Föstudagspóstur 2. og 3. bekkur
Vikan 28. október - 1. nóvember
Kæru foreldrar/forráðamenn
Við minnum alla á að skrá sig í viðtal á mentor. Viðtölin fara fram á miðvikudaginn 30. október og fellur kennsla niður þann dag. Frístund er opin á viðtalsdaginn.
Vegna þrengsla í fatahengi er óskað eftir því að foreldrar fjarlægi körfur úr fatahengi, nemendur þurfa að deila hilluplássinu og því er óhentug að hafa körfur á hillunum. Við minnum á að merkja vel allan fatnað. Einnig er mikilvægt að koma með aukaföt og klæða sig eftir veðri svo allir hafið það gott úti í fyrsta snjó vetrarins.
Á föstudaginn 1. nóvember er svo nemendadagur þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði. Nemendum stendur til boða að skrá sig í hæfileikakeppni og þarf að skrá sig fyrir þriðjudag. Endilega ræðið við börnin um hæfileikakeppnina og aðstoðið við að finna atriðið ef þau vilja taka þátt.
Einnig verða íþróttakeppnir milli nemenda og starfsfólks. Við munum sem sagt gera okkur glaðan dag með ýmsu skemmtilegu á nemendadaginn.
Á döfunnni
Þriðjudagur 29. október: Sund - 3.bekkur
Föstudagur 1. nóvember: Nemendadagur
Góða helgi !
2. og 3. bekkjarteymið
Email: valabjort@akmennt.is
Website: www.naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 4604106