis, aðferða og samstarfs
Ástundun
- Vinnuálag í lágmarki
- Ráðgjöf og stuðningur á samfélagsmiðlum
- Virk þátttaka
- Leiðarbók
Stað- og tímasetning
Höfuðborgarsvæðið 9. mars (framhaldsskóli), 10. mars (grunnskóli) og 16. mars (leikskóli). Einnig verða haldin námskeið á eftirtöldum stöðum og verða dagsetningar auglýstar síðar: Borgarnes/Snæfellsnes, Ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir, Hvolsvöllur (Suðurland) og Reykjanes.