Föstudagspóstur 13. mars 2020
4. og 5. bekkur
Skólastarf hefur gengið vel í vikunni, þó að vissulega megi segja að það hafi litast af þeim sérstöku tímum sem við upplifum núna. Gerðar hafa verið markvissar breytingar í mötuneyti, þar sem nemendum er skammtaður matur og vatn og úthlutað hnífapörum. Eins er gerð krafa um að allir þvoi sér hendur áður en þeir fara í mat. Við höfum sýnt nemendum myndir og myndband um góðan handþvott en eins og rætt hefur verið er góður handþvottur mjög mikilvægur.
Það kom fram í tölvupósti frá skólastjórnendum sem sendur var fyrir stundu, að foreldrar eiga von á tölvupósti um helgina þar sem greint verður frá fyrirkomulagi skólahalds í ljósi nýjustu frétta um samkomubann í landinu.
Nemendur í 4. bekk fóru í heimsókn á Listasafnið í morgun og fengu þar frábærar móttökur. Safnkennarar og safnstjóri tóku á móti okkur og leiddu okkur í gegnum sýningarnar sem þar eru. Börnin voru mjög áhugasöm og ánægð og við mælum heilshugar með heimsókn á Listasafnið okkar.
Góða helgi og takk fyrir vikuna.
Hagnýtar upplýsingar
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/