HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 22. TBL
DAGSKRÁ 27. FEBRÚAR - 5. MARS
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR - BOLLUDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR - SPRENGIDAGUR
Vertu NÆS í Bs. fyrir 5. - 10. bekk
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS - ÖSKUDAGUR
Dagskrá öskudags í 1. -7. bekk send í pósti.
Sameiginlegur kennarafundur í Bs Kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 2. MARS
Maximús fyrir 1. - 5. bekk í Íþróttahúsinu kl. 10:30
Stjórnendafundur kl. 14:30 í BS
FÖSTUDAGUR 3. MARS
Vika í árshátíðina. Góða helgi
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Samræmd próf í 9. og 10. bekk verða 7. -10. mars. 10. bekkur 7. og 9. mars og 9. bekkur 8. og 10. mars.
- Samtökn 78 með fyrirlestur fyrir unglingastigið 13. mars.
- Pörupiltar verða með sýningu fyrir unglingastigið 14. mars.
- Upplestrarkeppni 7. bekkja verður í Tónlistarskólanum 17. mars. Lokakeppni Suðurlands verður í Eldheimum 30. mars.
- Maríta fræðsla fyrir 5. - 10. bekk verður í lok mars.
Tilkynningar !!
- Úrslit í grunnskólakeppni Lífshlaupsins - nemendur stóðu sig frábærlega, urðu í 1. sæti í sínum flokki. Til hamingju með það.
- Í vinnustaðakeppninni urðum við í 7. sæti af 59 liðum í okkar flokki. Glæsilegt
- Maxi mús - Sinfóníu hljómsveit Íslands býður nemendum í HS á tónleika fimmtudaginn 2. mars kl. 10:30. Foreldrar velkomnir á sýninguna.
- Árshátíð starfsfólks GRV verður 10. mars, takið daginn frá.
- Starfsmannaviðtöl í gangi núna, vinsamlegast finnið tíma með þeim stjórnanda sem hefur verið úthlutað á ykkur.
- Lesið við sama borð - Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
Afmælisbörn
Súsanna Georgsdóttir 4. mars
Ólafur E. Lárusson 4. mars
María S Sigurbjörnsdóttir 5. mars
Þorskhnakkar i Miðjarðarhafssósu
Uppskrift:
- 600 g þorskhnakkar
- 1 msk rósapipar, mulinn
- salt og grófmalaður svartur pipar
- safi úr 1/2 sítrónu
- smjör til steikingar
- 1 dós niðursoðnir tómatar
- 150 g sveppir, niðursneiddir
- 1 lítill rauðlaukur, saxaður fínt
- 2 hvítlauksrif, söxuð smátt
- 1 dl hvítvín
- mozzarella ostur, rifinn
- 1 egg
Aðferð
Ofninn er hitaður í 200 gráður og stilltur á grill. Fiskurinn er kryddaður með rósapipar, salti, pipar og sítrónusafanum dreift yfir fiskinn. Fiskurinn er steiktur á pönnu upp úr smjörinu á báðum hliðum þar til hann hefur náð góðum lit á báðum hliðum. Þá er hann tekinn af pönnunni og lagður í smurt eldfast mót. Sveppum, lauk og hvítlauk bætt út á pönnuna. Þetta er steikt í smástund (smjöri bætt við eftir þörfum) og þá er tómötum og hvítvíni bætt út á pönnuna, saltað og piprað. Sósan er látin malla í ca. 10 mínútur. Þá er henni hellt yfir fiskinn.
Eggi er blandað saman við mozzarella ostinn og því næst er honum dreift yfir réttinn. Hitað í ofni sem er stilltur á grill við 200 gráður í um það bil 12 mínútur eða þar til osturinn hefur náð lit og fiskurinn er eldaður í gegn.
Spakmæli vikunnar
Martin Luther King Jr.
Heyrst hefur ...
Heyrst hefur ...
Heyrst hefur ...
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.