Skólafréttir Urriðaholtsskóla
Áramótafréttir
Fögnum nýju ári og njótum
Við áramót er vert að líta um öxl og þakka allt það góða sem hefur einkennt skólastarfið í Urriðaholtsskóla. Vissulega hefur árið verið frábrugðið því sem við ætluðum um síðustu áramót en við kjósum að þakka allt það góða sem hefur áunnist.
Mikil fjölgun varð í skólanum sl. haust, nýir nemendur og nýtt starfsfólk mætti til leiks og samtals voru 254 nemendur við skólann og starfsfólk um 80 í misstórum starfshlutföllum. Frábær hópur sem hefur lagt sitt af mörkum að gera þessa önn gleðilega, fræðandi og uppbyggjandi fyrir alla.
Það hefur verið einstakt að fylgjast með börnum ykkar vaxa og dafna. Almennt er hægt að segja að nemendur Urriðaholtsskóla, óháð aldri, séu kraftmikil, fróðleiksfús, hugmyndarík og ákaflega skemmtileg. Með hækkandi sól fáum við svo vonandi tækifæri til að styrkja tengslin við ykkur enn frekar og bjóða ykkur í hús. Það á eftir að koma nýjum foreldrum á óvart hversu skemmtileg við erum. Haustið er eiginlegur sáningartími í skólanum og á vorönn fer uppskeran að birtast og við nýtum nýja reynslu og færni barnanna til frekari afreka.
Starfsfólk Urriðaholtsskóla fær kærar þakkir fyrir jákvæðni, seiglu, sveiganleika, umburðarlyndi, gleði, úthald og æðruleysi, já algjörlega einstök leiðsheild. Á aðventu kom þvílíkur glaðningur frá foreldrafélagi Urriðaholtsskóla sem nærði og gladdi, hafið bestu þakkir fyrir.
Kæru þið öll, við hlökkum til nýrra áskoranna á árinu 2021 og óskum þess að nýtt ár færi okkur öllum samveru, gleði og enn frekari samvinnu.
Bjart og fagurt jólaljósið lýsi,
lífsgefandi nýárssólin rísi.
Á nýju ári aðstæðurnar bætist,
svo allar ykkar bestu vonir rætist.
(Ágúst Böðvarsson)
Kærleikskveðjur
stjórnendur Urriðaholtsskóla
Mikilvægi góðra samskipta
Í Garðabæ hafa bæði sveitarfélagið og skólar þess lagt ríka áherslu á þá skyldu sína að tryggja á öllum tímum, velferð, vellíðan og öryggi allra nemenda. Mikilvægt er að vinna saman að því að tryggja góð samskipti til að fyrirbyggja einelti innan skólanna sem og innan samfélagsins í heild. Góð samskipti, miðlun góðra lífsgilda, regluleg fræðsla og umræður um samskiptavanda og eineltismál og afleiðingar þeirra eru nauðsynlegar.
Í frétt á vef Garðabæjar má sjá upplýsingamyndband þar sem þau Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Björgvin Páll Gústafsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, og Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við HÍ og ráðgjafi hjá KVAN, fjalla um góð samskipti og mikilvægi þess að sporna við einelti.
https://www.gardabaer.is/stjornsysla/utgefid-efni/frettir/mikilvaegi-godra-samskipta
Myndbandið er einnig aðgengilegt á fésbókarsíðu Garðabæjar:
https://www.facebook.com/Gardabaer.Iceland/videos/220584052978113/
Endurskoðun áætlana
Endurskoðun þeirra áætlana sem unnið er eftir stendur sífellt yfir og tekið mið af nýrri reynslu og þekkingu sem bætist við eftir því sem unnið er úr málum innan skólanna. Vinna við endurskoðun eineltisáætlunar Garðabæjar er í vinnslu og er unnin í samstarfi við ráðgjafar- og fræðslufyrirtækið KVAN, sem sérhæfir sig m.a. í ráðgjöf og stuðningi fyrir fólk sem vinnur með börnum og ungu fólki.
Á vorönn verður Garðabær fyrsta sveitarfélagið sem tekur þátt í forvarnaverkefninu ,,Við sem lið” sem Björgvin Páll Gústafsson leiðir og verður prófað í fyrsta sinn í Garðaskóla. Um er að ræða verkefni sem verður unnið með einum bekk í Garðaskóla.
Á vef Garðabæjar er hægt að lesa nánar um forvarnir gegn einelti á eftirfarandi slóð: https://www.gardabaer.is/ibuar/skolar-og-daggaesla/forvarnir-og-fraedsla/gegn-einelti-i-gardabae/
Reglugerð um takmörkun á skólastarfi frá 1. janúar til 28. febrúar 2021
Leik- og grunnskóla
- 2 metra nálægðarmörk milli starfsfólks, annars grímunotkun innan dyra
- Starfsfólki heimilt að fara á milli hópa
- Þrif og sótthreinsun eftir hvern dag
- Foreldrar og aðstandendur koma EKKi inn í skólabygginguna að nauðsynjalausu og því er áfram er tekið á móti og hvatt við dyrnar
- Á grunnskólastigi eiga ekki fleiri en 50 nemendur í rými innandyra
Þetta einfaldar lífið hjá okkur, þ.e. að fullorðnir geta farið á milli svæða í afleysingar ef þess þarf. Leik- og grunnskólastarf getur því verið í góðum skorðum. Huga þarf að er tvískipting í matsal grunnskólabarna. Samkomur innan skólans enn í ákveðnum skorðum.
Það reynir hins vegar enn á ykkur, foreldrar og aðstandendur, áfram þurfið þið að kveðja við dyrnar og virða tveggja metra fjarlægð við fullorðna. Mælum því með að þegar þið komið að skólanum að þið séuð áfram með grímur.
Mikilvægar dagsetningar á vorönn 2021
- 4. janúar - skólastarf hefst á báðum skólastigum á vorönn
- 9. febrúar - foreldrasamtöl, skertur skóladagur grunnskólabarna
- 22.-26. febrúar - vetrarleyfi grunnskólabarna, ekkert skólastar, frístund opin
- 26. febrúar - skipulagsdagur leikskóla, leikskólastig lokað
- 29.-31. mars - páskaleyfi grunnskólabarna, frístund opin
- 1.-5. apríl - páskleyfi, skólastarf hefst 6. apríl
- 21. apríl - 3 ára afmæli Urriðaholtsskóla
- 25. maí - skipulagsdagur, leikskólastig lokað, frístund opin fyrir grunnskólabörn
- 8. júní - íþróttahátið og útskriftir af skólastigum, skertur skóladagur grunnskólabarna
- 9. júní - foreldraviðtöl á grunnskólastig
- 10. júní - grunnskólastig í sumarleyfi, sumardagskrá leikskólastigs
Upplýsingar um gjaldskrár leik- og grunnskóla
Gjaldskrá skólamáltíða grunnskólabarna
Stytting vinnuvikunnar
Gullkorn inn í daginn
(Orison Sweet Marden)
URRIÐAHOLTSSKÓLI ER HNETULAUS SKÓLI
Urriðaholtsskóli
Email: urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is
Website: urridaholtsskoli.is
Location: Vinastræti 1-3, 210 Garðabæ
Phone: 591-9500